
Samkeppnismál

Óvissa um kaup Icelandair á WOW air
Töluverð óvissa er hvort verður af kaupum Icelandair á WOW air en forstjóri WOW hefur lýst yfir að fleiri en Icelandair komi til greina sem kaupendur að félaginu.

Síminn og Sýn sýknuð af kröfum hvors annars
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í morgun kröfu Sýnar á hendur Símanum til greiðslu skaðabóta vegna brota Símans á samkeppnislögum, sem og gagnkröfu Símans á hendur Sýn.

Samkeppniseftirlitið gefur grænt ljós á kaupin á Ögurvík
Samkeppniseftirlitið tilkynnti HB Granda í dag að það "teldi ekki ástæðu til að aðhafast frekar“ vegna kaupa félagsins á Ögurvík.

Iceland-verslanir í Reykjanesbæ og á Akureyri flæktu kaupin
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Samkaupa hf. á eignum 12 verslana Basko verslana ehf. sem staðsettar eru á höfuðborgarsvæðinu, en greint var frá kaupunum á sunnudag.

Samkaup kaupir tólf verslanir Baskó
Samkaup hafa keypt tólf verslanir Baskó á höfuðborgarsvæðinu, þar á meðal verslanir undir merkjum Iceland og valdar verslanir þar sem nú eru reknar 10-11 verslanir.

Icelandair óskar ekki eftir undanþágu
Stjórnendur félagsins hyggjast ekki óska eftir undanþágu frá samkeppnislögum til þess að kaupin á WOW air komi til framkvæmda strax.

Vilja að Samkeppniseftirlitið skoði samning borgarinnar við Hlemm Mathöll
Félag atvinnurekenda, FA, hefur farið fram á að Samkeppniseftirlitið taki til skoðunar samning Reykjavíkurborgar við rekstraraðila Hlemms Mathallar ehf., með tilliti til þess hvort hann feli í sér opinberan styrk sem raski samkeppni á markaði.

Apple og Samsung sektuð fyrir að hægja á gömlum símum
Tæknirisunum Apple og Samsung hefur verið gert að greiða háar sektir á Ítalíu fyrir það að hafa vísvitandi hægt á eldri útgáfum snjallsíma sinna.

Telja rannsókn Samkeppniseftirlitsins ólögmæta
Lyf og heilsa gerir margvíslegar athugasemdir við rannsókn Samkeppniseftirlitsins á samrunamáli apótekakeðjunnar og Apótek MOS í Mosfellsbæ og telur að hlutlægnisskylda, rannsóknarregla og jafnræðisregla stjórnsýslulaga hafi verið fótum troðnar.

Bráðabirgðaákvörðun vegna gjaldtöku Isavia staðfest
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti bráðabirgðaákvörðun vegna gjaldtöku Isavia í dag en samkeppniseftirlitið ákvað að stöðva gjaldtöku á bílastæðum fyrir hópferðafyrirtæki sem aka frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júlí síðastliðnum.

Ógilda samruna apóteka
Samkeppniseftirlitið hefur ógilt samruna sem áformaður var með kaupum Lyfja og heilsu hf. á Opnu ehf.

Samkeppniseftirlitið skoðar kaup á Póstmiðstöðinni
Samkeppniseftirlitið hefur nú til skoðunar kaup Árvakurs hf, og 365 miðla á Póstmiðstöðinni ehf.

Vissi nákvæmlega hvað gera skyldi
Jón Björnsson leiddi vel heppnaða umbreytingu á rekstri Festar sem meðal annars rekur Krónuna.

Uggandi yfir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
Forstjóri Kynnisferða segir bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins um rútustæðagjöld við Leifsstöð skekkja samkeppnisstöðu fyrirtækja á svæðinu. Þannig séu Kynnisferðir í beinni samkeppni í flugrútuakstri við fyrirtæki sem engin gjöld greiða á gildistíma ákvörðunarinnar. Með ákvörðuninni var ISAVIA gert að hætta tímabundið gjaldtöku í svokölluð fjarstæði við Leifsstöð.

Segir ISAVIA hafa lagt á skatt með gjöldunum
Forsvarsmenn ISAVIA segja bráðabirgðaniðurstöðu um að hætta skuli gjaldtöku í fjarstæðum við Leifsstöð koma á óvart. Þeir hafi talið gjaldtökuna eiga fullan rétt á sér en ákvörðuninni verði þó hlýtt. Stjórnarformaður Gray Line fagnar niðurstöðunni og segir að um óheimila skattheimtu hafi verið að ræða.

Samkeppniseftirlitið stöðvar gjaldtöku Isavia
Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að stöðva gjaldtöku Isavia á bílastæðum fyrir hópferðafyrirtæki sem aka frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Samkeppnislöggjöfin úrelt að sögn framkvæmdastjóra Viðskiptaráð
Mikil samþjöppun blasir við á dagvöru- og eldsneytismarkaði nái fyrirhugaðir samrunar sem tilkynnt hefur verið um nýverið fram að ganga. Þessi þróun kemur ekki á óvart að sögn framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs sem segir gildandi samkeppnislöggjöf vera úrelta.

Heimilar kaup Stjörnugríss og Stjörnueggja á eignum Brúneggja
Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Stjörnugríss hf. og Stjörnueggja hf. á eignum fasteignafélagsins Gjáholts. Fasteignafélagið tók við rekstri Brúneggja í mars á þessu ári.

Enn mikil samþjöppun á matvörumarkaði
Samþjöppun á matvörumarkaði fer minnkandi en er enn mjög mikil segir í nýrri skýrslu Samkeppniseftirlitsins. Þar segir einnig að styrking krónunnar hafi ekki skilað sér til neytenda.

Leitum ekki að lægsta samnefnaranum
Hinn 3. október sl. stóðu Samtök atvinnulífsins fyrir fundi um samkeppnislögin og framkvæmd þeirra. Tilefnið var nýútkomin skýrsla samtakanna um sama efni. Ástæða er til að fagna allri umræðu um þessi mál. Við sem eigum tíð samskipti við atvinnulífið vitum hversu mikið samkeppnismál brenna á fyrirtækjum, neytendum og samfélaginu öllu nú um stundir.