Vinsælustu vörurnar í Signature 2024 Húsgagnaverslunin Signature er flutt í nýjan og glæsilegan sýningarsal að Stekkjarbakka 6 þar sem Garðheimar voru til húsa. Þar sameinast spennandi nýjungar í hönnun og vinsælar vörur sem hafa skapað versluninni sérstöðu. Lífið samstarf 19.12.2024 10:10
Hundrað hugmyndir að gjöf fyrir hann á Já.is Vöruleitin Já.is er stórsniðug leitarvél til að finna hina fullkomnu gjöf. Um áttahundruð innlendar vefverslanir eru inni í leitinni og í kringum tvær milljónir vara en Edda Ólafsdóttir hjá Já.is. hefur auðveldað okkur lífið með því að taka saman hugmyndalista. Lífið samstarf 19.12.2024 08:50
Skemmtileg tískuslys og eftirminnileg jólaföt Löngum hefur verið hefð að klæða sig upp á aðfangadag og ýta þjóðsögur um jólaköttinn undir mikilvægi þess. Lífið á Vísi ræddi við nokkra tískuspegúlanta um eftirminnileg jólaklæði og hvaða föt verða fyrir valinu í ár. Virðist rauði þráðurinn vera að þeir sæki meira í þægindin nú en áður. Tíska og hönnun 19.12.2024 07:02
Opnuðu sjóðheitt hönnunarstúdíó með stæl Menningarlífið iðaði í miðborg Reykjavíkur síðastliðið fimmtudagskvöld þegar splunkunýja hönnunargalleríið Hakk opnaði dyrnar að Óðinsgötu 1. Opnunin var að sögn forsprakka dúnmjúk og nýjasta hönnunartríó landsins Erindrekar frumsýndi þeirra fyrstu línu. Tíska og hönnun 16. desember 2024 14:02
Stofnandi Mango hrapaði til dauða í fjallgöngu Isak Andic, stofnandi tískuverslanakeðjunnar Mango og einn ríkasti maður Spánar, lést á laugardag þegar hann hrapaði um 150 metra til jarðar í fjallgöngu með fjölskyldu sinni skammt frá Barcelona. Erlent 14. desember 2024 18:02
Ótrúleg tískutilviljun skekur fjölmiðlaheiminn Sérstakt dálæti íslenskra fjölmiðlakvenna á tiltekinni blárri blússu var afhjúpað í fyrsta annál fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar sem birtist í vikunni og horfa má á hér fyrir neðan. Lífið 13. desember 2024 11:57
Best klæddu Íslendingarnir 2024 Tíska er órjúfanlegur hluti af tilverunni þrátt fyrir að fólk velti sér mis mikið upp úr henni. Íslendingar sækja upp til hópa margir í svarta liti og geta jafnvel verið hræddir við að taka áhættu í klæðaburði en þó eru alltaf einhverjir sem þora og skera sig úr. Lífið á Vísi fór yfir þá Íslendinga sem bera af í klæðaburði og fara alltaf ótroðnar slóðir í fatavali. Þetta eru best klæddu Íslendingarnir árið 2024. Tíska og hönnun 13. desember 2024 07:03
Sænsk tískudrottning sögð kúga starfsfólk sitt Sænskur áhrifavaldur og ein áhrifamesta unga athafnakona heims er sökuð um að koma fram við starfsfólk sitt á niðurlægjandi og kúgandi hátt. Fyrrverandi og núverandi starfsfólk Djerf Avenue, fyrirtækis hennar, saka hana um einelti og ógnarstjórnun á vinnustaðnum. Tíska og hönnun 13. desember 2024 00:40
Það heitasta fyrir jólin: Heimagerður andlitsmaski og klútar Í Íslandi í dag í vikunni voru tískustraumar ársins 2024 skoðaðir en þar ræddi Vala Matt við sérfræðinga á því sviði. Lífið 11. desember 2024 10:33
Heitustu stjörnur listarinnar saman í Ásmundarsal Það var líf og fjör í Ásmundarsal 30. nóvember síðastliðinn þegar hin árlega og eftirsótta jólasýning opnaði. Margt var um manninn þar sem listunnendur komu saman og báru verk eftir vinsælustu íslensku listamennina augum. Menning 9. desember 2024 18:00
Húrrandi stemning í opnun Húrra Tískuunnendur landsins gerðu sér glaðan dag síðastliðinn föstudag þegar verslunin Húrra opnaði dyrnar að splunkunýrri verslun í Kringlunni. Margt var um manninn og gestir skörtuðu sínum flottustu fötum. Tíska og hönnun 9. desember 2024 11:32
Rúbínrauðu skór Dóróteu seldust á 3,8 milljarða Rúbínrauðu skór Dóróteu sem Judy Garland klæddist í Galdrakarlinum í Oz seldust á uppboði í Dallas á laugardag fyrir tæpa fjóra milljarða króna. Skórnir eiga sér merkilega sögu því þeim var stolið árið 2005 og fundust ekki fyrr en þrettán árum seinna. Tíska og hönnun 8. desember 2024 11:31
Með okkar augum fengu Kærleikskúluna Tuttugasta og önnur Kærleikskúlan sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra gefur út var afhjúpuð við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur í dag, miðvikudaginn 4. desember. Með okkar augum fær Kærleikskúluna að þessu sinni og þá er Blóm og ást þurfa næringu eftir Hildi Hákonardóttur Kærleikskúla ársins 2024. Lífið 4. desember 2024 14:19
Seldist upp daginn eftir kosningasigur Kristrúnar Glimmertoppur Kristrúnar Frostadóttur formanns Samfylkingarinnar seldist upp í tískuvöruverslun Mathildar í Kringlunni, Smáralind og í vefverslun daginn eftir Alþingiskosningar. Tíska og hönnun 4. desember 2024 14:08
Logi Pedro með hönnunarlínu: „Ég verð að gera þetta sjálfur“ „Þetta er mjög berskjaldandi því þetta er stressandi, þetta er dýrt og maður þarf að færa miklar fórnir til þess að koma svona verkefni af stað,“ segir vöruhönnuðurinn og tónlistarmaðurinn Logi Pedro sem var að fara af stað með heimilis hönnunarvörumerkið Lopedro. Blaðamaður tók púlsinn á Loga og ræddi við hann um þessi nýju ævintýri. Tíska og hönnun 4. desember 2024 11:31
Komst í jólaskapið í september Textíllistakonan og dansarinn Margrét Katrín Guttormsdóttir ber marga listræna hatta. Hún fékk það jólalega og skemmtilega verkefni að hanna jólaskrautið fyrir jólatréð hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur í Heiðmörk og segir óumflýjanlegt að komast í jólaskap við slíka vinnu. Hvað eru mörg jóla í því? Lífið 4. desember 2024 07:02
Nýtt íslenskt tískuvörumerki opnar glæsilega verslun Nýlega opnaði tískuvörumerkið Thomsen Reykjavík glæsilega verslun á Hafnartorgi í Reykjavík. Verslunin selur bæði eigin hönnun en líka önnur vörumerki. Lífið samstarf 3. desember 2024 11:30
Djörf á dreglinum Heitustu stórstjörnur heims klæddu sig upp í sitt djarfasta hátískupúss í gærkvöldi í tilefni af Tískuverðlaunahátíðinni sem haldin var í tónleikahöllinni Royal Albert Hall í London. Tíska og hönnun 3. desember 2024 10:09
Laxahattar komnir aftur í tísku hjá háhyrningum Háhyrningar eru aftur byrjaðir að synda um með laxa á höfðinu tæpum fjörutíu árum eftir að laxahattar komust í tísku á níunda áratugnum. Tíska og hönnun 2. desember 2024 23:24
Steldu stílnum af Samfylkingar-Rögnu Ragna Sigurðardóttir, læknir og þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík suður, skein skært í kosningapartýi flokksins í Kolaportinu um helgina umkringd flokksfélögum, bestu vinum og sínum heittelskaða Árna Steini. Ragna klæddist glansandi svörtum kjól og skartaði að sjálfsögðu rauðum varalit við. Tíska og hönnun 2. desember 2024 15:05
Áslaug Arna fékk „elegant“ kind í afmælisgjöf Sjálfstæðiskonan og ráðherrann Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fagnaði 34 ára afmæli sínu á kosningadag með flokksfélögum sínum og stuðningsmönnum í Sjálfstæðissalnum sem áður var Nasa. Hún fékk einstaka afmælisgjöf frá góðum vinum sem vísaði í ummæli sem Össur Skarphéðinsson lét falla snemma í kosningabaráttunni. Lífið 2. desember 2024 11:07
Virði töskusafns Laufeyjar Línar yfir fimm milljónum Íslenska stórstjarnan Laufey Lín Jónsdóttir virðist hafa dálæti á fallegum handtöskum. Hún er þekkt fyrir að deila smart myndum af sér á Instagram hvaðanæva úr heiminum þar sem hún er oftar en ekki með handtösku frá virtustu hátískuhúsum heims til að toppa dressið. Má þar nefna merki á borð við Chanel, Gucci og Chloé. Lífið 2. desember 2024 07:00
Ilmaðu eins og frambjóðendur: Snorri Másson með sama ilm og Svandís Svavars Góður ilmur spilar stórt hlutverk í lífi margra, ekki síst hjá karlmanns frambjóðendum til Alþingiskosninga 2024. Lífið á Vísi heyrði í nokkrum þeirra og spurði hvaða rakspíra þeir nota. Tveir segjast einfaldlega ekki nota slíkt. Lífið 29. nóvember 2024 15:02
Sparitímabilið er að hefjast, er fataskápurinn klár? Skemmtilegasti tími ársins er framundan, veislur og viðburðir, jólaboð og gamlárspartý. Nú er tilvalið að endurnýja sparidressið og á Boozt er hægt að finna föt fyrir hvaða tilefni sem er. Lífið samstarf 29. nóvember 2024 11:43