Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Valur Páll Eiríksson skrifar 16. október 2026 13:39 Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, fékk Lanaras til liðsins og sendi Davis heim eftir að hafa beðið heillengi eftir svörum frá Útlendingastofnun. KR-ingar bíða enn. Vísir/Guðmundur Framtíð Bandaríkjamannsins Rashun Davis með liði KR er í lausu lofti sökum seinagangs á skrifstofu Útlendingastofnunar. Davis er farinn aftur til Bandaríkjanna og KR-ingar hafa beðið svara um landvistar- og atvinnuleyfi í rúma tvo mánuði.
Davis, sem er 32 ára gamall bakvörður, æfði með KR stóran hluta sumars og tók þátt með liðinu í æfingamótum í aðdraganda Íslandsmótsins. Umsókn um landvistarleyfi var skilað inn til Útlendingastofnunar í ágúst en rúmum tveimur mánuðum síðar liggur enn ekki fyrir hvort hann megi spila með liðinu í vetur. Samkvæmt heimildum Vísis hefur málið dregist hjá Útlendingastofnun sökum lítilvægs máls viðkomandi vestanhafs og enn á eftir að greiða úr því hvort Davis verði veitt eða synjað um landvistarleyfi sökum þess. Hann er farinn heim en Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, útilokar ekki að hann spili með KR í vetur þrátt fyrir það. „Staðan er bara sú að hann er ekki með leyfi. Það er enn í vinnslu hjá Útlendingastofnun,“ sagði Jakob í samtali við íþróttadeild Sýnar eftir leik KR við Njarðvík í gær. Þannig að hann er farinn? „Hann er ekki á Íslandi, hann er farinn. Við erum ennþá með umsóknina í ferli og við vitum bara ekkert hvað það tekur langan tíma og hvaða svar við fáum þegar hún er unnin. Það gæti tekið eina eða tvær vikur, eða jafnvel tvo eða þrjá mánuði,“ segir Jakob og málið því enn í lausu lofti. „Þannig að niðurstaðan var að hann er farinn frá okkur. Svo bara tökum við stöðuna. Við erum rólegir eins og er. Við erum með fjóra útlendinga og mér líður vel með liðið eins og er, en það er alveg klárt að við erum án Bandaríkjamanns og erum með augun opin þar.“ Líkt og Jakob nefnir þá er KR með fjóra erlenda leikmenn, sem er hámarkið í hverjum leik í Bónus-deildinni samkvæmt reglum KKÍ. Hverju liði er heimilt að hafa einn Bandaríkjamann á meðal þeirra fjögurra erlendu leikmanna. KR samdi við Rafail Lanaras eftir að þeir sendu Davis heim en auk hans leika Roberts Berzins, Linards Jaunzems og Adam Ramstedt með liðinu. Jakob segir óvissuna vegna stöðu Davis vissulega valda ákveðnum höfuðverk. „Það er svolítið óþægilegt að maður viti ekki alveg hvaða framboð verður af leikmönnum áður en glugginn lokar.“
Bónus-deild karla KR Körfubolti Innflytjendamál Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ Sjá meira