
Hundar

Þetta þarf að hafa í huga fyrir mataræði hvolpa
Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur, segir hundaeigendur oft bæta gráu ofan á svart með því að skipta um fóður hjá hvolpum sem eigi í magavandræðum.

MAST kærir þrjú tilvik þar sem hundar komu ólöglega til landsins
Matvælastofnun hefur kært þrjú aðskilin tilvik til lögreglu, þar sem ferðamenn fluttu hunda ólöglega inn í landið í farþegarými flugvéla. Ekki komst upp um málin fyrr en ferðamennirnir hugðust innrita sig í flug frá landinu eftir nokkurra daga dvöl.

Krúttlegustu starfsmenn geðdeildar fá ótrúlegasta fólk til að brosa
Sjálfskipaður tveggja kílóa móttökustjóri og ferfættur félagi hans sinna fjölbreyttu meðferðarstarfi á geðdeild Landspítalans. Verkefnin eru allt frá því að veita átröskunarsjúklingum stuðning eftir máltíðir yfir í einstaklingsmiðaðar meðferðir þar sem áherslan er á knús.

Angie Harmon segir matvörusendil hafa drepið hundinn sinn
Leikkonan Angie Harmon sakar matvörusendil frá dreifingarfyrirtækinu Instacart um að hafa skotið hund sinn til bana um helgina.

Góður smalahundur er toppurinn á tilverunni
Það er fátt sem toppar það að eiga góðan smalahund segja þeir sauðfjárbændur, sem fóru með hundana sína á smalahundanámskeið hjá norskum smalahundaþjálfara á Hellu.

Gæludýrin þurfa að ferðast með töskunum
Ekki er lengur heimilt að flytja hunda og ketti til landsins í farþegarými flugvéla.

Ábendingum um aðstoð fyrir Blæsa rigndi yfir fjölskylduna
Ábendingum um aðstoð fyrir nýjasta fjölskyldumeðliminn í fjölskyldu Silju Brá Guðlaugsdóttur, hinum ellefu vikna gamla hvolpi Blæsa, rigndi yfir fjölskylduna eftir að Silja birti mynd af hvolpinum inni á hópi hundaáhugamanna á samfélagsmiðlinum Facebook. Blæsi er heyrnarlaus og sjóndapur vegna erfðagalla.

Hundi bjargað úr sprungu í Hafnarfirði
Björgunarsveit Hafnarfjarðar var boðuð út í dag þegar tilkynnt var um að hundur sem var á göngu með eiganda sínum við Stórhöfðastíg, hefði dottið ofan í þrönga og djúpa sprungu og kæmist hvergi.

Sunneva, Benedikt og nú Rómeó
Sunneva Einarsdóttir, einn liðsmanna LXS-hópsins og samfélagsmiðlastjarna, frumsýndi nýjasta fjölskyldumeðliminn í gær. Um er að ræða hundinn Rómeó.

Sleðahundakeppni og dorgveiði á ís á Mývatni
Það iðar allt af lífi og fjöri í Mývatnssveit um helgina og næstu daga því þar stendur yfir hátíðin, „Vetrarhátíð við Mývatn”. Meðal atriða er sleðahundakeppni, hestar á ís og dorgveiði.

Raya þjálfar hund af bannaðri tegund til að verjast innbrotsþjófum
David Raya, markvörður Arsenal, ætlar að vera tilbúinn ef óprúttnir aðilar reyna að brjótast inn hjá honum.

Forsetahjónin miður sín vegna hundsins sem bítur ítrekað
Commander Biden, fjölskylduhundur Joe Biden Bandaríkjaforseta, er til sífelldra vandræða en 24 atvik hafa verið tilkynnt þar sem hann hefur bitið starfsfólk bandarísku leyniþjónustunnar.

Máttu fjarlægja illa lyktandi hunda með saurugan feld af heimilinu
Matvælastofnun var heimilt að fjarlægja tvo hunda af heimili eiganda síns í júlí á síðasta ári og ráðstafa þeim annað. Þetta er niðurstaða úrskurðar Matvælaráðuneytisins, en eigandinn lagði fram stjórnsýslukæru vegna sviptingarinnar.

Saklaus skinkubiti varð næstum banabiti í Garðabænum
Hundaeiganda í Garðabæ brá verulega í brún þegar fjögurra mánaða papillon hvolpurinn hennar byrjaði að titra í eldhúsinu á föstudag. Í ljós kom að skinkubiti sem litli hvolpurinn fékk að borða hafði valdið eitrunaráhrifum.

Ráðgátan um hundadauðann verður ekki leyst
Rannsókn á dularfullum dauða tíu hunda á Austurlandi var hætt eftir að engar vísbendingar komu fram um hvað varð hundunum að aldurtila.

Fékk SMS í tæka tíð og þarf að kaupa hund
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins þarf að standa við loforð sem hann gaf eiginkonu sinni og dóttur í Kryddsíldinni og kaupa hund á heimilið þar sem þær stóðu við sinn hluta áskorunar. Hann segist örlítið móðgaður yfir því hvað SMS barst seint frá mæðgunum sem er til marks um að þær hafi ekki horft á þáttinn.

Fundu lungnaorm í innfluttum hundi
Lungnaormur greindist í sýni úr hundi sem fluttur var til landsins frá Svíþjóð á síðasta ári. Engin snýkjudýr greindust í hundinum sem tekin voru á meðan hann var í einangrun. Ormurinn virðist ekki hafa smitast í önnur dýr á heimilinu.

Elsti hundur sögunnar sviptur titlinum
Þegar portúgalski fjárhundurinn Bobi drapst í október á síðasta ári var hann talinn vera elsti hundur sögunnar, 31 árs gamall. Nú vilja dýralæknar meina að hann hafi alls ekki verið svo gamall. Hann hefur því verið sviptur titlinum tímabundið.

Unglingur hótaði hópi með hnífi
Talverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal annars var tilkynnt um hóp ungmenna þar sem einn af hópnum hafði ógnað öðrum hópi ungmenna með hnífi í Kópavogi. Ungmennin voru á aldrinum fjórtán til fimmtán ára. Lögregla afgreiddi málið á staðnum þar sem hnífur var haldlagður og tilkynning send á barnaverndarnefnd.

Lét aflífa hvolpinn og fær engar skaðabætur
Hundaræktendur þurfa ekki að endurgreiða konu sem aflífaði veikan hvolp sem hún hafði keypt af þeim. Þar vó þungt að hún ákvað að láta aflífa hvolpinn áður en ítarleg skoðun gat farið fram á honum.

Banna ræktun og slátrun hunda til manneldis
Ný lög hafa verið samþykkt í Suður-Kóreu sem miða að því að binda enda á slátrun og sölu hundakjöts. Markmiðið er að útrýma þeim sið að leggja sér kjötið til munns árið 2027.

Glatað að vera niðurlægður á almannafæri
Má Gunnarssyni og leiðsöguhundi hans var meinaður aðgangur að Langbest í Keflavík vegna stefnu veitingastaðarins um að leyfa ekki gæludýr. Forsvarsmenn Langbest bera fyrir sig vanþekkingu á lögum um leiðsöguhunda og hafa beðið Má afsökunar. Már segir glatað að vera niðurlægður á þennan máta en kann að meta skjót viðbrögð staðarins.

Þakklátur fyrir fagmennsku og góðvild
Sundkappinn söngelski Már Gunnarsson segist gríðarlega ánægður með þjónustu Play í flugi sínu heim til landsins í dag. Hann og hundurinn hans Max voru kampakátir og segja það hafa verið besta flug þeirra til þessa.

Óheimilt verði að fljúga með hunda og ketti í farþegarými
Óheimilt verður að flytja hunda og ketti til landsins í farþegarými flugvéla samkvæmt drögum að breytingu á reglugerð um innflutning hunda og katta.

Smáhundum ætlað að bæta andlega líðan meinað að vera í heimaeinangrun
Innflytjendur tveggja smáhunda sem ætlað var að bæta andlega líðan annars þeirra fá ekki undanþágu til að láta þá vera í heimaeinangrun eftir komuna til landsins. Hundarnir þurfi að dvelja í einangrunarstöðinni Móseli við komuna til landsins líkt og aðrir innfluttir hundar, enda flokkist þeir sem „stuðningshundar“ en ekki sem „hjálparhundar“ sem geta fengið slíka undanþágu.

Hundur forseta beit tiginn gest
Hundur forseta Moldóvu beit forseta Austurríkis Alexander van der Bellen í höndina fyrr í dag. Maia Sandu Moldóvuforseti gekk með gesti sínum um garð forsetabústaðarins í höfuðborginni Kísíná þegar atvikið gerðist, en van der Bellen hafi þar reynt að klappa hundinum sem hafi ekki tekið vel í slíkt.

Áfram í gæsluvarðhaldi: Kryfja smáhund sem fannst í frysti
Kona á fimmtugsaldri, sem grunuð er um að hafa orðið karlmanni að bana í íbúð í Bátavogi í Reykjavík, mun sæta gæsluvarðhaldi til 7. desember næstkomandi. Rannsókn lögreglu krefst þess að smáhundur sem fannst dauður í frysti á vettvangi verði krufinn.

Hundur yfirgaf ekki látinn húsbónda sinn í tíu vikur
Hundur fannst á lífi við hlið látins húsbónda síns í fjöllum Colorado-ríkis í Bandaríkjunum. Þeir höfðu verið týndir tíu vikur, eftir að hafa farið á veiðar.

Um 250 gæludýr enn í Grindavík
Dýraverndarsamtökin Dýrfinna hafa safnað lista með tæplega 250 dýrum sem eru enn í Grindavík. Sjálfboðaliði segir samtökin tilbúin að fara inn í bæinn til að bjarga dýrum um leið og aðstæður leyfa. Samtökin geri sér grein fyrir því að ekki muni öll dýrin koma heil út úr ástandinu.

„Verður hægt að fara heim aftur?“
Grindvíkingarnir Ögn Þórarinsdóttir og Hildur Fjóla Bridde eru í nokkru áfalli eftir að hafa yfirgefið heimili sín í gær. Óvissan er algjör.