Innflytjendamál

Ætla að sækja fleiri fjölskyldur frá Gasa
Þrjár íslenskar konur sem sóttu í gær fjölskyldu, með dvalarleyfi á Íslandi, og fluttu frá Gasasvæðinu og yfir til Egyptalands ætla að halda áfram að bjarga börnum af svæðinu á meðan íslensk stjórnvöld funda um ástandið. Solaris samtökin hafa efnt til söfnunar til að koma fólki frá svæðinu.

Íslenskar konur sóttu fjölskyldu frá Gasa: „Drengirnir voru þreyttir og sögðu lítið“
„Þetta er ekki svona flókið, og ef þetta er svona flókið, hvernig fórum við þá að þessu? Þetta er enginn ómöguleiki,“ segir rithöfundurinn Bergþóra Snæbjörnsdóttir, sem er nú stödd í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, þar sem hún tók á móti fjögurra manna fjölskyldu frá Gasa í dag.

„Getum einfaldlega ekki haldið áfram í einhverri blindni“
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra segir dagaspursmál um að ráðherranefndin og ríkisstjórnin komist til botns í umræðu sinni um málefni hælisleitenda og geti því myndað sér nýja stefnu í málaflokknum. Hann segir að það gæti gerst innan skamms að Ísland fari að bjarga fólki, en segist óttast að innviðir landsins springi.

Erfitt að sjá barnið sitt eiga í erfiðleikum með tungumálin sín
Hjónin Alondra Silva Munoz og Helgi Þorsteinsson Silva gáfu nýlega saman út bókina Töfrandi fjöltyngdur heimur Áka Tahiel. Þau sóttu innblástur að bókinni í sitt eigið líf og til sonar síns sem er á þriðja aldursári og talar þrjú tungumál, íslensku, spænsku og ensku.

Innsömun er orð dagsins
Ég sá í dagskrárkynningu hjá RUV að velt var upp spurningunni hvað orðið inngilding stæði fyrir. Og svarið var að það væri þýðing á orðinu inclusion í ensku. RUV verður með þátt sem hefur verið kynntur á dagskrá að kvöldi þriðjudagsins 6. febrúar nk. og þar á að fjalla um mál innflytjenda.

Sammála um að umræðan hafi harðnað
Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, eru sammála um að umræðan um innflytjendamál hafi harðnað undanfarið. Þær ræddu um málaflokkinn í Sprengisandi á Bylgjunni í dag.

Samfélagið hafi ekki efni á að halda menntuðu fólki í láglaunastörfum
Ótækt er að íslenskt samfélag haldi innflytjendum með mikla menntun í láglaunastörfum út af of þungri stjórnsýslu. Þetta segir háskólaráðherra sem hefur kynnt fyrsta skrefið í átt að einfaldara leyfisveitingakerfi.

Við þurfum innflytjendastefnu
Í gær bárust fréttir af því að félags- og vinnumarkaðsráðherra hefði lagt til hliðar vinnu við innflytjendastefnu, eða “þingsályktun um stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks” sem hann stefndi að að leggja fram á vorþinginu.

„Við rekum atvinnugreinar sem við sjálf viljum ekki taka þátt í“
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist ekki geta borið ábyrgð á öllu sem Samfylkingin hefur gert sögulega. Hún segir áríðandi að gæta að mannúð og sanngirni í útlendingamálum á sama tíma og send séu skýr skilaboð um stjórn á landamærum. Kristrún ræddi þetta, og annað, í Bítinu í morgun.

Tæplega fimmtungur þjóðarinnar erlendir ríkisborgarar
Tæplega fimmtungur landsmanna sem búsettur er hér á landi er af erlendu bergi brotinn. Þetta sýna nýjar tölur Þjóðskrár sem miðast við 1. desember síðastliðinn.

Varlega skal farið í að „skipta um þjóð í þjóðinni“: Fyrri saga
Þegar ég var við nám í Svíþjóð 1976 til 1979.

Sögurnar í fyrra: Því lífið er svo miklu meira en bara vinnan
Við upplifum mörg mikla ástríðu fyrir vinnunni okkar. En vitum að lífið er svo miklu meira en vinnan. Viðtölin í Atvinnulífinu taka mið af þessu og þar er mannlega hliðin því alltaf í fyrirrúmi. Enda eru þessi viðtöl vel lesin.

Rétturinn til íslenskunnar
Íslenska á undir högg að sækja og ástæður þess eru margar. Íbúar landsins sækja til að mynda í auknum mæli í afþreyingarefni á ensku, svo sem á streymisveitum, í tölvuleikjum og á samfélagsmiðlum.

Veit oftast hvenær íbúar á Höfn eiga afmæli
Eigandi blóma- og gjafavörubúðar á Höfn í Hornafirði reynir að passa alltaf upp á að vita hvenær íbúar svæðisins eiga afmæli því þá á hún von á brosandi fólki inn í búðina til að versla fyrir afmælisbarnið. Þá er sérstök grös fyrir ketti mjög vinsæl í búðinni.

Ríkið greiði borginni rúmlega 3,3 milljarða
Ríkið hefur verið dæmt til að greiða Reykjavíkurborg tæplega 3,4 milljarða króna vegna ógreiddra framlaga þess fyrrnefnda úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Tuttugu hlutu ríkisborgararétt á síðasta þingfundinum
Alþingi veitti tuttugu manns ríkisborgararétt í dag, á síðasta þingfundi fyrir jól. Flestir þeirra koma frá Íran. Fimmtíu greiddu atkvæði með frumvarpinu og enginn gegn því.

Atvinnuleitendur af erlendum uppruna með íslenskukennslu í símanum
Vinnumálastofnun hefur hafið innleiðingu á stafræna íslenskukennaranum Bara tala hjá Akademias. Fólk í atvinnuleit af erlendum uppruna, þar með talið flóttafólk, á nú kost á að fá aðgang að Bara tala í gegnum Vinnumálastofnun. Frá þessu er greint í tilkynningu.

Margföldunaráhrif: Að ráða einn alþjóðlegan sérfræðing skapar vinnustaðnum fimm sérfræðinga
„Það er talað um að einn alþjóðlegur sérfræðingur sem ráðinn er inn á íslenskan vinnustað, skapi fimm sérfræðinga,“ segir Nanna Elísa Jakobsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins (SI) sem dæmi um hversu mikil verðmæti geta falist í því fyrir íslensk fyrirtæki að ráða erlenda sérfræðinga til starfa.

Grátur í norðri: Norræna þversögnin endurómar í röddum íslenskra innflytjendakvenna
Á Íslandi, landi sem er þekkt fyrir skuldbindingu sína við mannréttindi og framsækna félagsmálastefnu, er ákveðin þversögn áhyggjuefni. Þrátt fyrir skuldbindingu þjóðarinnar til jafnréttis kynjanna er viðvarandi áskorun yfirvofandi - kynbundið ofbeldi gagnvart innflytjendakonum.

Tungumálainngilding fyrir okkur öll
Mikið var hressandi að horfa á fréttirnar þann 29. nóv þar sem menningar- og viðskiptaráðherra var gestur Kastljóss. Rætt var að áætlað er að a.m.k. 1,4 milljörðum verði varið í áætlun stjórnvalda til að efla íslenska tungu og meðal annars er gert ráð fyrir að auknar kröfur verði gerðar um að innflytjendur læri íslensku, auk þess sem þeir fái fleiri hvata og aukið svigrúm á vinnutíma til að fara á íslenskunámskeið.

Vöntun á erlendum sérfræðingum: Eins og hljóð og mynd fari ekki saman í ráðningum
Það er eins og hljóð og mynd fari ekki saman þegar kemur að starfsframa og atvinnumöguleikum erlendra sérfræðinga á Íslandi.

„Þetta er vond stjórnsýsla“
Mál tveggja palestínskra drengja sem vísa á úr landi var tekið fyrir á Alþingi í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að um vonda stjórnsýslu sé að ræða og að ætlun Alþingis hefði aldrei verið að vísa fylgdarlausum börnum til Grikklands.

Loðið orðalag í tímamótaáætlun
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus, er fullur efasemda um tímamótaáætlun um íslenska tungu, sem kynnt var með pompi og prakt fyrr í dag.

Áhersla á innflytjendur í nítján liða „tímamótaáætlun“
Tæpum einum og hálfum milljarði verður veitt í aðgerðir til bjargar íslenskunni næstu þrjú ár. Aðgerðirnar eru þær umfangsmestu sinnar tegundar sem ráðist hefur verið í, að sögn menningarráðherra. Rík áhersla verður lögð á íslenskukennslu innflytjenda.

Isaac kominn aftur heim: „Get ekki lýst því hvað ég er þakklátur“
Isaac Kwateng, vallarstjóri Þróttar sem vísað var úr landi 16. október síðastliðinn, er mættur aftur heim til Íslands. Hann fékk dvalar- og atvinnuleyfi í upphafi mánaðar og kveðst eiga erfitt með að lýsa þakklæti sínu gagnvart vina sinna sem börðust fyrir rétti hans til að dvelja hér á landi.

Um lögbann á fjölmenningu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu samþykkti síðastliðinn þriðjudag lögbann á varanlega búsetu í JL húsinu. Þar hafa undanfarna mánuði búið umsækjendur um alþjóðlega vernd á vegum Reykjavíkuborgar, sem og erlendir starfsmenn verktakafyrirtækisins Eyktar sem á hluta húsnæðisins.

Um þriðjungur starfsfólks farinn heim til Póllands
Framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík segir helstu starfsemi hafa verið flutta annað. Stefnt sé að því að undirbúa húsin í Grindavík næstu viku fyrir vinnslu þegar leyfi fæst. Þriðjungur hefur yfirgefið landið. Hann segir starfsemina byrja aftur í Grindavík um leið og grænt ljós kemur.

Af hverju ég ætti læra íslensku?
Ég hitti nokkuð stóran hóp innflytjenda frá mörgum löndum á fundi og hlustaði eina ferðina enn á umræðu um íslenska tungumálið sem ég hef heyrt alltof oft síðustu árin, trúið mér. Að mínu mati var niðurstaðan sú að öll væru sammála um íslenskukennslu og hvað hún er raunverulega mikilvæg fyrir börnin þeirra og þau sem foreldra.

Þeir sem eiga að læra íslensku
„Enginn að tala í þátíð, Kristófer kann, enn sem komið er, bara að tala í nútíð!“ kallaði Carlos yfir vini sína í partíi í Madríd nokkrum mánuðum eftir að ég flutti þangað.

Isaac á leið aftur til Íslands
Isaac Kwateng, vallarstjóri Þróttar, hefur fengið dvalar-og atvinnuleyfi. Hann er því væntanlegur til Íslands frá Gana.