
Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Efasemdarmönnum gengur hægt að safna undirskriftum
Meiri gangur er í atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í aðdraganda þingkosninga en á sama tíma við síðustu kosningar. Nýju stjórnmálahreyfingunni Ábyrgri framtíð gengur hægt að safna undirskriftum, en á meðal stefnumála hennar er að nota óhefðbundin lyf við Covid-19.

Norður-Kórea afþakkar kínverskt bóluefni
Norður-Kórea hefur afþakkað þrjár milljónir bóluefnaskammta gegn Covid-19 frá kínverska lyfjarisanum Sinovac. Norðurkóresk stjórnvöld segja að frekar eigi að senda bóluefnaskammtanna til landa þar sem staðan vegna veirunnar er alvarleg.N

Enginn á gjörgæslu vegna Covid-19
Af þeim tíu sjúklingum sem nú liggja inni á Landspítalanum vegna Covid-19 er enginn á gjörgæslu.

Fangavörður á Litla-Hrauni greindist smitaður
Fangavörður á Litla-Hrauni greindist smitaður af kórónuveirunni í fyrrakvöld. Hann er nú í einangrun og hafa tveir fangaverðir til viðbótar verið sendir í sóttkví.

Tóku þátt í herferð um framlínufólk í heimsfaraldri en enduðu í sóttkví
Allir sem tóku þátt í myndatöku fyrir nýja herferð Bandalags háskólamanna, Læknafélags Íslands og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga enduðu í sóttkví eftir að einn þátttakenda greindist smitaður af kórónuveirunni. Herferðinn fjallar um mikilvægi háskólamenntaðra í heimsfaraldri, fólks sem staðið hefur framlínuvakt á tímum Covid.

Grímuskyldan afnumin í Bónus
Frá og með deginum í dag verður ekki grímuskylda í verslunum Bónus. Framkvæmdastjóri Bónus segist finna fyrir mikilli grímuþreytu meðal almennings.

67 greindust smitaðir í gær
Síðasta sólarhringinn greindust 67 smitaðir af kórónuveirunni innanlands. Af þeim voru 38 í sóttkví þegar þeir greindust smitaðir en 29 var utan sóttkvíar.

Börn sem ættu að sleppa við sóttkví þurfa samt í sóttkví vegna undirbúningsleysis
Foreldrar eru margir í óvissu vegna nýrra leiðbeininga um sóttkví barna. Þar er gert ráð fyrir að börn sem ekki eiga í nánum samskiptum við hinn smitaða geti farið tvisvar í hraðpróf og sloppið við sóttkví. Ekkert hraðpróf hefur hins vegar enn verið tekið í þessu skyni.

Hraðprófin millileikur í átt að eðlilegra samfélagi
Nýjar reglur um 500 manna viðburði gegn hraðprófum taka gildi á föstudag en yfirvöld hafa ekki enn klárað útfærslu á þeim. Stefnt er að því að framkvæmd þeirra verði komin á fullan skrið um miðjan september mánuð.

Krónan afnemur grímuskyldu
Krónan mun afnema grímuskyldu í verslunum sínum á morgun, 1. september. Telja forsvarsmenn keðjunnar að viðskiptavinum og starfsfólki sé nú treystandi til að meta sjálft hvort þörf sé á grímu.

Flugfélögin ekki skyldug til að synja íslenskum ríkisborgurum um heimför skorti þá gögn
Íslendingar geta frá og með morgundeginum ferðast til útlanda án þess að eiga hættu á að festast þar skorti þá vottorð við heimför til Íslands. Nýjar leiðbeiningar Samgöngustofu skylda ekki flugfélög til að synja Íslendingum um heimför séu þeir ekki með öll gögn.

Skipar nefnd sem tekur út viðbrögð stjórnvalda við faraldrinum
Þriggja manna nefnd hefur verið skipuð af forsætisráðherra sem vinna mun úttekt á viðbrögðum stjórnvalda við Covid-19. Meginverkefni nefndarinnar verður að greina áfallastjórnun vegna faraldursins.

Heill bekkur í læknadeild kominn í sóttkví
Heill bekkur í læknadeild við Háskóla Íslands er kominn í sóttkví og losnar ekki fyrr en næstkomandi mánudag. Þar til mun allt nám fara fram í fjarnámi.

Metfjöldi smita greinist í Ísrael
Alls greindust 10.947 með Covid-19 í Ísrael síðastliðinn sólarhring en um er að ræða metfjölda greininga á einum degi í landinu. Mest höfðu 10.118 greinst smitaðir á einum degi þann 18. janúar síðastliðinn.

Tíu í sóttkví í stað heillar unglingadeildar
Yfirstandandi Covid-bylgja er í hægri rénun á þessari stundu, að sögn staðgengils sóttvarnalæknis. Slakari kröfur um sóttkví eru að taka gildi í skólum landsins og mun færri eru sendir í sóttkví eftir hvert smit.

Að minnsta kosti 80 greindust smitaðir af veirunni í gær
Síðasta sólarhringinn greindust 80 smitaðir af kórónuveirunni innanlands. Af þeim voru 43 í sóttkví þegar þeir greindust smitaðir en 37 var utan sóttkvíar.

Innilokaður í tíu daga en hélt lífi í vonum KR: „Ekki planið að ég spilaði“
Eftir að hafa verið lokaður inni í eigin húsnæði í tíu daga á meðan hann jafnaði sig af kórónuveirusmiti fékk Kristinn Jónsson óvænt að koma inn á í leik KR gegn Leikni í fyrradag. Hann var ekki ryðgaðri en svo að hann skoraði bæði mörk KR í afar dýrmætum 2-1 sigri í Pepsi Max-deildinni í fótbolta.

Allir óbólusettir og hálfbólusettir velkomnir í bólusetningu
Í þessari viku og næstu geta allir óbólusettir og hálfbólusettir einstaklingar 12 ára og eldri með íslenska kennitölu mætt í bólusetningu að Suðurlandsbraut 34. Bólusett er frá kl. 10 til 15 alla virka daga, með bóluefnunum frá Pfizer, Moderna og Janssen.

Óska eftir kælibílum til að anna umframeftirspurn hjá útfararstofum og líkhúsum
Yfirvöld í tveimur sýslum í Oregon í Bandaríkjunum hafa óskað eftir flutningabifreiðum með kæligeymslum til að höndla þann fjölda líka sem nú safnast upp á sjúkrahúsum, útfararstofum og líkbrennslum.

Líffæraflutningum hefur fækkað verulega í Covid-faraldrinum
Líffæraflutningum hefur fækkað verulega í Covid-19 faraldrinum en mismikið eftir löndum. Þeim fækkaði til að mynda um tæp 10 prósent í Kanada árið 2020 en um tæp 67 prósent í Japan.

Hraðpróf stytta hvorki sóttkví né einangrun
Neikvætt hraðpróf fyrir Covid-19 styttir hvorki sóttkví né einangrun. Borið hefur á misskilningi um það samkvæmt tilkynningu frá Embætti landlæknis.

Eru uggandi eftir fyrstu smithrinu síðan grunnskólarnir hófust
Smituðum grunnskólabörnum fjölgaði mjög um helgina þegar börn og starfsfólk í um þrjátíu skólum, leikskólum og frístundaheimilum á landinu greindust með veiruna.

Staðan í barnavernd enn þung á öðru ári Covid
Frá árinu 2015 hefur verið stöðug aukning í tilkynningum til Barnaverndar Reykjavíkur. Fjölgun tilkynninga tók svo stökk á árinu 2020 þegar tilkynningar fóru í fyrsta skipti yfir 5000. Árið 2020 voru tilkynningarnar 5316 talsins, sem er 14% fjölgun frá því árið 2019, þegar þær voru 4677.

46 greindust smitaðir af veirunni í gær
Síðasta sólarhringinn greindust 46 smitaðir af kórónuveirunni innanlands. Af þeim voru 25 í sóttkví þegar þeir greindust smitaðir en 21 var utan sóttkvíar.

Fyrsta dauðsfallið á Nýja-Sjálandi sem tengt er bóluefninu frá Pfizer
Yfirvöld á Nýja-Sjálandi hafa tilkynnt um fyrsta dauðsfallið sem er talið tengjast bólusetningu með Covid-19 bóluefninu frá Pfizer. Eftirlitsnefnd segir konuna líklega hafa látist af völdum hjartavöðvabólgu í kjölfar bólusetningar.

Á leið í útrás en allt hófst þetta í háskólanum
„Við fórum af stað sem ungt teymi með ýmislegt ólært. Okkur vantaði meiri breidd í hópinn og höfðum ekki nægilega mikla þekkingu í sölu- og markaðstengdum málum, þar af leiðandi lentum við í byrjunarörðugleikum við að koma vörunni á markað. Þá tók við erfitt tímabil þar sem við misstum gott fólk frá okkur,“ segir Aðalheiður Hreinsdóttir framkvæmdastjóri og einn stofnenda LearnCove. „Þessum tíma fylgdi þó mikill lærdómur og við erum reynslunni ríkari ásamt því að hafa bætt við okkur öflugum einstaklingum í sölu- og markaðshliðinni. Við erum virkilega ánægð með breidd hópsins í dag og hversu vel hann nær saman,“ segir Aðalheiður.

Tugir í sýnatöku eftir að tveir nemendur greindust smitaðir á Ísafirði
Tveir nemendur í 1. bekk Grunnskólans á Ísafirði greindust smitaðir af kórónuveirunni og hafa tugir verið sendir í sýnatöku og sóttkví vegna þess. Engir fleiri hafa greinst smitaðir í þeim hraðprófum sem hafa verið tekin í dag.

51 greindist innanlands, minnihluti í sóttkví
Síðasta sólarhringinn greindist 51 smitaður af kórónuveirunni innanlands. Af þeim voru tuttugu í sóttkví þegar þeir greindust smitaðir en 31 var utan sóttkvíar.

Andlát vegna Covid-19
Karlmaður á áttræðisaldri lést eftir baráttu við Covid-19 á Landspítalanum í gær.

Nemendur smitaðir í fjórum grunnskólum
Kórónuveirusmit hafa verið greind í nemendum í fjórum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu, þremur í Reykjavík og einum í Mosfellsbæ.