Arnór er aðstoðarþjálfari Aalborg og þjálfari U19-landsliðs Dana. Álaborgarliðið átti þrjá leikmenn í hvoru liði þegar Danmörk og Svíþjóð léku úrslitaleikinn á HM í gær, sem endaði með sigri Dana.
Arnór segir sigurinn í gær kærkominn, ekki síst vegna þess leiðindaástands sem kórónuveirufaraldurinn hafi valdið í Danmörku þó að hann komi einmitt í veg fyrir heðfbundin fagnaðarlæti á ráðhústorginu í Kaupmannahöfn.
Danir hafa nú orðið heimsmeistarar tvö skipti í röð og ekki tapað í 19 leikjum í röð á HM. Vísir leitaði til Arnórs til að skýra aðeins þessa velgengni liðsins, sem einnig er enn ríkjandi ólympíumeistari eftir að hafa unnið titilinn undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar árið 2016.
„Í fyrsta lagi eru þeir með alveg ótrúlega gott lið. Það er samt ekki sjálfgefið að verða þá heimsmeistari tvö ár í röð og þetta er ótrúlegur árangur,“ segir Arnór.
„Þeir eru með þessar stjörnur sem að hafa „lokað“ þessum titlum, eins og [Niklas] Landin, Mikkel [Hansen] og [Rasmus] Lauge á síðasta móti. Lauge er einn þeirra sem eru ekki með núna og það gerir þennan árangur enn merkilegri. Núna voru þeir með nokkra óreynda menn, eins og 22 ára Gidsel í hægri skyttustöðunni allt mótið á sínu fyrsta stórmóti, og Emil Jakobsen sem kom inn í einum leiknum og skoraði 12 mörk. Það gerir þennan titil enn merkilegri en þann síðasta, þegar þeir voru auk þess á heimavelli með 15 þúsund manns á bakvið sig í hverjum leik. Þetta mót var frábærlega spilað hjá þeim og í lokin voru það stóru karlarnir eins og Landin og Mikkel sem sigldu þessu heim,“ segir Arnór, og bætir við:
Brugðust vel við skakkaföllum
„Í úrslitaleiknum verða þeir fyrir áfalli þegar þeir missa Lasse Svan meiddan af velli og eru ekki með varahornamann. Þá koma bara nýir inn og taka við keflinu, eins og Nikolaj Öris sem skoraði allt í einu fimm mörk í gær eftir að hafa varla verið með allt mótið, og Jacob Holm kom frábær inn og skoraði fjögur mörk í seinni hálfleik. Þetta er það sem gerði gæfumuninn – breiddin. Það hvað þeir fengu út úr þessum nýju mönnum gerði að verkum að þeim tókst að vinna titilinn.“

Danir unnu Argentínu, Barein og Kongó í riðlakeppni, og svo Króatíu, Japan og Katar í milliriðlinum, áður en þeir unnu svo Egyptaland, Spán og loks Svíþjóð í úrslitakeppninni.
„Byrjunin hjá þeim á þessu móti var einstaklega einföld hvað varðar andstæðinga. Það hefði mögulega getað orðið þeim að falli – að hafa ekki þurft að taka á því fyrr en allt í einu í 8 liða úrslitum. Þá voru þeir líka tæpir á því að detta út, en það þarf líka smáheppni,“ segir Arnór og vísar í leikinn ótrúlega gegn Egyptalandi í 8-liða úrslitum, þar sem úrslitin réðust í vítakeppni.
„Bullandi áhugi í Danmörku allan janúar“
„Það er einn ótrúlegasti leikur sem hefur verið spilaður, hvað þá í átta liða úrslitum á stórmóti. Það er hálfömurlegt að hugsa til þess að þar hefðu getað verið 20 þúsund áhorfendur á pöllunum. Þetta var magnaður leikur,“ segir Arnór og tekur undir að það hafi heyrst hátt í lýsendum danska sjónvarpsins:
„Það voru læti, og það er búinn að vera bullandi áhugi í Danmörku allan janúar. Það hefur verið þungt ástand í landinu út af veirunni svo þetta var kærkomin tilbreyting fyrir Danina – að fá eitthvað til að sameinast um allan janúarmánuð. Í gær voru þeir með beina útsendingu í einhverja 12-13 klukkutíma.“
Með sex í úrslitaleiknum en þeir fá ekkert frí
Fáir fá þó tækifæri til að taka á móti dönsku handboltahetjunum þegar þær snúa heim í dag, vegna kórónuveirufaraldursins, og makar þeirra og börn mega ekki einu sinni taka á móti þeim á Kastrup.
„Þeir eru vanir að fá stútfullt ráðhústorg og heimsókn í ráðhúsið til að fagna titli en það verður ekkert þannig. Við í Álaborg vorum með sex leikmenn í úrslitaleiknum og þeir eru bara að fara að mæta á æfingu hjá okkur á morgun. Því miður fá þeir ekki lengra frí, það er bara leikur á fimmtudaginn,“ segir Arnór og brosir.