Viðskipti innlent

„Ég hef aldrei spilað golf“

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Ólafur Ólafsson, fyrrverandi eigandi Samskipa, og Ólafur Orri Ólafsson, forstjóri Samskipa.
Ólafur Ólafsson, fyrrverandi eigandi Samskipa, og Ólafur Orri Ólafsson, forstjóri Samskipa. vísir/sigurjón

„Ég hef notað þá samlíkingu að þetta er eins og að vera í brúðkaupi dóttur minnar. Ég er búinn að ala hana upp og vera með henni í gegnum erfiða tíma og skemmtilega tíma, hún er búin að mennta sig og þroskast. Núna er hún að gifta sig og á leiðinni út í hinn stóra heim að ná enn frekari árangri.“

Þetta segir Ólafur Ólafsson, fyrrverandi eigandi Samskipa, í samtali við fréttastofu í kjölfar þess að félagið var selt til spænska skipafélagsins Boluda Shipping. Hjónin Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir voru langsamlega stærstu eigendur skipafélagsins.

Sonur þeirra, Ólafur Orri Ólafsson, tók við sem forstjóri Samskipa í október á síðasta ári en hann mun áfram starfa sem forstjóri þegar kaupin ganga að fullu í gegn þann 1. janúar 2027.

 Fréttastofa settist niður með feðgunum til að ræða þessi tímamót en Ólafur hefur fylgt fyrirtækinu í 34 ár. Viðtalið við þá feðga má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.

Náðu að halda kaupunum leyndum í rúma átta mánuði

„Ég er rosalega ánægður fyrir hönd föður míns og móður. Þetta eru mikil tímamót og nýr kafli fyrir þau,“ segir Ólafur Orri sem tekur fram að samkomulag um söluna hafi fyrst verið handsalað 5. mars 

„Það var í Madríd og síðan þá höfum við verið að vinna úr drögum að samningnum. Það var síðan í gær sem við skrifuðum undir sem eru mikil tíðindi og gott augnablik fyrir okkur. Þetta var aðeins lengra í vinnslu og þetta kom frekar náttúrulega úr umræðum sem við höfðum við samstarfsfélaga okkar í Boluda,“ segir Ólafur Orri.

Feðgarnir settust niður með fréttastofu.vísir/sigurjón

Samskip voru stofnuð árið 1990 en byggðu á grunni skipadeildar Sambands íslenskra samvinnufélaga. Síðan þá hefur skipafélagið vaxið gríðarlega og er eitt af leiðandi flutningafyrirtækjum Evrópu en höfuðstöðvar þess eru í Rotterdam í Hollandi.

En af hverju að selja núna eftir þessi 34 ár?

„Við fórum aldrei með fyrirtækið í söluferli. Það var búið að reyna oft að kaupa fyrirtækið. Það skiptir mjög miklu máli að framtíð félagsins verði sem öflugust. Fyrr á þessu ári þegar að Ólafur Orri tók við þá seldum við út Bretlandssiglingarnar sem voru mjög erfiðar vegna stuttrar sjóleiðar sem tekur fimmtán tíma í samkeppni við ferjur. Þá var bara spurningin: Hvernig tökum við næstu skref að gera enn öflugra fyrirtæki? Þegar suðrið, Boluda, mætti norðrinu, Samskipum, þá voru menn sammála um það að samstarf þessara fyrirtækja gæti orðið mjög áhugavert. Þá ákváðum við að selja. Ég og mín kynslóð segir bless og horfir á eftir fuglunum fljúga út í heim.“

Ólafur eldri kveðst ánægður með það að sonur sinn verði áfram forstjóri félagsins. 

„Ég er mjög stoltur af því en það er hins vegar hans ákvörðun en ekki mín.“

Boluda-menn hissa eftir heimsókn

Ólafur Orri sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að Ísland yrði áfram demantur í kórónu félagsins. Félagið muni áfram einbeita sér að Íslandi. Stefnt sé að því að efla starfsemina hér á landi og bæta þjónustu viðskiptavina. 

„Fyrirtækið er íslenskt, Samskip hf., og hér byrjuðu menn að huga að framtíðinni. Hér voru allir stjórnendur Samskipa. Hérna hafa menn séð fyrir sér hvernig á að gera þetta. Það verður ekkert af fyrirtækinu tekið,“ segir Ólafur eldri.

Séð út um gluggann á skrifstofu Samskipa á Íslandi.vísir/sigurjón

Er það einhvern veginn tryggt í samningnum að starfsemi verði virk hér á landi?

„Það sjá allir verðmætin í því að halda sterkri stöðu á Íslandi. Það var mjög áhugavert þegar Boluda kom hingað og kynntist íslensku stjórnendunum. Þeir voru afar áhugasamir og afar ánægðir. Þegar þeir skoðuðu aðstöðuna voru þeir mjög hissa á því hvað þetta væri flott fyrirtæki.“

Útilokar ekki að taka upp golf

Spurður hvað taki við fyrir Ólaf eldri segir hann:

„Ég hef alltaf nóg að gera. Við erum að byggja hér líka og erum að vinna að mjög áhugaverðum verkefnum sem tengjast uppbyggingu á hóteli og fasteignum. Við erum líka í öðrum verkefnum, erlendum verkefnum.“

Þú ætlar ekkert að spila golf og leggjast í helgan stein?

„Ég hef aldrei spilað golf.“

Hefurðu engan hug á að gera það?

„Það skal ég ekki segja. Það getur vel verið að ég geri það en ég hef ekki gert það hingað til.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×