Viðskipti innlent

Gagnaverafyrirtæki á Blöndu­ósi stefnt vegna hundruða milljóna leiguskuldar

Agnar Már Másson skrifar
Frá gagnaveri Borealis við Blönduós.
Frá gagnaveri Borealis við Blönduós. Aðsend

Gagnaversfyrirtækinu Borealis Data Center hefur verið stefnt fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur vegna meintrar vanefnda á leigusamningi um tölvubúnað. Stefnufjárhæðin nemur rúmum 6,57 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 900 milljóna króna, auk vaxta. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Adomat & Heidenblut M 1 ehf., sem er í eigu tveggja þýskra fjárfesta tengdum CT Cap-samstæðunni. Franskur innviðasjóður, Vauban Infrastructure Partners, á 92,2 prósenta hlut í Borealis.

Málið varðar leigusamning frá júní 2022, þar sem Adomat leigði Borealis tæplega tvö þúsund sérhæfðar tölvur til notkunar í gagnaveri félagsins á Blönduósi.

Samkvæmt kröfu Adomat hætti Borealis að greiða mánaðarlega leigu undir lok árs 2022 og hefur síðan hvorki greitt leiguna né afhent búnaðinn til baka, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Stefnan beinist formlega að Borealis Data Park ehf., sem breytti heiti sínu í BDP ehf. haustið 2025, en það er dótturfélagi Borealis-samstæðunnar.

Í tilkynningu Adomat & Heidenblut segir að málið komi upp á viðkvæmum tímapunkti fyrir franska meirihlutaeigandann, Vauban Infrastructure Partners, en Borealis hefur verið í mikilli sókn undanfarið.

Félagið hafi tekið 148 milljóna dollara lán snemma árs 2025 og nýverið gert 12 MW orkusamning við Landsvirkjun til að tvöfalda stærð gagnavers síns á Blönduósi.

Tilraunir til að leysa deiluna og fá vélbúnaðinn afhentan milli áranna 2023 og 2025 hafi ekki borið árangur vegna þess að Borealis hafi neitað að afhenda vélarnar. Beiðnir Borealis um nauðungarsölu á búnaðinum hjá sýslumönnum fyrr á þessu ári hafi ýmist verið dregnar til baka eða þeim hafnað.

Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, þann 3. nóvember 2026, og er dóms að vænta á næstu vikum að því er fram kemur í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×