Innlent

Rútuslys á Suður­lands­vegi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni á vettvang.
Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni á vettvang. Vísir/Vilhelm

Lögreglu var fyrir stuttu tilkynnt um umferðarslys á Suðurlandsvegi fyrir austan Hala á Suðursveit. Þar fór rúta utan vegar samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Suðurlandi. Ekki er vitað hversu margir eru slasaðir eða hversu alvarlegt slysið var en tuttugu manns eru í rútunni. 

 Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni og áhöfn annarrar þyrlu í viðbragðsstöðu. Slysið átti sér stað einhver staðar á milli Hafnar í Hornafirði og Fagurhólsmýrar.

„Það eru tuttugu manns í rútu sem fór utan vegar. Viðbragðsaðilar eru á leiðinni,“ segir Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurlandi.

Á vef Vegagerðarinnar segir að flughált sé austan við Höfn og krapi, hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum á Suðausturlandi. Búið er að loka veginum vegna slyssins. 

Fréttin verður uppfærð þegar frekari fregnir berast. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×