Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Birgir Olgeirsson skrifar 14. október 2026 22:00 Áform um að breyta Valhöll í allt að níutíu herbergja hótel hafa fengið samþykki umhverfis- og skipulagsráðs. Málinu hefur verið vísað til borgarráðs. Vísir/Einar Árnason Áform um að breyta Valhöll við Háaleitisbraut í hótel með allt að níutíu herbergjum hafa fengið samþykki umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Breytingunni á deiliskipulagi hefur verið vísað til borgarráðs.
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar. Breytingin felur einnig í sér heimild til að bæta einni inndreginni hæð ofan á húsið. Þá verður heimilt að grafa frá því austanverðu til að hleypa birtu niður í kjallarann. Umsókn TÓ arkitekta um breytinguna var auglýst frá 15. maí til 26. júní. Athugasemdir bárust og samþykkti ráðið tillöguna í dag með breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa frá 15. september. Ágreiningur um bílastæði Athugasemdir við áformin hafa meðal annars varðað eignarhald á sameiginlegri lóð, þinglýsta samninga og réttindi tengd bílastæðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar leggja áherslu á að samþykkt skipulagsbreytingarinnar leysi ekki þann ágreining. Hún ákveði hvorki hver eigi stæðin né hver hafi rétt til að nota þau. Slíkar deilur verði að leysa milli viðkomandi aðila eða, eftir atvikum, fyrir dómstólum. Vilja verslun eða þjónustu á jarðhæð Fulltrúar Samfylkingarinnar eru jákvæðir gagnvart því að Valhöll fái nýtt hlutverk. Þeir gera ekki athugasemd við viðbótarhæðina, enda verði byggingarlist hússins varðveitt. Þeir leggja jafnframt áherslu á að jarðhæðin verði opin almenningi með verslun eða þjónustu sem glæddi götuna lífi. Samfylkingin telur bílastæðamál ekki eiga að stöðva verkefnið en segir þurfa að skýra hvernig stæðin verði samnýtt, tryggja réttindi annarra eigenda á reitnum og sjá fyrir öruggri aðkomu hópferðabíla og vöruflutninga.
Skipulagsmál Reykjavík Ferðaþjónusta Hótel á Íslandi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira