Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 17. október 2026 12:11 Jón Ólafur Halldórsson, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, segir til skoðunar hvernig sjóðurinn eigi að bregðast við rannsókninni á Ölgerðinni Andri Þór Guðmundsson .fyrrverandi forstjóri Ölgerðinnar og núverandi stjórnarformaður Beru hefur sagt að brugðist verði við athugasemdum vegna nemendafélaga. Vísir Lífeyrissjóður verzlunarmanna íhugar að kalla eftir skýringum frá stjórnendum Ölgerðarinnar vegna rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á fyrirtækinu. Sjóðurinn er einn tíu lífeyrissjóða sem eiga samanlagt tæplega helming í móðurfélagi Ölgerðarinnar. Í hluthafastefnu sjóðsins er lögð áhersla á að fyrirtæki fari að samkeppnislögum.
Tíu lífeyrissjóðir eiga samanlagt tæplega helmingshlut, eða 46,23 prósent, í Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, sem nú er til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu vegna gruns um brot á samkeppnislögum. Stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna segir sjóðinn íhuga að kalla eftir skýringum frá stjórnendum Ölgerðarinnar. Í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV í vikunni var fjallað ítarlega um samkeppnisstöðu Ölgerðarinnar og umkvartanir keppinauta fyrirtækisins. Þar greindu forsvarsmenn minni brugghúsa frá því að veitingastaðir hefðu neitað að taka vörur þeirra í sölu eða jafnvel tekið þær úr sölu og vísað til gildandi samninga við Ölgerðina. Félagið er stærsti aðilinn á áfengismarkaði hér á landi. Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður móðurfélags Ölgerðarinnar, sagðist í samtali við Vísi ekki vita til þess að einkasöluákvæði hefðu verið í samningum fyrirtækisins við bari, skemmtistaði og veitingahús. Slík ákvæði hefðu hins vegar verið í samningum við nemendafélög og skipuleggjendur útihátíða. Félagið hyggst endurskoða samningagerð við nemendafélög í háskólum. Áhersla á að fyrirtæki fari að samkeppnislögum Lífeyrissjóður verzlunarmanna er fjórði stærsti hluthafi Beru með tæplega átta prósenta eignarhlut. Í hluthafastefnu sjóðsins er sérstaklega kveðið á um að við fjárfestingar sé lögð áhersla á að fyrirtæki starfi í samræmi við samkeppnislög og reglur og setji sér stefnu í þeim efnum. Jón Ólafur Halldórsson, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, segir nú til skoðunar hvernig sjóðurinn eigi að bregðast við rannsókninni á Ölgerðinni. „Eins og staðan er núna erum við að skoða þetta mál innan sjóðsins og móta viðbragðið. Við erum með hluthafa- og eigendastefnu sem að sjálfsögðu er höfð til hliðsjónar þegar svona mál koma upp. En eins og staðan er núna þá liggur náttúrulega ekki fyrir nein niðurstaða í þessu máli. Þetta eru fyrstu dagar þessara rannsókna,“ segir Jón Ólafur. Íhuga að kalla eftir skýringum Hann segir meðal annars koma til greina að kalla eftir skýringum frá stjórnendum Ölgerðarinnar. „Það er að sjálfsögðu eitt af því sem kemur til greina að við köllum eftir skýringum frá stjórnendum Ölgerðarinnar,“ segir hann. Aðspurður hver viðbrögð lífeyrissjóðsins yrðu ef rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að Ölgerðin hefði brotið gegn lögum eða reglum segir Jón Ólafur of snemmt að svara því. „Það er nú erfitt að segja akkúrat til um það. Við vitum í sjálfu sér ekki um eðli mögulegra brota,“ segir hann. Enginn beinn fulltrúi í stjórn Þrátt fyrir að vera fjórði stærsti hluthafi móðurfélags Ölgerðarinnar á Lífeyrissjóður verzlunarmanna ekki beinan fulltrúa í stjórn félagsins, að sögn Jóns Ólafs. „Nei, við erum ekki með beinan fulltrúa í stjórn Ölgerðarinnar. Við fylgjum leiðbeiningum um góða stjórnarhætti inni í sjóðnum og erum náttúrulega með hluthafastefnuna þar að auki. Venjulega er það nú þannig að þessi stóru félög eru með tilnefningarnefndir og tilnefna stjórnarmenn eftir vandlega skoðun og við fylgjum því oftast. Þá er um að ræða stjórnarmenn sem eru óháðir og í rauninni eru að vinna fyrir alla hluthafa, ekki eingöngu einn hluthafa.“ Aðspurður hvort rætt hafi verið á vettvangi lífeyrissjóðanna að eiga sameiginlegan fulltrúa í stjórnum fyrirtækja til að gæta hagsmuna sjóðanna og þeirra gilda sem þeir starfa eftir segir Jón Ólafur málið hafa komið til umræðu. „Þetta kemur upp á vettvangi lífeyrissjóðanna en mér sýnist nú að meira og minna hafi allir lífeyrissjóðirnir valið þá leið að styðja tilnefningar tilnefningarnefnda og ég held að það hafi nú reynst bara bærilega farsælt hingað til.“.
Ölgerðin (Bera) Samkeppnismál Veitingastaðir Áfengi Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Sjá meira