Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Á Andersen Jakob Bjarnar skrifar 15. maí 2025 11:53 Sigríður Á Andersen spurði Ingu Sæland út í tvö atriði sem varða embættisfærslur félagsmálaráðherra en fékk ef til vill ekki þau svör sem hún hafði búist við. vísir/vilhelm Heitt var í kolum í óundirbúnum fyrirspurnum. Þingheimur sat þrumu lostinn og hlustaði á Ingu Sæland félagsmálaráðherra lesa Sigríði Á Andersen, þingmanni Miðflokksins, pistilinn.
Sigríður Á Andersen hafði verið að spyrja Ingu út í tvær ákvarðanir sem Inga hafði verið gerð afturreka með, bæði hvað varðar skipan í stjórn HMS orku og einnig með stjórn Tryggingastofnunar. Sigríður var ósátt við svörin. Hún sagði að í stað þess að fram kæmi afsökunarbeiðni á lögbrotum höggvi ráðherra í sömu knérunn. Með ólíkindum að þessi þingmaður... Hún ítrekaði fyrirspurn sína en þá fékk hún það óþvegið frá ráðherra sem vildi ræða það þegar Sigríður Á Andersen sagði af sér sem ráðherra. „Það er með hreinum ólíkindum að akkúrat þessi háttvirti þingmaður, Sigríður Á Andersen, sem einn af fáum ráðherrum fyrrverandi ríkisstjórnar Íslands, hrökklaðist úr embætti og þurfti að segja af sér ráðherradómi, vegna einstrengingslegra ákvarðanataka þvert á gildandi lög,“ sagði Inga og hún var hvergi nærri hætt. „Það þurfti mannréttindadómstól Evrópu til að hrekja hana úr embætti því svo fast sat hún. Ég segi bara ekkert annað en það að háttvirtur þingmaður, ég horfi í þín augu með von um það að við í rauninni gerum okkar besta og séum í góðri trú að vinna að hag samfélagsins sem við vorum kjörnar til að gera og ég óska nákvæmlega þess hins sama. Ég mun ganga hér fram af heiðarleika og einlægni í mínum störfum hér eftir sem hingað til hvort heldur það er í stjórnarandstöðu, sem ber pínulítið annan brag, en þegar við sitjum í ríkisstjórn.“ Þingmönnum brugðið Ýmsir þingmenn gerðu athugasemd við orð Ingu, Þorsteinn B. Sæmundsson þingmaður Miðflokksins sagði ósmekklegt að ráðherra væri að sneiða með þessum hætti að þingmanni sem ekki gæti svarað fyrir sig á sama vettvangi. Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður tók í sama streng og sagði því miður hafa borðið á því að háttvirtir þingmenn og ráðherrar hafa kosið að haga sínum orðum hér á Alþingi hafi krítað liðugt og hún vonaði að það kæmi ekki niður á virðingu fyrir hinu háa Alþingi. „Þessi ummæli voru ákveðinn lágpunktur, því miður.“
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flokkur fólksins Tengdar fréttir Vill skapa frið með ákvörðun sinni Sigríður Á. Andersen fráfarandi dómsmálaráðherra segir að hún hafi ekki verið beitt þrýstingi um að segja af sér 13. mars 2019 18:49 „Ég skipaði þá aðila sem ég taldi hæfasta“ Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra segist hafa skipað þá aðila sem hún taldi hæfasta í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þingmaður Miðflokksins gagnrýndi ráðherra fyrir að gæta ekki jafnréttislaga við skipun stjórnarinnar en áttatíu prósent nýrra stjórnarmanna eru karlmenn. 1. maí 2025 11:00 Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Sjá meira
Vill skapa frið með ákvörðun sinni Sigríður Á. Andersen fráfarandi dómsmálaráðherra segir að hún hafi ekki verið beitt þrýstingi um að segja af sér 13. mars 2019 18:49
„Ég skipaði þá aðila sem ég taldi hæfasta“ Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra segist hafa skipað þá aðila sem hún taldi hæfasta í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þingmaður Miðflokksins gagnrýndi ráðherra fyrir að gæta ekki jafnréttislaga við skipun stjórnarinnar en áttatíu prósent nýrra stjórnarmanna eru karlmenn. 1. maí 2025 11:00