Smáralind

Fréttamynd

Verslunin Air lokar í Kringlunni

Verslunin Air, sem sérhæfir sig í skóm og íþróttafatnaði frá Nike, mun loka í Kringlunni. S4S ehf., sem hefur rekið verslunina frá árinu 2017, mun enn reka slíkar verslanir í Smáralind og á Glerártorgi samkvæmt tilkynningu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik

Fjórir nemendur í Borgarholtsskóla hófu nýverið sölu á leiknum Flatir Fletir með það að markmiði að fá fleiri ungmenni til að verja tíma saman úti í sumar. Þeim þykir sorglegt að sumarleikir virðist vera að víkja fyrir inniveru og símanotkun. Þeir hafi viljað fanga þá „sígildu tilfinningu að standa úti á íslenskri fjöru á sumrin og fleyta kerlingar, skemmtun sem verður aldrei þreytt“.

Lífið
Fréttamynd

Sakar minni­hluta um ó­dýra pólitík í að­draganda kosninga

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi segir það alrangt að bæjarstjórn hafi samþykkt að greiða 1,5 milljarð í leigu fyrir Vetrargarðinn í Smáralind þar sem áætlað sé að opna nýja menningarmiðstöð og bókasafn. Ásdís segir leigusamninginn trúnaðarmál en 1,5 milljarða kostnaður taki til rekstrar- og launakostnaðar til næstu tíu ára.

Innlent
Fréttamynd

Opna menningar­miðstöð í Smára­lind

Kópavogsbær og Heimar hf. hafa gert með sér samning um uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Smáralind. Áætluð opnun nýrrar menningarmiðstöðvar er vorið 2027. Samkvæmt svörum frá Kópavogsbæ er heildarrekstrarkostnaðurinn áætlaður rúmar 140 milljónir króna á ári.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bærinn vilji taka hluta Smára­lindar á leigu fyrir 1,5 milljarða

Bæjarstjórn Kópavogs veitti í gær heimild til undirritunar leigusamnings um hluta Smáralindar, sem kallaður hefur verið Vetrargarðurinn, undir verkefnið Menningarmiðstöð í Smáralind. Fulltrúi minni hlutans segir samninginn hljóða upp á 1,5 milljarða króna fyrir tíu ára leigu. Bæjarstjórinn vísar því alfarið á bug.

Innlent
Fréttamynd

Húrra dregur saman seglin

Eigendur tískufataverslunarinnar Húrra Reykjavíkur hafa ákveðið að loka útibúum búðarinnar í bæði Kringlunni og Smáralind til að einbeita sér að versluninni á Hverfisgötu. Stutt er síðan útibúi verslunarinnar í Leifsstöð var lokað.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Opna Lindex þar sem Úti­líf var

S4S hefur undirritað leigusamning við Smáralind um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Rýmið er 675 fermetrar að stærð og er staðsett við hlið Hagkaupa í Smáralind, þar sem Útilíf var áður til húsa.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Opna Laufeyjarverslun fyrir tón­leikana

Á þriðjudaginn mun Sena opna sérstaka Laufeyjarverslun í Smáralindinni í tilefni af stórtónleikum Laufeyjar í Kórnum 14. og 15. mars. Þar verður boðið upp á lifandi tónlist, gjafaleiki og Laufeyjarvarning vikuna fyrir tónleikana.

Tónlist
Fréttamynd

Vínbúðinni í Smára­lind lokað fyrir sumarið

Vínbúð ÁTVR í Smáralind verður lokað fyrir sumarið. Þorgerður Kristín Þráinsdóttir forstjóri segir sölu hafa verið undir væntingum og því verði versluninni lokað. Starfsmönnum verður boðin vinna í öðrum vínbúðum og því verður engum sagt upp.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lindex lokað á Ís­landi

Öllum verslunum Lindex verður lokað í síðasta lagi 28. febrúar.  Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, eigandi Lindex, segir engan missa vinnuna við þessi tímamót og að það séu í gangi viðræður um þau verslunarrými sem Lindex hefur verið rekið í.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Inn­lit í glæ­nýja mathöll í Smára­lindinni

Glæný mjög flott mathöll er komin í Smáralindina og er staðsett á því svæði sem áður gekk undir nafninu Vetrargarðurinn og er meðal annars í nýrri viðbyggingu. Og þar eru veitingastaðir allt frá því að vera skyndibitastaðir og upp í meiri matarupplifun.

Lífið
Fréttamynd

Fimm fá­rán­legar bið­raðir Ís­lendinga

Íslendingar elska að standa og bíða í röð, það hefur margoft sýnt sig. Í hvert sinn sem ný erlend vara eða verslun kemur til landins þá stekkur landinn til og húkir í röð. Nýjasta biðröðin tengdist sölu á Nocco-jóladagatölum í Smáralind síðustu helgi en Íslendingar hafa líka beðið eftir kleinuhringjum, strigaskóm og ýmsu öðru.

Menning
Fréttamynd

Gríðar­lega löng röð í verslun Nocco

Gríðarlega löng röð hefur myndast fyrir utan tímabundna verslun Nocco í Smáralind. Fyrstu einstaklingarnir mættu klukkan hálf átta í morgun í von um að festa kaup á jóladagatali orkudrykkjasalans.

Lífið
Fréttamynd

Strákarnir úr Benja­mín dúfu sam­einuðust á ný

Strákarnir sem léku aðalhlutverkin í kvikmyndinni Benjamín dúfu – þeir Sturla Sighvatsson, Gunnar Atli Cauthery, Sigfús Sturluson og Hjörleifur Björnsson – hittust í Smárabíói í kvöld þegar kvikmyndin var tekin til sýninga á ný, þrjátíu árum eftir frumsýningu árið 1995.

Lífið
Fréttamynd

Verðmerkingum 49 verslana á­bóta­vant

Neytendastofa framkvæmdi nýverið skoðun á ástandi verðmerkinga hjá 142 verslunum og þjónustuveitendum í Kringlunni og Smáralind. Gerðar voru athugasemdir við verðmerkingar í 49 verslunum, þar sem ástandi verðmerkinga var ábótavant. Sjö fyrirtæki hlutu sektir fyrir að gera ekki úrbætur á verðmerkingum.

Neytendur
Fréttamynd

Vatnslögn í sundur í Smára­lind

Slökkviliðið var kallað út á tíunda tímanum í morgun vegna vatnsleka í Smáralind, og voru tveir dælubílar sendir á vettvang. Umsjónarmaður Smáralindar segir að ekkert stórtjón hafi orðið, allar verslanir hafi opnað í morgun nema ein.

Innlent
Fréttamynd

Stækka Smárabíó og bæta við þrettán veitinga­stöðum í Smára­lind

Bæta á tveimur bíósölum við Smárabíó og uppfæra skemmtisvæði bíósins. Á sama tíma er unnið að endurnýjun og fjölgun veitingastaða í austurenda Smáralindar. Gert er ráð fyrir því að þrettán nýir veitingastaðir bætist við þar. Nýir bíósalir opna í haust. Í Smárabíó eru fyrir fimm bíósalir sem rúma um þúsund manns samanlagt.

Viðskipti innlent