Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Koma á útgöngubanni eftir fyrsta samfélagssmitið síðan í febrúar
Stjórnvöld á Nýja-Sjálandi hafa ákveðið að koma á útgöngubanni alls staðar í landinu eftir að einn maður greindist með kórónuveiruna í borginni Auckland.

Vinnuveitendur geti sagt upp starfsfólki sem hafnar bólusetningu
Vinnuveitendur á almennum vinnumarkaði geta ekki skyldað starfsfólk til þess að undirgangast bólusetningu. Þeir geta þó ákveðið að segja upp starfsfólki sem hafnar bólusetningu.

Sveitarfélögin setji leiðbeiningar um frekari takmarkanir innan skólastarfs
Í dag voru tæplega 400 börn í sóttkví vegna smita sem komu upp á leikskólum og frístundaheimilum. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur vinnur nú að leiðbeiningum í samstarfi við önnur sveitarfélög og Almannavarnir til að fækka smitum innan skóla og frístundaheimila.

Þrír Vestramenn smitaðir og allt liðið í sóttkví
Þrír úr liði Vestra á Ísafirði, sem leikur í Lengjudeild karla, hafa greinst með kórónuveiruna. Allir leikmenn liðsins, auk þjálfarateymis, eru því komnir í sóttkví.

„Hvað gerðist á Íslandi?“
„Hvað gerðist á Íslandi?“Þessari spurningu er velt upp í nýrri umfjöllun Washington Post um stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi.

Börn í borginni mæta í bólusetningu eftir viku
Bólusettir farþegar sem búa hér á landi eða hafa tengsl við Ísland þurfa frá og með deginum í dag að fara í sýnatöku innan tveggja sólarhringa frá komu til landsins. Þá hófust bólusetningar að nýju í Laugardalshöll í morgun þar sem örvunarsprautur eru í boði. Börn á höfuðborgarsvæðinu á aldrinum 12-15 ára mæta í Laugardalshöll á mánudag og þriðjudag í næstu viku.

Ekki von á róttækum breytingum á reglum um sóttkví
Sóttvarnalæknir segir smitaða ferðamenn frá Ísrael auka álagið á heilbrigðiskerfið en þrjátíu Ísraelar hafa greinst hér á landi og er að minnsta kosti einn þeirra alvarlega veikur af Covid-19. Hann ætlar að byggja nýtt minnisblað til heilbrigðisráðherra á formlegu erindi sem hann býst við frá Landspítalanum á næstu dögum. Hann á ekki von á róttækum breytingum hvað varðar reglur um sóttkví.

Yfirlæknarnir vilja óþvingað tjáningar- og skoðanafrelsi
Stjórn Samtaka yfirlækna á Landspítalanum sendu á föstudag frá sér yfirlýsingu þar sem þeir kölluðu eftir því að framkvæmdastjórn Landspítalaháskólahúss tæki af öll tvímæli um stöðu stjórnenda þegar kæmi að opinberri umræðu um heilbrigðismál og starfsemi spítalans.

Á annað hundrað í sóttkví eftir smit í dansbúðum á Laugarvatni
Tveir nemendur sem tóku þátt í sumarbúðum Chantelle Carey á Laugarvatni í síðustu viku greindust smitaðir með Covid-19. Fyrir vikið eru á annað hundrað börn og kennarar komnir í sóttkví.

Minnst 55 greindust innanlands í gær
Í gær greindust minnst 55 einstaklingar innanlands með Covid-19. Þar af voru 28 í sóttkví eða tæpur meirihluti. Ef um lokatölur er að ræða er þetta í fyrsta sinn frá 31. júlí sem meirihluti nýgreindra var í sóttkví við greiningu og í annað sinn frá því að fjórða bylgja faraldursins hófst.

Hefðu átt að fjölga gjörgæslurýmum í fyrstu bylgjunni
Heibrigðisyfirvöld hefðu átt að nýta meðbyr í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins til þess að fjölga gjörgæslurýmum sem eru of fá á Landspítalanum, að mati Tómasar Guðbjartssonar, hjartaskurðlæknis.

Þrjátíu ísraelskir ferðamenn sagðir hafa greinst með Covid-19
Minnst þrjátíu ísraelskir ferðamenn sem staddir eru hér á landi hafa greinst með Covid-19. Nokkrir þeirra voru fluttir á ótilgreint sjúkrahús eftir að líðan þeirra versnaði. Einn ferðamannanna er sagður vera alvarlega veikur og tveir með vægari einkenni.

Þjóðverjar ráðast í bólusetningar barna
Þýska bólusetningarráðið, sem hefur fram að þessu mótað stefnu Þjóðverja í málaflokknum, hefur mælt með að ráðist verði í bólusetningar 12-17 ára. Ávinningurinn vegur þyngra en mögulegir ókostir, segir ráðið.

Bólusettir með tengsl við Ísland þurfa nú í sýnatöku eftir komu til landsins
Bólusettir farþegar og þau sem hafa vottorð um fyrri sýkingu með tengsl við Ísland þurfa frá og með deginum í dag að fara í sýnatöku innan tveggja sólarhringa frá komu til landsins. Börn fædd 2005 og síðar eru undanskilin nýjum reglum.

Reikna með að gefa um tíu þúsund skammta í dag
Bólusetningar í Laugardalshöll í Reykjavík verða teknar upp á ný eftir sumarfrí í dag. Bólusett verður næstu fjóra daga milli klukkan 10 og 15.

Fjöldi spítalainnlagna aðaláhyggjuefnið
„Það sem er leiðinlegt við þetta er hvað útbreiðslan hefur verið mikil þrátt fyrir allt. Þess vegna erum við að fá svona marga inn á spítalann. Það er aðaláhyggjuefnið núna, það er fjöldinn inni á spítala og sérstaklega fjöldinn sem þarf að leggjast inn á gjörgæslu. Það er stóra málið.“ Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við umsjónarmenn Bítisins á Bylgjunni í morgun.

Trudeau boðar til kosninga á undan áætlun
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, boðaði til þingkosninga þegar tvö ár eru enn eftir af kjörtímabilinu í gær. Réttlætti hann ákvörðun sína með því að þjóðin þyrfti að fá að segja hug sinn um hvernig ætti að ljúka baráttunni gegn kórónuveirufaraldurinn.

Eyddi brúðkaupsdeginum í einangrun
Þau Íris Rós Ragnhildardóttir og Árni Beinteinn Árnason gátu ekki haldið draumabrúðkaupið sitt, eins og til stóð að gera í gær. Íris greindist með kórónuveiruna nokkrum dögum fyrir stóra daginn og er því reglum samkvæmt í einangrun.

Telur að laða þurfi menntaða heilbrigðisstarfsmenn aftur til starfa
Þingmaður Samfylkingarinnar segir að ríkisstjórninni hafi fatast flugið í að fjármagna heilbrigðiskerfið og fjölga starfsfólki innan þess. Hún segir ekki hægt að ætlast til þess að heilbrigðisstarfsfólk hlaupi sífellt hraðar, þegar álagið eykst.

Mælir með bólusetningu þrátt fyrir að liggja lömuð á Landspítalanum
Hin nítján ára gamla Tinna Katrín Owen lamaðist fyrir neðan mitti eftir örvunarskammt af bóluefninu Moderna. Læknar telja þó að lömunin sé aðeins tímabundin. Atvikið hefur ekki haft áhrif á viðhorf Tinnu sem hvetur alla til þess að láta bólusetja sig.

Kannast ekki við skyndilega lömun ungrar konu eftir bólusetningu
Í gær birtist myndband á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem ung kona segir frá því að hafa lamast fyrir neðan mitti í kjölfar örvunarbólusetningar með bóluefni Moderna. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segist í samtali við fréttastofu ekki hafa heyrt af málinu. Tilkynning um það gæti þó átt eftir að berast.

Minnst 64 greindust innanlands í gær
Í gær greindust að minnsta kosti 64 innanlands með Covid-19, þar af 38 utan sóttkvíar. Alls liggur 31 sjúklingur inni á Landspítala og hefur þeim því fjölgað um einn frá því í gær. Sex eru á gjörgæslu með Covid-19 og hefur þeim fækkað um einn frá því í gær.

Hellisbúi nýjasti talsmaður bólusetninga
Rúmlega sjötugur Serbi sem búið hefur í helli undanfarin ár ratar nú í heimsfréttirnar fyrir eindregna hvatningu sína til samlanda sinna að láta bólusetja sig. Hann átti erindi til byggða fyrir skemmstu, heyrði þar af Covid-19 og lét slag standa og fékk bóluefni.

Leiðarar úr leið
Leiðarar stærstu dagblaða landsins sl. sólarhring valda miklum vonbrigðum - og sýna vanmat á því ástandi sem skapast hefur vegna Covid-19 á Íslandi. Leiðarahöfundar virðast telja að bólusetning flestra fullorðinna hérlendis þýði að „alvarleg veikindi séu sjaldgæf“ og „verndi okkur nær algjörlega við ótímabærum dauðdaga“. Þetta stenst ekki skoðun.

Einn lagður inn á Akureyri með Covid-19
Í gær var einstaklingur lagður inn á Sjúkrahúsið á Akureyri með Covid-19 og er hann sá fyrsti til þess að vera lagður inn á sjúkrahúsið þar í þessari bylgju faraldursins.

Styrkir Landspítalann fyrir hverja neikvæða athugasemd um sjálfan sig
Athafnamaðurinn og áhrifavaldurinn Nökkvi Fjalar Orrason ætlar að styrkja Landspítalann um 118 þúsund krónur. Það eru þúsund krónur fyrir hvert neikvætt tvít sem hefur verið skrifað um hann síðastliðna viku.

Hátt í fjögur hundruð börn í sóttkví eftir vikuna
Hátt í fjögur hundruð börn hafa verið send í sóttkví í þessari viku vegna leikskóla- eða frístundastarfs. Flestir leikskólar eru nýteknir til starfa á ný eftir sumarfrí. Grunnskólar hefja göngu sína á næstu dögum og má því ætla að enn fleiri börn eigi eftir að lenda í sóttkví á næstu vikum.

Peninga til spítalans strax
Logi Einarsson og Helga Vala Helgadóttir telja að stjórnvöldum beri að auka fjárveitingar til sjúkrahúsa ekki seinna en núna, til þess að bregðast við erfiðri stöðu þeirra vegna Covid-19. Bæði segja þau að kosið verði um framtíð heilbrigðisþjónustu í september.

„Ég yrði mjög fljótur að henda inn tillögum“
Fari svo að Landspítalinn lýsi yfir neyðarástandi vegna álags, yrði sóttvarnalæknir fljótur að skila inn tillögum að hertum sóttvarnaráðstöfunum innanlands og minnir á að fækkun smitaðra í samfélaginu taki minnst tvær vikur að skila sér með tilliti til álags á spítalann.

Allur leikskólinn sendur í sóttkví
Öll börn og allt starfsfólk leikskólans Álftaborg í Safamýri í Reykjavík hafa verið send í sóttkví eftir að smit kom upp hjá einum starfsmanni leikskólans.