
Viðskipti innlent

Hætta áætlunarflugi á milli Íslands og New York
Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur tekið úr sölu allar flugferðir á milli Keflavíkur og Newark flugvallar í New York.

Sérfræðingar með sautján tillögur að úrbótum hjá Seðlabankanum
Þrír erlendir sérfræðingar sem skipuðu úttektarnefnd að beiðni forsætisráðherra hafa skilað sautján tillögum að úrbótum hjá Seðlabanka Íslands er varða peningastefnu, fjármálastöðugleika, fjármálaeftirlit og stjórnarhætti. Nefndin telur ástæðu til að endurskoða umboð fjármálaeftirlitsnefndar.

Árni tekur við af Berglindi Rán hjá Orku náttúrunnar
Orka náttúrunnar hefur ráðið Árna Hrannar Haraldsson í starf framkvæmdastjóra fyrirtækisins og mun hann hefja störf þann 1.maí næstkomandi.

Sidekick segir upp 26 manns
Heilbrigðistæknifyrirtækið Sidekick Health hefur sagt upp 26 starfsmönnum fyrirtækisins, bæði á starfsstöðvum sínum hérlendis og erlendis.

Þrjú ráðin í forstöðumannastöður hjá Sjóvá
Gunnar Snorri Þorvarðarsson, Heiður Huld Hreiðarsdóttir og Hinrik Reynisson hafa öll verið ráðin í forstöðumannsstöður hjá Sjóvá á síðustu misserum.

Sátu alvarlega fundi um tómatsósu og guacamole
Sérfræðingar Samkeppniseftirlitsins sátu alvarlega fundi um tómatsósu og guacamole þegar þeir unnu að ógildingu á samruna tveggja majónesrisa. Ítarlegar sósuskilgreiningar í úrskurði málsins hafa vakið kátínu, sem forstjóri segir skiljanlegt. En hagsmunir neytenda hafi verið í húfi.

Kofi Tómasar frænda kveður og Ægir tekur við
Ægir brugghús hefur opnað bar við Laugaveg 2. Áður var skemmtistaðurinn Kofinn, sem áður fyrr hét Kofi Tómasar frænda, rekinn í húsnæðinu. Framkvæmdastjórinn segir reksturinn hafa gengið mjög vel eftir opnunina.

Fyrsti íslenski sparisjóðurinn sem stofnaður er frá grunni frá 1991
Nýr íslenskur sparisjóður, Indó, opnar formlega í dag og er hann fyrsti íslenski sparisjóðurinn sem stofnaður er frá grunni frá 1991.

Verðbólga mælist 9,9 prósent
Verðbólga síðustu tólf mánaða er enn á uppleið. Mælist hún nú 9,9 prósent en stóð í 9,6 prósent í síðasta mánuði og 9,3 próent í mánuðinum þar á undan.

Kristín Ólafsdóttir nýr framkvæmdastjóri Pírata
Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin sem nýr framkvæmdastjóri Pírata þann 16. janúar síðastliðinn. Hún tók við af Elsu Kristjánsdóttur.

„Ég held að það muni algjörlega frysta markaðinn“
Vaxtaákvarðanir Seðlabankans hafa skilað árangri að sögn fasteignasala sem segir húsnæðisverð ekki fara hækkandi. Frekari vaxtahækkanir muni þó frysta markaðinn.

Fljótel meðal sýnisgripa á ferðaþjónustuhátíð
Mid-Atlantic kaupstefnan fór fram í Laugardalshöll í dag, í fyrsta sinn í þrjú ár. Kaupstefnugestir segja mikinn vöxt hafa orðið í íslenskri ferðaþjónustu síðan ráðstefnan fór síðast fram og nauðsynlegt að mynda tengsl bæði vestan og austan Atlantshafs.

Icelandair lýkur fjármögnun tveggja Boeing 737 MAX flugvéla
Icelandair hefur lokið fjármögnun á tveimur Boeing 737 MAX 8. Heildarfjárhæð fjármögnunarinnar er um 67 milljónir Bandaríkjadala, rúmlega 9,5 milljarðar króna.

Tveggja ára skilorðsbundinn dómur og 283 milljóna króna sekt
Kaare Nordbö, stjórnarmaður og framkvæmdastjóri einkahlutafélagsins Concretum, hefur verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í fyrra.

Davíð ráðinn viðskiptastjóri hjá Akta sjóðum
Davíð Einarsson hefur verið ráðinn sem viðskiptastjóri í Eignastýringu Akta sjóða.

Bleiki liturinn settur í sviðsljósið með nýjum kerrum
Nokkrar Bónusverslanir hafa fengið bleikar innkaupakerrur sem viðskiptavinir geta nýtt sér þegar verslað er. Kerrurnar eru minni en þær gulu en markaðsstjórinn segir nýju kerrurnar vera það sem viðskiptavinir hafa verið að kalla eftir.

Kaup KS á Gunnars ógild
Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun sinni í dag ógilt kaup Kaupfélags Skagfirðinga á Gunnars ehf., sem framleiðir meðal annars Gunnars mæjónes. Segir í ákvörðuninni að samruni fyrirtækjanna myndi leiða til alvarlegrar röskunar á samkeppni í framleiðslu og sölu á mæjónesi og köldum sósum.

Krefst rúmra 650 milljón króna af Lindarhvoli og ríkinu
Í morgun var aðalmeðferð í máli Frigusar II ehf á hendur Lindarhvoli ehf og íslenska ríkinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Lögmaður Fringusar, Arnar Þór Stefánsson, krefst þess að stefndu verði gert að greiða Frigusi óskipt 651.192.377 krónur með vöxtum og verðtryggingu frá 30. apríl 2019.

Icelandair hefur áætlunarflug til Krítar
Icelandair tilkynnir í dag Krít á Grikklandi sem nýjan áfangastað í leiðakerfi sínu. Flogið verður einu sinni í viku, á föstudögum, frá Keflavíkurflugvelli til Chania flugvallar á Krít.

Fiskikóngurinn harðorður: Skellir í lás við Höfðabakka
Fiskbúð Fiskikóngsins við Höfðabakka í Reykjavík verður skellt í lás á morgun. Kristján Berg, eða Fiskikóngurinn líkt og hann er jafnan nefndur, greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni. Hann segir að um þung spor sé að ræða enda sé um að ræða eina elstu starfandi fiskbúð landsins.

Guðrún tekur við af Friðjóni hjá KOM eftir sameiningu
KOM ráðgjöf og auglýsinga- og almannatengslastofan Ampere hafa sameinast og munu fyrirtækin starfa undir merkjum KOM ráðgjafar. Guðrún Ansnes, annar eigenda Ampere, tekur við sem framkvæmdastjóri KOM af Friðjóni R. Friðjónssyni sem gegnt hefur stöðunni síðastliðin níu ár.

Húsnæðismarkaður kólni þar til stýrivextir lækki á ný
Húsnæðismarkaðurinn virðist vera að kólna nokkuð hratt en í nýrri skýrslu húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að íbúðaverð lækkaði um 0,7% í desember frá fyrri mánuði. Hægfræðingur stofnunarinnar gerir ráð fyrir að markaðurinn haldi áfram að kólna þar til stýrivextir lækki á ný.

Nánast ómögulegt að reka veitingastað við núverandi aðstæður
Veitingamaður í Eyjum segir nánast ómögulegt að reka veitingastað við núverandi aðstæður. Koma þurfi á samtali milli ríkis og lítilla og meðalstórra fyrirtækja með það að markmiði að endurskoða allt rekstrarumhverfi veitingastaða

Atvinnuleysi dróst saman um 1,3 prósentustig
Atvinnuleysi dróst saman um 1,3 prósentustig frá desember 2021 til desember 2022. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi er nú í 3,3 prósentum og hefur dregist saman um 5,7 prósentustig frá því að það var sem hæst í apríl árið 2021.

Vandræði með netþjónustur Microsoft
Bandaríski tæknirisinn Microsoft rannsakar nú bilun sem varð í netþjónustu fyrirtækisins í morgun. Fjölmargir hafa átt í vandræðum með að tengjast þjónustum á borð við Teams og Outlook.

Verðtryggð lán 86 prósent af hreinum nýjum lánum hjá bönkunum
Þrátt fyrir útlit sé fyrir að fasteignamarkaðurinn sé að kólna hratt þá er enn tiltölulega hátt hlutfall íbúða að seljast á yfirverði. Þannig seldust 17,4 prósent íbúða á höfuðborgarsvæðinu á yfirverði í desember, samanborið við 19,3 prósent í nóvember.

Launavísitala hækkar um fjögur prósent milli mánaða
Laun hækkuðu að jafnaði um fjögur prósent á milli mánaða í desember 2022 samkvæmt launavísitölu. Bráðabirgðamat gefur til kynna að laun starfsfólks á almennum vinnumarkaði hækkaði um 5,6 prósent milli mánaða.

Sigrún ráðin markaðsstjóri Lífsverks lífeyrissjóðs
Sigrún Eyjólfsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarstjóri hjá Lífsverki lífeyrissjóði.

Leifur nýr forstöðumaður hjá Motus
Leifur Grétarsson hefur verið ráðinn sem forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Motus. Hann kemur til fyrirtækisins frá CreditInfo þar sem hann hefur starfað síðan árið 2015.

Ríflega 40 prósent sjóða og stofnana hafa ekki skilað ársreikningi
Ríflega fjörutíu prósent allra virkra sjóða og stofnana sem bar að skila ársreikningi til Ríkisendurskoðunar fyrir rekstrarárið 2021 hafa ekki enn gert það. Athygli vekur að 42 sjóðir hafa aldrei skilað ársreikningi. Veruleg hætta er á að stofnanir og sjóðir séu notaðar til að þvætta pening og er þörf á að virkja lagaúrræði sem knýr fram skil á ársreikningum að mati Ríkisendurskoðunar.