
Sundlaugar og baðlón

Sundlaugargestur hellti klór á steina í gufubaði
Klórslys sem varð í Grafarvogslaug í gærkvöldi orsakaðist af því að gestur sundlaugarinnar fór inn í lokaða geymslu, sótti þar klór sem hann taldi vera vatn og hellti á steina í gufubaði. Nokkrir þurftu að leita aðhlynningar á bráðamóttöku þar sem klór getur verið skaðlegur öndunarfærum

Klórslys í Grafarvogslaug
Minni háttar klórslys varð í Grafarvogslaug skömmu fyrir klukkan níu í kvöld. Slökkviliðið hefur lokið störfum á vettvangi. Nokkrir voru fluttir á bráðamóttöku til aðhlynningar.

Vök Baths hlutu Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar
Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar voru afhent í dag í nítjánda sinn en það voru Vök Baths á Egilsstöðum sem hlutu verðlaunin að þessu sinni. Eliza Reid afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Hörpu.

Gestir klæða sig úr fötunum inni í fjalli í Þjórsárdal
„Fjallaböðin“, hótel og baðaðstaða er nýtt verkefni í Þjórsárdal, sem hófst í dag þegar fyrsta skóflustungan var tekin. Einnig verður byggð upp gestastofa, veitingaaðstaða, fjölbreyttir gistimöguleikar, sýningarhald og upplýsingamiðstöð á staðnum.

Blússandi aðsókn í Skógarböðin
Aðsóknin að Skógarböðunum í Eyjafirði gegnt Akureyri hefur verið miklu meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir en nú hafa tæplega sextíu þúsund manns heimsótt böðin frá því að þau opnuðu í vor. Næsta skref er að byggja Spa hótel við böðin með hundrað og tuttugu herbergjum.

Berjast fyrir fleiri klukkutímum í Laugarskarði
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hveragerði telja mikið ákall eftir því að opnunartími sundlaugarinnar í Laugarskarði verði lengdur. Málið er komið á borð menningar- og frístundafulltrúa bæjarins.

Sveitarfélagið tekur yfir rekstur laugarinnar og hyggst stórefla starfið
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hyggst taka yfir rekstur Skeiðalaugar í Brautarholti um áramótin þegar samningur við verktaka rennur út. Stefnt er á að lengja opnunartíma laugarinnar verulega. Síðustu ár hefur laugin einungis verið opin tvo daga vikunnar í fjóra tíma í senn.

Barátta grindvískra barna fyrir lengri opnun í sundlauginni skilar árangri
Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkurbæjar hefur lagt til að opnunartími sundlaugarinnar í bænum verði lengdur til klukkan 18 um helgar yfir vetrartímann í stað klukkan 16. Breytingin kemur í kjölfar undirskriftarsöfnunar grunnskólabarna í bænum.

Tillaga Arons aftur vinsælust: „Þetta var náttúrulega bara rýtingur í bakið“
Aron Kristinn Jónasson, söngvari og meðlimur í tvíeykinu ClubDub, segir það hafa verið eins og að fá rýting í bakið þegar Reykjavíkurborg ógilti hugmynd hans um að reisa styttu af Kanye West við Vesturbæjarlaug vorið 2021. Hann hefur ekki gefist upp og reynir nú aftur.

Ætla að „fela“ 120 herbergja hótel við Skógarböðin
Eigendur Skógarbaðanna í Eyjafjarðarsveit stefna á að byggja 120 herbergja hótel við böðin. Hönnun hótelsins verður eins og baðanna þannig að það mun falla inn í umhverfið.

„Þetta tíðkast víðar en við höldum“
Nýr sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps mun taka til skoðunar kvörtun frá sumarbúastaðareiganda sem segir ákvörðun sveitarfélagsins um að láta aðkomufólk borga hærra gjald en heimamenn fyrir íþróttir og sund brjóta í bága við jafnræðisákvæði stjórnarskrár. Sveitarstjórinn segir fyrirkomulagið ekki ólíkt Loftbrúnni svokölluðu og frístundastyrkjum.

Gjaldskrá sundlaugarinnar í Grímsnesi standist ekki ákvæði stjórnarskrár
Innviðaráðuneytið hefur óskað eftir umsögn sveitarfélagsins Grímsnes- og Grafningshrepps vegna þess fyrirkomulags sveitarfélagsins að láta þá sem ekki eru með lögheimili í sveitarfélaginu greiða margfalt hærra verð fyrir árskort í sund og líkamsrækt á Borg í Grímsnesi, samanborið við þá sem eru skráðir með lögheimili í sveitarfélaginu.

Þetta er uppáhalds sundlaug Íslendinga
Sundlaug Akureyrar er uppáhalds sundlaug Íslendinga, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fréttastofa sótti tvær vinsælustu laugar landsins heim í dag. Heildarniðurstöður má nálgast neðst í fréttinni.

Spéhræddir ferðamenn reyna að komast undan því að baða sig
Starfsmenn sundlauga segja spéhræðslu valda því að fjöldi ferðamanna reynir að koma sér undan því að baða sig áður en farið er ofan í laugarnar. Frá þessu greinir Fréttablaðið og vísar til starfsmanna lauga í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum.

Rennibraut verði komin upp í Dalslaug í vor
Reiknað er með að vatnsrennibraut verði komin upp í Dalslaug í Úlfarsárdal næsta vor. Borgarfulltrúi segir að með þessu sé verið að svara ákalli íbúa en upphaflegar áætlanir gerðu ekki ráð fyrir að rennibraut yrði í lauginni sem opnaði í desember á síðasta ári.

Bestu köldu pottar höfuðborgarsvæðisins afhjúpaðir
Kaldi potturinn gæti hjálpað þeim sem leggja stund á hann að léttast, að sögn prófessors í ónæmisfræði. Og fréttamaður heimsótti besta - og versta - kalda pott höfuðborgarsvæðisins, samkvæmt óformlegri könnun fréttastofu.

The Truman Show sýnd í Sundhöllinni
Sundbíóið í gömlu innilauginni í Sundhöll Reykjavíkur hefur sannarlega unnið sér fastan sess sem einn af vinsælustu sérviðburðum RIFF. Í ár hefur verið ákveðið að sýna kvikmyndina The Truman Show á hátíðinni.

Hvaða kaldi pottur höfuðborgarsvæðisins er bestur?
Stóraukinn áhugi Íslendinga á köldum böðum síðustu ár hefur gert það að verkum að kaldir pottar eru nú orðnir staðalbúnaður í sundlaugum landsins. Á höfuðborgarsvæðinu er nú til að mynda kaldur pottur í hverri einustu laug.

Það viðrar vel til MIÐNÆTURsunds
Fimmtudagar voru áður þekktir sem dagarnir sem sjónvarpið fór í frí. Það var að vísu fyrir mína tíð, en fimmtudagar halda þó áfram að setja mark sitt á frítíma fólks og í dag er fyrsti fimmtudagurinn þar sem opið verður til miðnættis í Laugardalslaug!

Skógarböðin á Akureyri rýmd
Skógarböðin á Akureyri voru rýmd um hádegisbil í dag vegna reyks. Slökkvilið Akureyrar segir í samtali við fréttastofu að bilun hafi komið upp í rafmagnstöflu. Ekki hafi kviknað í.

Fjallaböðin á lokastigi hönnunar
Fjallaböðin í Þjórsárdal eru á lokastigi hönnunar, en stefnt er að því að byggingarnar verði með þeim allra umhverfisvænstu í Evrópu. Heilt hverfi starfsmannaíbúða mun jafnframt rísa í Árnesi í Gnúpverjahreppi sem unnið er að með heimamönnum.

Stjörnulífið: Sumarfríið, sólin, fjallgöngur og náttúrulaugar
Veiðin, sundlaugarnar, sumarfríið og sælan. Stjörnurnar virðast vera að njóta lífsins þessa dagana ef marka má samfélagsmiðla, hvort sem er hérlendis í fjallgöngu eða erlendis á sólarströndum.

Með nóg á prjónunum en einbeitir sér að sjóböðunum í bili
Sjóböðin í Hvammsvík í Hvalfirði voru formlega opnuð í dag en böðin eru byggð í kringum gömlu náttúrulaugina í fjöruborðinu í Hvammsvík og samanstanda af átta misheitum laugum.

Frítt í sund fyrir börn í Reykjavík og miðnæturopnanir í Laugardalslaug
Frítt verður í sundlaugar Reykjavíkur fyrir börn á grunnskólaaldri frá og með 1. ágúst 2022 en borgarráð samþykkti í dag svohljóðandi tillögu menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs. Einnig var samþykkt tillaga um miðnæturopnun á fimmtudagskvöldum í Laugardalslaug frá og með 4. ágúst til áramóta.

Þetta eru heitustu pottarnir á höfuðborgarsvæðinu
Heitasti potturinn er sá eini sem virkar á lúna líkama, að mati gesta Vesturbæjarlaugar sem fagna opnun hans eftir yfirhalningu. Almennt myndist einstök stemning í heitustu pottum borgarinnar - og við komumst að því hvar þann allra heitasta er að finna.

Endurbætur ýmist sagðar nauðsynlegar eða skemmdarverk
Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við innilaug Sundhallar Reykjavíkur um áramótin. Til stendur að endurgera sundlaugarbakkann og laugarkerið sem er komið til ára sinna ásamt því að gera sérstaka dýfingalaug fyrir stökkbrettin. Sérfræðingar segja framkvæmdir nauðsynlegar en fastagestur telur breytinguna skemmdarverk.

Frítt í sund og strætó fyrir börn einu fingraför Framsóknar að mati Hildar
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir að henni virðist einu fingraför Framsóknarflokksins á málefnasamningi nýja meirihlutans í borginni vera að frítt verði í sund og strætó fyrir börn. Hún kvartar yfir leiðindapólitík sem hafi verið stunduð þegar flokkar voru að máta sig í meirihlutaviðræðum.

Bjóða upp sérhönnuð sundferðalög
Hönnunarsafn Íslands bíður upp á ferðagjöf þetta árið en hún er í formi þriggja sérhannaðra sundferða sem tengjast sýningunni Sund sem stendur ný yfir í safninu.

Kaldar sturtur í Árbæjarlaug eftir innbrot og eignaspjöll
Sundlaugargestir sem mættu í Árbæjarlaug við opnun klukkan níu í morgun máttu sætta sig við ískaldar sturtur. Innbrotsþjófur hafði framið þar ýmis eignaspjöll um nóttina, meðal annars farið um tækjakjallara laugarinnar og tekið þar leiðslur í sundur með þeim afleiðingum að ekkert heitt vatn rann í sturturnar.

„Það tengja allir við sína sundlaug“
Myndlistarmaðurinn Unnar Ari opnar sýninguna Sundform á HönnunarMars þann fjórða maí næstkomandi. Á sýningunni verða 105 prentverk eftir Unnar af hverri einustu sundlaug landsins. Blaðamaður heyrði í Unnari og fékk að heyra nánar frá þessu skapandi verkefni.