Með okkar augum fengu Kærleikskúluna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. desember 2024 14:19 Frá verðlaunaafhendingunni í dag. Tuttugasta og önnur Kærleikskúlan sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra gefur út var afhjúpuð við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur í dag, miðvikudaginn 4. desember. Með okkar augum fær Kærleikskúluna að þessu sinni og þá er Blóm og ást þurfa næringu eftir Hildi Hákonardóttur Kærleikskúla ársins 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu. Ár hvert velur Styrktarfélagið handhafa Kærleikskúlunnar, einhvern sem hefur með verkum sínum breytt viðhorfum og bætt líf samborgara sinna og samfélag, vakið athygli á mikilvægum gildum og sjálfsögðum réttindum. Bryndís Thors, fulltrúi gestaráðs Reykjadals í valnefnd Kærleikskúlunnar afhenti þáttastjórnendum og umsjónarmönnum Með okkar augum Kærleikskúlu ársins 2024. Þættirnir hafa vakið þjóðarathygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök en fjórtánda þáttaröðin fór í loftið á RÚV á árinu. Hafa þættirnir verið leiðandi í breyttum viðhorfum og vakið samfélagið til vitundar um þátttöku fatlaðs fólks í víðu samhengi. Þættirnir eiga rætur að rekja til ársins 2010 en þá höfðu Landsamtökin Þroskahjálp frumkvæði að því að halda námskeið fyrir fatlað fólk í þáttagerð fyrir sjónvarp. Námskeiðið var haldið hjá Fjölmennt og í kjölfarið gerði Þroskahjálp samning við Ríkissjónvarpið um sýningar á þáttunum. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Þáttastjórnendur hafa margir látið til sín taka á mörgum sviðum samfélagsins en þau eru Andri Freyr Hilmarsson, Ásgeir Tómas Arnarson, Elva Björg Gunnarsdóttir, Katrín Guðrún Tryggvadóttir, Magnús Orri Arnarson og Steinunn Ása Þorvaldsdóttir. Umsjón og stjórn dagskrárgerðar er í höndum Elínar Sveinsdóttur, Steingrímur Jón Þórðarson sér um myndatöku og klippingu og handritsgerð er í umsjá Sigmundar Ernis Rúnarssonar. Framleiðandi þáttanna er SERES hugverkasmiðja ehf. Með okkar augum hefur hlotið Hvatningaverðlaun ÖBI, Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins og Múrbrjót Þroskahjálpar árið 2011. Þá hafa þættirnir verið tilnefndir tíu sinnum til Eddunnar og hlutu Edduverðlaunin fyrir menningarþátt ársins, árið 2017. Í valnefnd Kærleikskúluhafa ársins 2024 sitja Diljá Ámundardóttir Zoëga, Björn Gústav Jónsson úr stjórn SLF, mæðgurnar Unnur Ösp Stefánsdóttir og Bryndís Thors, sem fulltrúi gestaráðs Reykjadals, og Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, starfsmaður SLF í nefndinni. Blóm og ást þurfa næringu eftir Hildi Hákonardóttur er Kærleikskúla ársins 2024. Blóm og ást þurfa næringu eftir Hildi Hákonardóttur er Kærleikskúla ársins 2024. Hildur (f. 1938) hefur á löngum starfsferli tekið á málefnum samtíma síns, einkum umhverfis- og jafnréttismálum, og nýtt til þess fjölbreytta miðla. Hún lærði myndvefnað við Myndlista- og handíðaskólann 1964-68 og Listaskóla Edinborgar árið 1969 og starfaði sem skólastýra Myndlista- og handíðaskólans á árunum 1975-78. Hildur á að baki fjölda sýninga og hefur gefið út fjölbreytt ritverk, m.a. Ætigarðurinn – handbók grasnytjungsins, Já, ég þori, get og vil (2005) og Hvað er svona merkilegt við það að vera biskupsfrú? I-II (2019/2021). Yfirlitssýningin Rauður þráður í Listasafni Reykjavíkur hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2023 og Hildur hlaut fálkaorðuna 2024 fyrir framlag sitt til myndlistar og störf í þágu kvennabaráttu. Allur ágóði af sölu Kærleikskúlunnar rennur til sumarbúðanna í Reykjadal. Sölutímabil Kærleikskúlunnar er 5.-20. desember. Kærleikskúlan kemur í takmörkuðu upplagi og er fáanleg í völdum verslunum um land allt og vefverslun SLF, kærleikskúlan.is. Kærleikskúlan er fallegur listmunur og skemmtileg til söfnunar en það sem gerir hana dýrmæta er innihaldið – kærleikurinn. Nafn kúlunnar er táknrænt en markmið með sölu hennar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og allur ágóði rennur til starfsemi sumarbúðanna Reykjadal þar sem gleði, jákvæðni og ævintýri eru í fyrirrúmi. Þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn sem félagið gefur út Kærleikskúluna en margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar hafa lagt félaginu lið með því að skapa listaverk á glerkúluna. Að neðan má sjá lista yfir fyrri kærleikskúlur. FYRRI KÆRLEIKSKÚLUR 2003 – 2 MÁLARAR – Erró 2004 – AUGAÐ – Ólafur Elíasson 2005 – ÁN UPPHAFS – ÁN ENDIS – Rúrí 2006 – SALT JARÐAR – Gabríela Friðriksdóttir 2007 – HRINGUR – Eggert Pétursson 2008 – ALLT SEM ANDANN DREGUR – Gjörningaklúbburinn 2009 – SNERTING – Hreinn Friðfinnsson 2010 – FJARLÆGÐ – Katrín Sigurðardóttir 2011 – SKAPAÐU ÞINN EIGIN HEIM – Yoko Ono 2012 – LOKKANDI – Hrafnhildur Arnardóttir 2013 – HUGVEKJA - Ragnar Kjartansson 2014 – MANDARÍNA - Davíð Örn Halldórsson 2015 – LANDSLAG - Ragna Róbertsdóttir 2016 - SÝN - Sigurður Árni Sigurðsson 2017 - ŪGH & BõÖGâr – Egill Sæbjörnsson 2018 – TERELLA – Elín Hansdóttir 2019 – SÓL ÉG SÁ – Ólöf Nordal 2020 – ÞÖGN – Finnbogi Pétursson 2021 – EITT ÁR – Sirra Sigrún Sigurðardóttir 2022 – KÚLA MEÐ STROKU – Karin Sander 2023 – HEIMUR – Guðjón Ketilsson 2024 – BLÓM OG ÁST ÞURFA NÆRINGU – Hildur Hákonardóttir Málefni fatlaðs fólks Tíska og hönnun Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Fleiri fréttir Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Sjá meira
Allur ágóði af sölu Kærleikskúlunnar rennur til sumarbúðanna í Reykjadal. Sölutímabil Kærleikskúlunnar er 5.-20. desember. Kærleikskúlan kemur í takmörkuðu upplagi og er fáanleg í völdum verslunum um land allt og vefverslun SLF, kærleikskúlan.is. Kærleikskúlan er fallegur listmunur og skemmtileg til söfnunar en það sem gerir hana dýrmæta er innihaldið – kærleikurinn. Nafn kúlunnar er táknrænt en markmið með sölu hennar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og allur ágóði rennur til starfsemi sumarbúðanna Reykjadal þar sem gleði, jákvæðni og ævintýri eru í fyrirrúmi. Þetta er í tuttugasta og fyrsta sinn sem félagið gefur út Kærleikskúluna en margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar hafa lagt félaginu lið með því að skapa listaverk á glerkúluna.
Málefni fatlaðs fólks Tíska og hönnun Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Fleiri fréttir Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Sjá meira