Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 18. október 2026 14:53 Brynhildur Pétursdóttir er framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna. vísir Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir lyfjafyrirtæki auglýsa sjúkdóma til að komast hjá reglum um bann við því að auglýsa lyfseðilsskyld lyf. Hún segir Lyfjastofnun með málið til skoðunar og telur mikilvægt að lögum sé fylgt.
Í nýjasta Neytendablaðinu – tölublaði Neytendasamtakanna er fjallað um ólögmæta markaðssetningu á lyfseðilsskyldum lyfjum. Í Evrópu gilda strangar reglur um markaðssetningu á lyfjunum og er alfarið bannað að beina henni að almenningi. Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir að borið hafi á því að lyfjafyrirtæki dansi á línunni og auglýsi í staðinn sjúkdóma og heilsufarskvilla undir yfirskini vitundarvakningar. Tiltekið lyf sé þá aldrei nefnt á nafn en sjúkdómseinkenni tíunduð og fólki jafnvel bent á að spyrja lækni sinn út í málið. Novo Nordisk yfir strikið Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, segir að franska lyfjastofnunin hafi nýverið talið lyfjafyrirtækið Novo Nordisk fara yfir strikið þegar það fór í umfangsmikla auglýsingaherferð á samfélagsmiðlum um offitu og hvatti konur sérstaklega til að taka málin í eigin hendur og hefja samtal við lækni. „Og þó að þar hafi ekki verið nefnd nein lyf þá var litið þannig á að þessi mikla fjölmiðlaumfjöllun sem hefur verið um tiltekin þyngdarstjórnunarlyf, að í ljósi þess hvað það hafði verið mikil umræða, þá væri alveg ljóst hvaða lyf væri um að ræða, þannig að ef konur færu að tala við lækninn sinn þá væru þær að fara að biðja um alveg ákveðin lyf. Þetta er svona, þetta er mjög matskennt og fyrirtækið dansaði á þarna einhverri línu en þarna var bara metið sem svo að þeir fóru yfir línuna og gengu of langt.“ Borið á sambærilegum herferðum Brynhildur segir að borið hafi á sambærilegum auglýsingaherferðum hér heima. „Og við sendum fyrirspurn á Lyfjastofnun sem segist vera að skoða málið og að þeirri skoðun sé ekki lokið. Þannig að það er alveg áhugavert að vita hvernig Lyfjastofnun metur þetta hérna heima vegna þess að við teljum auðvitað bara mjög mikilvægt að þessum lögum sé fylgt.“ Sú athöfn að auglýsa sjúkdóm... það er væntanlega einhver tilgangur þar að baki, þetta er ekki bara einhver vitundarvakning eða hvað? „Nei, þetta er einmitt alltaf svona látið liggja af því að þetta sé vitundarvakning og auðvitað geta neytendur fengið einhverjar upplýsingar en auðvitað er markmiðið fyrst og fremst hjá lyfjaframleiðendum að selja lyf, það liggur alveg í augum uppi. Þannig að þess vegna er svo mikilvægt að eftirlitsstofnanir skoði málin hratt og vel og þessir hagsmunir neytenda séu alltaf hafðir í fyrirrúmi.“
Neytendur Lyf Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Fleiri fréttir Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Sjá meira