
KR

Vill vera jafn iðinn við kolann og Olga Færseth
Eyþór Aron Wöhler skrifaði á dögunum undir þriggja ára samning við Bestu deildar lið KR. Hann er stoltur yfir því að fá tækifæri til þess að spila fyrir þetta sögufræga félag og vill leggja lóð sitt á vogaskálarnir til að rita nýjan og glæstan kafla í Vesturbænum.

KR-ingar meira en tíu klukkutímum fljótari í sjö mörkin í ár
Benoný Breki Andrésson innsiglaði sigur KR í Garðabænum í Bestu deild karla í fótbolta á föstudagskvöldið en Vesturbæjarliðið er með fullt hús og sjö mörk eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Sjáðu þrennu Viktors og vítavörsluna sem bjargaði Val
Viktor Jónsson skoraði fyrstu þrennu Bestu deildar karla í fótbolta í sumar í gær og Frederik Schram varð fyrstur til að verja vítaspyrnu í sumar. Nú er hægt að sjá mörkin og vítavörsluna hér inn á Vísi.

Eyþór Aron genginn í raðir KR
KR hefur staðfest komu framherjans Eyþórs Arons Wöhler og mun hann leika með liðinu næstu þrjú árin.

Eyþór Wöhler á leið í KR
Framherjinn Eyþór Aron Wöhler er á leið í KR samkvæmt öruggum heimildum Vísis.

„Þetta var ekki fallegt“
Axel Óskar Andrésson skoraði í kvöld sitt fyrsta mark í Bestu deildinni í aðeins sínum öðrum leik fyrir KR.

Uppgjörið: Stjarnan - KR 1-3 | KR-ingum tókst loks að vinna fyrstu tvo
KR hrósaði 3-1 sigri þegar þeir heimsóttu Stjörnuna í Garðabæ í annarri umferð Bestu deildar karla. Allt stefndi í jafntefli en tvö mörk undir lokin tryggðu KR annan sigurinn í jafnmörgum leikjum, fyrsta sinn síðan 2013 sem það tekst.

Meira en áratugur síðan KR byrjaði mótið á tveimur sigurleikjum
Gregg Ryder getur í kvöld tekist það sem engum þjálfara hjá KR hefur tekist undanfarin ellefu ár.

KR-ingar líta í kringum sig: „Þetta er mikill skellur“
Gregg Ryder, þjálfari karlaliðs KR í fótbolta, segir vonbrigði að missa tvo kantmenn liðsins í meiðsli. Þetta sé tækifæri fyrir aðra að stíga upp og þá útilokar hann ekki styrkingu á hópnum í ljósi þessa.

Fjölnota íþróttahús KR á leið í útboð
Borgarráð hefur samþykkt að heimila umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur að hefja útboðsferli vegna byggingar á nýju fjölnota íþróttahúsi KR við Frostaskjól, sem mun bæta æfingaaðstæðu mjög fyrir iðkendur á öllum aldri. Húsið verður alls um 6700 fermetrar og þar af er íþróttasalur um 4400 fermetrar.

Dýrast að sjá Gylfa eða vera seinlátur Vesturbæingur
Gríðarlegur áhugi var á fyrstu umferð tímabilsins í Bestu deild karla í fótbolta og vel mætt á leikina. Það getur þó kostað allt að 3.500 krónur að fá miða á völlinn.

Hjálpaðu Körfuboltakvöldi við að velja besta lið sögunnar
Subway Körfuboltakvöld hefur verið að leita að besta liði körfuboltasögunnar í allan vetur og nú er komið að úrslitum.

Gummi Ben fékk að heyra það fyrir spá sína um KR
Aron Sigurðarson spilaði aðeins í rúmar 25 mínútur í fyrsta leik sínum með KR í Bestu deildinni um helgina því hann varð að fara meiddur af velli snemma í leiknum á móti Fylki.

Á leið í segulómun vegna meiðslanna í Lautinni
Hrafn Tómasson, betur þekktur sem Krummi, kom inn af varamannabekk KR þegar liðið vann Fylki 4-3 í 1. umferð Bestu deildar karla. Hann entist þó ekki lengi þar sem hann varð fyrir meiðslum á hné.

„Kemur mér ekkert á óvart, það eru fullt af mörkum í þessu liði“
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, gaf ekki kost á sér í viðtal í eftir leik Fylkis og KR í kvöld. Rúnar var verulega ósáttur við dómara leiksins og fékk rautt spjald undir lokin.

„Þetta var ruglaður fótboltaleikur“
Gregg Ryder, þjálfari KR, var kampakátur í leikslok eftir 3-4 sigur KR gegn Fylki í Árbænum nú í kvöld.

„Við fórum mögulega smá í svona krúskontról á slæman hátt“
Atli Sigurjónsson, leikmaður KR, var að vonum sáttur eftir dramatískan 4-3 sigur KR gegn Fylki í Árbænum nú í kvöld.

Uppgjörið: Fylkir - KR 3-4 | Markaveisla í Árbænum
KR fór í heimsókn í Árbæ þar sem liðið mætti Fylki í fyrstu umferð Bestu deildar karla. Lokatölur 3-4 fyrir gestina í hreint út sagt ótrúlegum leik.

Aron klár í slaginn í kvöld
Aron Sigurðarson verður líklega í byrjunarliði KR sem hefur leik í Bestu deild karla gegn Fylki í kvöld. Minniháttar meiðsli plöguðu hann á dögunum en hann hefur æft á fullu í vikunni.

„Velkomnir aftur KR!“
Atli Viðar Björnsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir aukin umsvif KR á félagaskiptamarkaðnum minna á gamla tíma.

Besta-spáin 2024: Minnir á gamla tíma
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KR 5. sæti Bestu deildar karla í sumar.

„Öll félög á Íslandi vilja KR í efstu deild“
KR tryggði sér í gær sæti í Subway-deild karla í körfubolta á næstu leiktíð en gengið hefur á ýmsu í Vesturbænum síðustu misseri. Skýr sýn var hjá félaginu fyrir leiktíðina og hún skilaði sér.

KR aftur í deild þeirra bestu eftir stórsigur
KR hefur unnið sér inn sæti í Subway-deild karla í körfubolta á næstu leiktíð. Sætið var endanlega tryggt með gríðarlega öruggum útisigri á Ármanni í kvöld þegar lokaumferð deildarkeppninnar fór fram.

Leikið fyrir Píeta í Vesturbænum
Körfuknattleiksdeild KR stendur fyrir sérstökum styrktarleik fyrir Píeta samtökin er liðið mætir ÍA í 1. deild karla í körfubolta í Frostaskjóli í kvöld.

Mættur í stærsta félag Íslands og vill hjálpa KR að vinna titla
„Að fá að spila fyrir stærsta félag Íslands. Flestir titlar, sagan segir sitt. Ég er mjög sáttur að vera kominn hingað,“ sagði Axel Óskar Andrésson, nýjasti leikmaður KR í Bestu deild karla í knattspyrnu. Hann var eftirsóttur en valdi á endanum KR og stefnir á að sýna landi og þjóð hvað hann getur í sumar.

Þórsarar í undanúrslit á kostnað KR
KR-ingar þurftu hálfgert kraftaverk til að velta Þór úr sessi í efsta sæti riðils liðanna í A-deild Lengjubikars karla í fótbolta. Þeir náðu hins vegar aðeins jafntefli í lokaleik sínum í kvöld, 1-1 gegn Stjörnunni.

Axel Óskar orðinn leikmaður KR
Varnarmaðurinn Axel Óskar Andrésson hefur samið við KR um að leika með félaginu í Bestu deild karla í sumar. Axel kemur til liðsins frá Örebro í Svíþjóð.

Væri ekkert vesen ef rétt væri staðið að hlutunum
Vallarstjóri KR á Meistaravöllum, Magnús Valur Böðvarsson, fylgist náið með langtíma veðurspánni og vonar að marshretið haldi sig fjarri Vesturbænum. Það styttist í að flautað verði til leiks í Bestu deild karla og er Magnús þokkalega bjartsýnn á að heimavöllur KR verði leikfær fyrir fyrsta heimaleik liðsins.

KR að landa öflugum liðsstyrk
KR-ingar eru svo gott sem búnir að landa miðverðinum Axel Óskari Andréssyni sem þar með snýr heim til Íslands úr atvinnumennsku.

Úr Vesturbænum í Krikann
Sigurður Bjartur Hallsson er genginn í raðir FH frá KR. Hann mun því leika með liðinu í Bestu deild karla næsta sumar.