Ferðaþjónusta

Tómatar í stað erlendra ferðamanna
Framkvæmdir eru hafnar við Friðheima í Reykholti en þar er verið að stækka gróðurhúsið um fimm þúsund fermetra. Eigendur fyrirtækisins ætla að leggja aukna áherslu á tómatarækt til að bregðast við fækkun erlendra ferðamanna.

„Þetta verður djúp dýfa og líklega sú mesta í lýðveldissögunni“
Forsætisráðherra segir viðbúið að fjöldi fólks skipti um starfsvettvang á næstu misserum. Mikilvægt sé að auka fjölbreytni á íslenskum vinnumarkaði. Samtök atvinnulífsins sjá fram á mestu efnahagsdýfu í lýðveldissögunni.

Tilvalið að ráðast í úrbætur nú þegar ferðamenn eru færri
Ráðast ætti í umfangsmiklar úrbætur á vegum landsins nú þegar dregið hefur verulega úr umferð með fækkun ferðamanna. Þetta segir sveitarstjóri Bláskógabyggðar og að þegar sé hafin uppbyggingu á ferðamannastöðum í sveitarfélaginu.

Hafa sett mörg verkefni á ís
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum verður af yfir þrjú hundruð milljónum króna á árinu vegna hruns í ferðaþjónustunni. Þjóðgarðsvörður segir að fresta þurfi viðhaldsverkefnum vegna þessa.

Minnst fjórir metrar milli tjalda í sumar
Margir bíða ef til vill óþreyjufullir eftir að geta byrjað að ferðast innanlands enda verður lítið um utanlandsferðir í ár. Leiðbeiningar um sóttvarnaráðstafanir vegna Covid-19 á tjaldsvæðum, hjólhýsasvæðum, skálum ferðafélaga og fleiri ferðamannastaða hafa verið gefnar út af landlæknisembættinu.

Stærsti hluti rekstrartaps vegna rýrnunar á viðskiptavild
Rekstrartap Icelandair á fyrsta ársfjórðungi nemur ríflega þrjátíu milljörðum króna. Stærsti hluti tapisins er niðurfærsla viðskiptavildar. Gert er ráð fyrir að lausafjárstaða fari undir lágmark á næstu vikum. Þetta kemur fram í bráðabirgðauppgjöri félagsins fyrir 1. ársfjórðung sem birtist í gær

Neytendasamtökin með á annað hundrað mála í vinnslu
Málum hefur fjölgað um 70 prósent hjá Neytendasamtökunum á þessu ári og varða þau allt að 600 hundruð manns. Flestir leita þangað með endurgreiðslukröfur á fyrirtæki tengdum kórónuveirufaraldrinum.

Hótelnóttin lækki um allt að 50% í verði
Stjórnendur þriggja stórra hótelkeðja á Íslandi gera ráð fyrir að gistinóttin muni lækka töluvert í verði í sumar, jafnvel um allt að helming. Viðbúið er þó að mörg hótel verði lokuð. Íslandshótel ætla að vera fyrsta hótelkeðjan á Íslandi að bjóða gæludýr velkomin.

„Þarf að tryggja að vinnumarkaðurinn verði ekki eins auðsærður og nú“
Sögulegur baráttudagur verkalýðsins, eða 1. maí, er runninn upp, þar sem hvorki verða kröfugöngur né útifundir í dag vegna samkomubanns. Þetta er í fyrsta sinn í tæp hundrað ár sem það gerist á þessum degi. Forseti Alþýðusambands Íslands varar við að launafólk slái að kröfum sínum í skugga atvinnuleysis.

Ekki ýkja mörg hótelherbergi til skiptanna á landsbyggðinni
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur hjá Íslandsbanka, segir að það séu ekki svo mörg hótelherbergi til skiptanna úti á landi, til að mynda á Norðvesturlandi, Norðausturlandi, að Akureyri undanskildri, og á Austfjörðum.

Vonast til að opna hótelið aftur í júní
Vonir standa til að hótelin geti farið að taka aftur á móti gestum í júní en þeir sem á þeim starfa vona að Íslendingar verði tíðir gestir á hótelunum í sumar.

Óvissan mikil en engar uppsagnir hjá Bláa Lóninu
Bláa Lónið einn þekktasti ferðamannastaður landsins stendur frammi fyrir tvenns konar óvissu vegna samkomubanns og gagns mála í flugsamgöngum heimsins.

Vel yfir 90% hópuppsagna hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustu
Ríflega fjögur þúsund hafa misst vinnuna í 51 hópuppsögn sem Vinnumálastofnun hefur verið tilkynnt um í dag og í gær.

Afslættir til skoðunar vegna ferðamannafátæktar í sumar
Faraldur kórónuveirunnar hefur gert það að verkum að íslensk ferðaþjónustufyrirtæki sjá fram á erfiða tíma. Mörg þeirra róa lífróður og hafa þegar þurft að grípa til sársaukafullra aðgerða til að halda lífi. Þau undirbúa sig nú undir erfitt sumar og reyna í meiri mæli að ná inn íslenskum viðskiptavinum.

Hvorki rútur né erlenda ferðamenn að sjá: „Þetta er bara ömurlegt“
Hrun í ferðaþjónustu hefur bitnað illa á íbúum á Suðurlandi, ekki síst í Bláskógabyggð. Sveitarstjórinn segir mikla óvissu ríkja um hvað næstu mánuðir bera í skauti sér

Flugmaður sem missti vinnuna hjá Icelandair: „Að fá uppsögn núna á þessum tíma er mjög erfitt“
Sara Hlín Sigurðardóttir hefur starfað hjá Icelandair síðan árið 2005. Hún er meðal þeirra 431 flugmanna sem missti stöðu sína hjá félaginu í gær en alls hafa 96% flugmanna misst vinnuna þar.

Staðan eftir gos í Eyjafjallajökli líkust núverandi ástandi
Aðstæður á Þingvöllum eru óvenjulegar og jafnvel súrrealískar að mati þjóðgarðsvarðar. Ástandið líkist einna helst stöðunni eftir gos Eyjafjallajökuls.

Traustar flugsamgöngur einn helsti drifkraftur þjóðarbússins
Í nýlegri skýrslu IATA sem byggir á gögnum frá Oxford kemur fram að flugsamgöngur við landið séu einn helsti drifkraftur íslensk efnahagslífs. Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á stjórnvöld að tryggja framtíð Icelandair.

Segja öllum upp og vonast eftir kraftaverki í sumar
Öllum sextíu starfsmönnum Hótel Sögu í Vesturbænum í Reykjavík var sagt upp í dag. Eitt prósent nýting var á hótelinu í apríl. Hótelstjórinn vonast eftir kraftaverki í sumar.

Öllum 152 sagt upp hjá Arctic Adventures
Öllum 152 starfsmönnum ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures og dótturfélaga verður sagt upp.

Gray Line segir upp 91 prósenti starfsfólks
Eitt stærsta rútufyrirtæki landsins hyggst segja upp 107 starfsmönnum.

Telur ferðaþjónustuna ekki standa og falla með ákvörðunum íslenskra yfirvalda
Sóttvarnalæknir segir að ákvarðanir stjórnvalda hér á landi um landamæralokanir og sóttkví ráði ekki einar framtíð ferðaþjónustunnar. Ákvarðanir annarra þjóða vegi þar jafnþungt.

Andað léttara - en hvað með Icelandair Group?
Tekjulítil og tekjulaus fyrirtæki í ferðaþjónustu anda léttara eftir að ríkisstjórnin kynnti björgunaraðgerðir sínar í gær.

„Furðulegt að ríkið skuli ekki gefa upp merki um að það ætli að styðja við Icelandair“
Þrír bankar vinna með Icelandair að væntanlegu hlutafjárútboði. Fagfjárfestar segja að engar ákvarðanir verði teknar um frekari fjárfestingar fyrr en allar upplýsingar liggja fyrir. Formaður FÍA gagnrýnir að stjórnvöld komi ekki beint að félaginu.

Meirihluta starfsmanna Iceland Travel sagt upp
„Þar sem ekki er hægt að gera ráð fyrir því að starfsemin taki við sér á ákveðnum tíma verðum við að ganga ansi nærri fyrirtækinu með uppsagnir og sem varúðarráðstöfun segja upp meirihluta starfsmanna félagsins,“ segir framkvæmdastjóri Iceland Travel

Kynnisferðir segja upp 150 starfsmönnum
Kynnisferðir hafa sagt upp 150 starfsmönnum, eða um 40 prósent starfsliðsins.

„Þessi björgunarpakki veitir fyrirtækjum von“
Ferðaþjónustan virðist ánægð með aðgerðir ríkistjórnarinnar í dag. Nú sé komin von hjá fólki sem var við það að slökkna.

Ferðaþjónustufyrirtækin undirbúa hópuppsagnir
Ferðaþjónustufyrirtæki undirbúa mörg fjöldauppsagnir um mánaðamótin. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar á von á að þúsundir missi vinnuna.

Lofsyngur aðgerðir ríkisstjórnarinnar og segir engum upp
Haraldur Teitsson, framkvæmdastjóri hjá rútufyrirtækinu Teiti Jónassyni og formaður Félags hópferðaleyfishafa, hrósar stjórnvöldum fyrir hvernig brugðist hafi verið við kórónuveirufaraldrinum.

„Þetta er risastór aðgerð fyrir ferðaþjónustuna“
„Þetta er risastór aðgerð fyrir ferðaþjónustuna,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, inntur eftir viðbrögðum við nýjasta útspili ríkisstjórnarinnar til þess að bregðast við efnahagslegum áhrifum kórónuveirufaraldurins.