Úkraína
45 46 47 48 49 50 51 52 53 … 78 ›
Segir Pútín óttast frelsi og lýðræði í Úkraínu Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hafa ráðist inn í Úkraínu, því frjáls og lýðræðisleg Úkraína væri ógn gagnvart alræðisstjórn hans í Rússlandi. Erlent 19.3.2022 13:41
Segir utanríkisstefnu Íslands notaða til að skýla auðkýfingum frá efnahagsþvingunum Þingmaður Pírata segir að svo virðist sem utanríkisstefna Íslands hafi verið notuð til þess að skýla hvítrússneskum auðkýfingum frá mikilvægum efnahagsþvingunum. Þingmaðurinn hefur óskað eftir opnum fundi með utanríkisráðherra í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Innlent 19.3.2022 13:12
Skutu ofurhljóðfrárri eldflaug í fyrsta sinn í átökum Rússar segjast hafa skotið ofurhljóðfrárri eldflaug á vopnageymslu í vesturhluta Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Rússar segjast hafa notað slíkt vopn í átökum en eldflaugar þessar eru hannaðar til að ferðast á margföldum hljóðhraða og komast hjá eldflaugavörnum. Erlent 19.3.2022 09:29
Middlesbrough mun gefa allan ágóðan af bikarleiknum til Úkraínu Allur söluágóði af heimaleik enska B-deildarfélagsins Middlesbrough gegn Chelsea í átta liða úrslitum FA-bikarsins verður gefinn til mannúðaraðstoðar í Úkraínu. Enski boltinn 19.3.2022 08:01
„Það er kominn tími til að hittast, tími til að tala“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallar eftir raunverulegum og sanngjörnum friðarviðræðum, án tafar. „Það er kominn tími til að hittast, tími til að tala. Það er kominn tími til að endurheimta landyfirráð Úkraínu og réttlæti henni til handa.“ Erlent 19.3.2022 07:07
Hafa mætt miklum hlýhug hér á landi eftir langt ferðalag frá Úkraínu Mæðgur sem flúðu stríðsátökin segjast hafa mætt miklum hlýhug hér á landi. Móðirin vonast til að dóttir sín komist sem fyrst í skóla og hún í vinnu en hún fari aftur heim um leið og stríðinu lýkur. Innlent 18.3.2022 21:01
Vísbendingar um að Rússar ætli að beita efnavopnum í Úkraínu Margt bendir til að Rússar séu byrjaðir að örvænta í innrás sinni í Úkraínu og að þeir séu að undirbúa notkun efnavopna með ásökunum um að slík vopn sé að finna í Úkraínu. Fyrrverandi utanríkisráðherra Rússlands segir Úkraínumenn nú þegar í gagnsókn á sumum stöðum og Putin eigi ekki möguleika á að vinna stríðið. Erlent 18.3.2022 19:20
Vaktin: Sprengingar heyrast frá flugvellinum í Lviv Joe Biden Bandaríkjaforseti og Xi Jinping, forseti Kína, munu ræðast við í síma í dag. Biden er sagður munu vara Xi við því að aðstoða Rússa efnahags- og hernaðarlega og á sama tíma reyna að fá skýrari mynd af afstöðu og fyrirætlunum Kína. Erlent 18.3.2022 07:02
„Við munum ná fram öllum okkar markmiðum“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ávarpaði í dag tugi þúsunda manna á viðburði þar sem verið var að fagna innrás Rússa í Úkraínu og halda upp á að átta væru liðin frá ólöglegri innlimun Krímskaga. Við mikil fagnaðarlæti sagði Pútín meðal annars að Rússar myndu sigra í Úkraínu. Erlent 18.3.2022 15:19
Arnold ávarpar rússnesku þjóðina: „Úkraína hóf ekki þetta stríð“ Arnold Schwarzenegger, leikari og stjórnmálamaður, sendi í gær út frá sér ávarp til rússnesku þjóðarinnar. Þar segist hann elska rússnesku þjóðina og bera mikla virðingu fyrir henni en segist þurfa að segja Rússum sannleikann um það sem sé að gerast í Úkraínu. Erlent 18.3.2022 11:34
Klondike frá Úkraínu opnunarmynd Stockfish Film Festival Stockfish kvikmyndahátíðin verður sett í Bíó Paradís fimmtudaginn 24. mars og stendur í fullum skrúða til 3. apríl. Bíó og sjónvarp 18.3.2022 09:00
Biden og Xi ræðast við í dag: Hvað gera Kínverjar? Joe Biden Bandaríkjaforseti og Xi Jingping, forseti Kína, munu ræðast við í síma í dag klukkan 13 að íslenskum tíma. Um er að ræða fyrsta samtal leiðtoganna frá því í nóvember í fyrra og frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Erlent 18.3.2022 06:30
OECD spáir miklum samdrætti og verðbólgu næsta árið vegna stríðsins Stríð Rússa í Úkraínu mun trufla alþjóðleg viðskipti verulega og rjúfa aðfangakeðjur, minnka hagvöxt og þrýsta á verðbólgu um allan heim. Þetta kemur fram í nýrri og mjög svartsýnni spá Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD. Viðskipti erlent 17.3.2022 15:43
Vaktin: Segja hundruð þúsunda hafa snúið aftur til Úkraínu Viðræður Úkraínumanna og Rússa halda áfram í dag. Báðir aðilar virtust nokkuð vongóðir í gær en Vladimir Pútín var hins vegar enn vígreifur og talaði um að „afnasistavæða“ Úkraínu. Erlent 17.3.2022 06:52
Enn óvíst um fjölda látinna eftir árásir Rússa á leikhús og sundlaugarbyggingu Enn er óvíst um afdrif um 400 Úkraínumanna eftir að Rússar gerðu árásir á leikhús og sundlaugabyggingu í Maríupól, þar sem íbúar höfðu leitað skjóls. Myndir og myndskeið sýna rústir leikhússins en upplýsingar um fjölda látinna liggja ekki fyrir. Erlent 17.3.2022 06:31
Úkraínsk börn á leið til Íslands strandaglópar í Varsjá Úkraínsk börn og mæður þeirra, sem voru á leið til Íslands, urðu eftir á flugvellinum í Varsjá í Póllandi vegna skorts á vegabréfum. Helga Vala Helgadóttir segir í pistli á Facebook að stjórnvöld hefðu átt að laga vandamálið í síðustu viku. Innlent 16.3.2022 23:55
Segir fréttir um gang friðarviðræðna áhugaverðar og vekja bjartsýni Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra í Moskvu, var gestur í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld og ræddi þar stríðsátökin í Úkraínu. Hann ræddi meðal annars yfirstandandi friðarviðræður á milli Rússa og Úkraínumanna. Innlent 16.3.2022 23:01
Martröðin í Mariupol: Rússar valda dauða, hungri og örvæntingu með látlausum sprengjuárásum Nú þegar þrjár vikur eru liðnar frá innrás Rússa í Úkraínu hefur mannfallið, eyðileggingin og hryllingurinn hvergi verið meiri en í hafnarborginni Mariupol. Þar hafa rúmlega fjögur hundruð þúsund manns verið innikróaðir nánast frá upphafi stríðsins, sætt stöðugum loftárásum og nú vofir hungurvofan yfir íbúunum. Við vörum sterklega við myndefninu sem fylgir þessari frétt. Erlent 16.3.2022 19:28
Rússar sprengdu leikhús í Maríupól sem notað var sem neyðarskýli Sprengja lenti á leikhúsi í Maríupól í dag sem notað hefur verið sem neyðarskýli íbúa borgarinnar. Óttast er að mannfall sé mikið. Erlent 16.3.2022 17:52
Vaktin: Rússar brjálaðir eftir að Biden kallaði Pútín stríðsglæpamann Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, mun ávarpa bandaríska þingið í dag og þess er vænst að hann muni enn og aftur biðla til Vesturveldanna að „loka lofthelginni“ yfir Úkraínu. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í allan dag. Erlent 16.3.2022 06:43
Fyrrverandi herforingi segir næstu daga skipta öllu máli Rússar eiga í vandræðum. Þá skortir skotfæri og mannafla og geta ekki viðhaldið árásum sínum til lengdar. Hvernig innrás þeirra í Úkraínu heppnast veltur á gengi þeirra næstu tíu daga. Erlent 16.3.2022 15:30
„Að vera leiðtogi heimsins þýðir að vera leiðtogi friðar“ „Úkraínska fólkið er ekki eingöngu að verja Úkraínu. Við erum að verja gildi Evrópu og gildi heimsins.“ Erlent 16.3.2022 14:40
Bein útsending: „Stríð, mannréttindi og lýðræði“ Félag stjórnmálafræðinga, Alþjóðamálastofnun HÍ og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála munu standa fyrir hádegisfundi undir yfirskriftinni „Stríð, mannréttindi og lýðræði: Hvaða máli skiptir alþjóðasamvinna?“ í dag klukkan 12 í Öskju 132 í Háskóla Íslands. Innlent 16.3.2022 11:30
Skoraði Pútín á hólm, kallaði yfirmann Roscosmos fávita og grínaðist í harðstjóra Téténíu Auðjöfurinn Elon Musk, ríkasti maður heims og eigandi SpaceX og Tesla, greip nýverið til Twitter og skoraði Vladimír Pútín, forseta Rússlands, á hólm. Það var á mánudaginn og „taggaði“ Musk Kreml í færslu sinni. Í kjölfar þess hefur hann átt í orðaskiptum við yfirmann Geimvísindastofnunar Rússlands og harðstjóra Téténíu. Lífið 16.3.2022 10:47
Selenskí segir samningamenn eygja möguleika á málamiðlun Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir nú möguleika á málamiðlun eftir viðræður fulltrúa Úkraínu og Rússlands í gær. Ekkert lát er hins vegar á árásum Rússa og þá hafa fregnir borist af grimmilegum aftökum almennra borgara. Erlent 16.3.2022 06:21
Hver Pólverji reiðubúinn að taka Úkraínumenn inn á heimili sitt Flóttamannastraumurinn frá Úkraínu undanfarnar tæpar þrjár vikur hefur mætt mest á Pólverjum. Sendiherra þeirra á Íslandi segir pólsku þjóðina ætla að standa með Úkraínumönnum gegn ofbeldi Putins allt þar til Úkraínumenn vinni stríðið. Erlent 15.3.2022 21:48
Segja Rússa halda mörg hundruð manns í gíslingu á spítala í Mariupol Rússneskir hermenn eru sagðir halda um fjögur hundruð manns í gíslingu á sjúkrahúsi í Mariupol. Sergei Orlov aðstoðarborgarstjóri segir hermennina hafa rutt sér leið inn í sjúkrahúsið og tekið fólk þar og íbúa í nærliggjandi húsum í gíslingu. Erlent 15.3.2022 21:27
Þúsundir Úkraínumanna snúa til baka í stríðið Þúsundir Úkraínumanna hafa snúið til baka til heimalandsins til að deila örlögum með fjölskyldu sinni og eða taka þátt í stríðinu. Enn hefur ekki tekist að koma hjálpargögnum til stríðshrjáðra í Mariupol og Rússar hertu árásir sínar á Kænugarð síðast liðna nótt. Erlent 15.3.2022 19:21
Rússar skutu almennan borgara sem hafði hendur á lofti til bana Þann 7. mars síðastliðinn skutu rússneskir hermenn almennan úkraínskan borgara til bana þrátt fyrir að hann hafi reitt hendur á loft. Erlent 15.3.2022 18:01
Katrín segir það hafa verið mjög áhrifamikið að heyra beint í Selenskí Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði í Lundúnum í dag með leiðtogum Norðurlanda, Eystrasaltsríkja, Bretlands og Hollands sem mynda Sameiginlegu viðbragðssveitina (e. Joint Expeditionary Force) um stöðuna í Úkraínu. Innlent 15.3.2022 17:00