Hægst á verðhækkun á matvöru Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. september 2026 10:39 Appelsínur urðu um 10,7 prósentum dýrari. Vísir/Vilhelm Hægst hefur á verðhækkun á matvöru síðustu mánuði eftir miklar hækkanir í byrjun árs. Helstu drifkraftar hækkunar á matvöru eru hækkanir á kjötvöru, mjólk og ferskvöru.
Þetta kemur fram í mælingum Alþýðusambands Íslands sem fylgist með verðlagi á matvöru. Dagvöruvísitala ASÍ lækkaði um 0,11 prósent milli ágúst og september 2026. Frá ágúst 2025 til september 2026 hefur dagvöruvísitalan hins vegar hækkað um 3,4 prósent. Á einu ári hefur verð hækkað í flestum dagvöruflokkum en verð grænmetis hefur hækkað hvað mest eða um átján prósent. Appelsínur og fleiri ferskir ávextir hækkuðu þá um 10,7 prósent, ber um 5,6 prósent og epli um 5,3 prósent. Verð á kartöflum hækkaði hvað minnst eða um eitt prósent. „Sveiflurnar voru mun meiri í þessum vöruflokkum en í öðrum vöruflokkum. Það endurspeglar meðal annars að verð á ferskvöru getur tekið hröðum breytingum milli mánaða og eftir árstíðum,“ segir í tilkynningu ASÍ. Einn flokkur lækkaði í verði Verðið á lambakjöti hækkaði mest, um 6,2 prósent, og fuglakjöt varð 5,7 prósentum dýrara. Þá hækkaði nautakjöt um 3,7 prósent. „Unnið, reykt og saltað kjöt hækkaði um 4,9% og svínakjöt um 4,8%. Verðlagseftirlitið hefur áður vakið athygli á miklum verðhækkunum á kjötvörum. Þó að dregið hafi úr verðhækkunum eru þær áfram sá liður sem drífur áfram verðhækkanir á matvöru.“ Hækkanirnar komu flestar fram á fyrstu mánuðum ársins 2026 en þegar leið á árið varð verðþróunin almennt stöðugri. Þegar litið er til mjólkurvara hækkuðu þær um tvö til fjögur prósentustig. Ostur hækkaði mest, um 4,3 prósent, og nýmjólk minnst eða um tvö prósent. Verð á þurrvöru hefur hins vegar verið stöðugra. Þá voru kornvörur eini flokkurinn sem lækkaði milli ára. „Niðurstöðurnar sýna að verðhækkanir dagvöru dreifast mjög ójafnt. Þótt breytingar séu litlar í mörgum þurrvöruflokkum hafa miklar hækkanir á ferskvöru, kjöti og mjólkurvörum sem vega þungt í vörukörfu flestra heimila mikil bein áhrif á útgjöld heimilanna til matarinnkaupa.“
ASÍ Matur Verðlag Fjármál heimilisins Matvöruverslun Neytendur Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira