Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Agnar Már Másson skrifar 5. september 2026 13:18 Lína Björg ætlaði sér bara að fá sér smjör, ost og smá sultu á beygluna. Samsett Mynd Línu Björgu Tryggvadóttur brá verulega í gærkvöldi þegar hún beit óvænt í glerbrot þegar hún var að borða beyglu. Hún segir að ónotatilfinning hafi gripið um sig eftir að hún áttaði sig á því að hún hefði kyngt glerbroti. Hún hafi verið heillengi að veiða glerbrot úr kjaftinum.
Hún lenti í þessu í gærkvöldi. „Ég sem sagt fékk mér beyglu, bara svona amerískar beyglur sem eru frá Aðföngum, setti smjör og ost og smá sultu ofan á,“ segir Lína en innihald og álegg beyglunnar væri nú ekki í frásögur færandi ef ekki væri fyrir það sem gerðist næst: „Svo er ég búin að borða sko bara hálfa beygluna. Þá bít ég í eitthvað, eitthvað hart.“ Linda segist þá hafa hugsað með sér hvort það væri eitthvað skrýtið við sultuna. Glerbrotið má sjá á myndinni hér.Samsett Mynd „Ég svona finn alveg bara að ég bryð eitthvað, og ég kyngi því einhvern veginn og tek næsta bita,“ segir hún. „Og þá fæ ég bara stórt glerbrot upp í mig.“ Hún hafi verið heillengi að ná brotinu úr munninum á sér. „Þá finn ég það og ég alveg bara spýti út úr mér í vaskinn og bara og finn þetta glerbrot.“ Hún kveðst hafa sent póst á Aðföng í gærkvöldi, sem flytja inn beyglurnar frá Bandaríkjunum, vegna málsins. „En það er náttúrulega bara helgi, þannig að ég skil vel að þau séu ekki búin að hafa samband við mig,“ bætir hún við. Eftir atvikið hafi hún farið að finna fyrir ónotatilfinningu og hringt á Læknavaktina þar sem henni var svo ráðlagt að fara á bráðamóttöku. „Þetta var bara eitthvað svo ógeðslegt,“ bætir hún við. Á bráðamóttökunni hafi henni verið sagt að fylgjast með einkennum eins og blóði í uppköstum eða hægðum. Lína telur sig þó hafa ælt upp fyrra glerbrotinu vegna ógleði við tilhugsunina um að hafa kyngt glerbrotinu.
Neytendur Matvöruverslun Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Fleiri fréttir Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira