Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bjarki Sigurðsson skrifar 1. september 2026 11:20 Myndin til vinstri var tekin klukkan 21:30 í gærkvöldi, tveimur og hálfum klukkutíma áður en reglugerðin féll úr gildi. Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri Olís, segir að búið sé að ganga úr skugga um að kerfisvillu hafi verið að ræða og enginn greitt hærra verð fyrr en eftir miðnætti. Vísir/Aðsend/Anton Brink Allir sem tóku eldsneyti fyrir miðnætti í gær borguðu lægra verð en þeir sem biðu með að dæla þar til í dag eftir að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi. Um tíma leit út eins og Olís hefði þjófstartað í hækkununum í Mosfellsbæ en um var að ræða bilun í kerfi og allir greiddu rétt verð. Framkvæmdastjórinn gagnrýnir hve stuttan tíma olíufélögin fá til að bregðast við meiriháttar breytingum stjórnvalda.
Athugull neytandi sendi fréttastofu ábendingu í gærkvöldi þess efnis að eldsneytisverð hefði verið hækkað um tæpar 27 krónur á stöðvum Olís og ÓB í Mosfellsbæ nokkrum klukkutímum áður en reglugerð um lægri virðisaukaskatt á eldsneyti rann úr gildi. Á ljósaskilti fyrirtækisins var eins og búið væri að hækka verðið og bæði á Gasvaktinni og GSM-bensín, vefsíðum þar sem fylgst er með eldsneytisverði, var verðið skráð hærra en annars staðar. Kerfi Gasvaktarinnar er tengt við ljósaskilti Olís.Gasvaktin Kerfisvilla en ekki þjófstart Í samtali við fréttastofu segir Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri Olís, að eingöngu hafi verið um kerfisvillu að ræða. Á dælunum sjálfum hafi verið rétt verð og búið að ganga úr skugga um það að enginn hafi greitt hærra verð en hann átti að gera. „Allir kúnnar fengu rétt verð fram til miðnættis. Þessar vefsíður tengjast sama kerfi og skiltin,“ segir Ingunn. Mikið álag og enginn fyrirvari Fjörutíu og fimm mínútum síðar var búið að leiðrétta villuna. Ingunn segir mikið álag hafa verið á starfsfólki olíufélaganna við að bregðast við örum og flóknum breytingum stjórnvalda á gjöldum sem sett eru á eldsneyti. „Það er enginn fyrirvari. Erlendu aðilarnir sem aðstoða með kerfin okkar skilja ekki hvernig þetta getur gengið svona, annars staðar er farið í slíkar breytingar með mun lengri fyrirvara,“ segir Ingunn. Ljóst sé að mikill kostnaður falli á félögin við að bregðast við breytingunum og halda utan um þau gögn sem núverandi yfirvöld hafa óskað eftir í tengslum við tímabundnu lækkunina. „Þetta er töluvert aukið flækjustig,“ segir Ingunn.
Neytendur Bensín og olía Mosfellsbær Verðlag Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samkeppnismál Orkumál Bílar Fjármál heimilisins Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira