Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 16. október 2026 22:11 Daníel Hafsteinsson fékk rautt spjald í kvöld en alls fór rauða spjaldið fjórum sinnum á loft. Samsett/Vísir/Guðmundur „Það bara sýður á mér. Ég á eiginlega ekki að standa hérna í viðtali því að ég er alveg brjálaður yfir þessu,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir 1-2 tap gegn Víkingum á Eikarvellinum í Kópavogi í næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar.
Um miðbik fyrri hálfleiksins komust Blikar yfir og lentu manni undir á tveimur mínútum. Antoni Loga Lúðvíkssyni var þá vikið af velli fyrir að fella Valdimar Þór Ingimundarson sem vann af honum boltann við vítateig Blika og var við það að sleppa í gegn. Ólafur Ingi segir Ívar Orra Kristjánsson, dómara leiksins, hafa eyðilagt leikinn með þessari ákvörðun sem hann taldi vera ranga. „Ívar Orri ákveður að taka leikinn í sínar hendur og virðingin sem borin er fyrir Víkingi hér í dag af Ívari er náttúrulega bara ótrúleg. Þetta er náttúrulega aldrei rautt spjald, hvergi nálægt því og svo eru öll fiffty-fiffty einvígi þeirra megin. Hann bara átti hræðilegan dag, eins góður dómari og Ívar getur verið, þá erum við jú öll mannleg og allt það en skelfileg frammistaða,“ sagði Ólafur Ingi, heitt í hamsi. Helstu atvik leiksins má sjá hér að neðan. Aðspurður út í frammistöðu síns liðs í leiknum sagðist Ólafur Ingi hafa verið stoltur af sínu liði í erfiðum aðstæðum. „Fyrri hálfleikinn fram að rauða spjaldinu vorum við bara frábærir. Við skoruðum gott mark og vorum komnir yfir. Það sem eftir lifði hálfleiks fannst mér við þéttir og gera þeim erfitt fyrir. Þeir fundu lítið af opnunum og þetta var mikið af fyrirgjöfum og við þurftum að verja markið okkar vel sem við gerðum mjög vel. Þegar leið á seinni hálfleikinn fórum við að falla meira og meira og fáum á okkur jöfnunarmark og svo skora þeir stórgott mark beint úr aukaspyrnu. Frammistaðan sem slík í erfiðum aðstæðum var bara góð, ég er bara stoltur af liðinu.“ Ólafi Inga Skúlasyni var ekki skemmt yfir því sem gekk á í Kópavogi í kvöld.Vísir „Væntanlega langt bann fram undan hjá honum“ Ólafur Ingi fékk rautt spjald undir lok fyrri hálfleiksins og var því sitjandi uppi í stúku þegar allt ætlaði um koll að keyra inni á vellinum undir lok leiksins. Tvö rauð spjöld fóru þá á loft og miklar stimpingar á milli manna. Daníel Hafsteinsson fékk meðal annars rautt spjald en svo virtist vera að hann hafi kveikt neistann að þessu báli sem varð inni á vellinum á þessum tímapunkti. Erfitt var að sjá úr stúkunni hvað gekk á á vellinum þarna. Aðspurður út í þá atburðarás hafði Ólafur Ingi þetta að segja. „Ég náttúrulega var uppi í stúku og sá það ekki nægilega vel, en mér skilst að hann [Daníel Hafsteinsson] hafi bara kýlt hann [Ásgeir Helga Orrason] og ef svo er þá er væntanlega langt bann fram undan hjá honum. En ég hef ekki séð það, eins og ég segi. Ívar var náttúrulega þarna búinn að missa öll tök á leiknum, þannig að því fór sem fór.“ „Auðvitað á maður ekki að missa hausinn“ Aðspurður út í af hverju honum hafi verið vikið upp í stúku með rauðu spjaldi svaraði Ólafur Ingi því á þennan veg. „Ég get alveg tekið það á mig að ég lét hann [Ívar Orra] heyra það því mér fannst þetta vera skemmtilegur leikur, tvö góð lið og hann var bara ekki tilbúinn í þetta, bara því miður. Mér fannst bara halla verulega á okkur og ég get alveg verið heiðarlegur með það að ég sagði honum til syndanna og átti líklega bara skilið að fá rautt. Ég ætla ekkert að kvarta yfir því og maður á ekki að hegða sér svoleiðis. Ég bara biðst afsökunar á því. Auðvitað á maður ekki að missa hausinn.“
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Breiðablik Tengdar fréttir Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Rauða spjaldið fór fjórum sinnum á loft og Sveinn Margeir Hauksson skoraði glæsilegt sigurmark í svakalegum slag á Kópavogsvelli þegar Víkingar unnu fjendur sína í Breiðabliki, 2-1, í næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Lætin og mörkin má sjá á Vísi sem og það helsta úr 3-1 sigri ÍBV gegn FH. 16. október 2026 21:57 Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð spjöld í miklum hitaleik Breiðablik og Víkingur sýndu að enn er grunnt á því góða á milli liðanna þegar þau mættust í næstsíðustu umferð Bestu deildar karla í kvöld. Blikar komust yfir en Íslandsmeistararnir unnu á endanum 2-1 í leik þar sem rauða spjaldið fór fjórum sinnum á loft. 16. október 2026 18:31 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð spjöld í miklum hitaleik Íslenski boltinn Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Körfubolti Fleiri fréttir Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð spjöld í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ Sjá meira
Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Rauða spjaldið fór fjórum sinnum á loft og Sveinn Margeir Hauksson skoraði glæsilegt sigurmark í svakalegum slag á Kópavogsvelli þegar Víkingar unnu fjendur sína í Breiðabliki, 2-1, í næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Lætin og mörkin má sjá á Vísi sem og það helsta úr 3-1 sigri ÍBV gegn FH. 16. október 2026 21:57
Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð spjöld í miklum hitaleik Breiðablik og Víkingur sýndu að enn er grunnt á því góða á milli liðanna þegar þau mættust í næstsíðustu umferð Bestu deildar karla í kvöld. Blikar komust yfir en Íslandsmeistararnir unnu á endanum 2-1 í leik þar sem rauða spjaldið fór fjórum sinnum á loft. 16. október 2026 18:31