Mosfellsbær
1 2 3 4 5 6 … 21 ›
Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Landsréttur hefur úrskurðað karlmann á fimmtugsaldri, góðkunningja lögreglunnar, í gæsluvarðhald til 27. ágúst grunaðan um aðild að hraðbankaþjófnaði í Mosfellsbæ. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður hafnað kröfu lögreglu þess efnis. Innlent 22.8.2025 15:43
Bíll konunnar sást á upptöku Kona á fertugsaldri var úrskurðuð í gæsluvarðhald til þriðjudags í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag grunuð um aðild að hraðbankaþjófnaði í Mosfellsbæ aðfaranótt þriðjudags. Lögregla hafði áður krafist þess fyrir dómi að fá heimild til að skoða síma konunnar. Mynd af bíl konunnar er meðal lykilsönnunargagna í málinu. Innlent 22.8.2025 14:47
Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Um tuttugu milljónir króna voru í hraðbanka sem stolið var í Mosfellsbæ í vikunni. Kona á fertugsaldri hefur verið úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald til þriðjudags grunuð um aðild að þjófnaðinum. Innlent 22.8.2025 13:23
Bærinn hefur afhent lögreglu myndefni í tengslum við hraðbankaránið Mosfellsbær hefur afhent lögreglu myndefni úr eftirlitsmyndavélum bæjarins í tengslum við rannsókn á hraðbankaráni í bænum fyrr í vikunni. Rannsókn málsins er sögð á frumstigi en héraðsdómur hafnaði í morgun beiðni lögreglu um gæsluvarðhald yfir manni sem hún hefur grunaðan í málinu. Innlent 21.8.2025 19:17
Óska eftir myndefni af gröfunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biðlar til eigenda eftirlitsmyndavéla í Mosfellsbæ og við Hafravatn að kanna hvort að þar leynist myndefni af vinnuvél, sem notuð var við þjófnað á hraðbanka í Mosfellsbæ. Innlent 21.8.2025 11:58
Gæsluvarðhaldskröfu hafnað í hraðbankamálinu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað beiðni Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um aðild að þjófnaði á hraðbanka í Mosfellsbæ á dögunum. Innlent 21.8.2025 10:32
Telur handtökuna byggja á slúðri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur krafist gæsluvarðhalds á hendur karlmanni sem er grunaður um hraðbankastuld í Mosfellsbæ í gærnótt. Dómari hjá Héraðsdómi Reykjavíkur hefur gefið sér umhugsunarfrest til morguns um hvort hann fallist á kröfu lögreglu. Innlent 20.8.2025 21:33
Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Lögregla hefur krafist gæsluvarðhalds yfir manni sem er grunaður um að stela hraðbanka úr útibúi Íslandsbanka í Mosfellsbæ í fyrrnótt. Hann er einnig grunaður um rán í Hamraborg í fyrra. Innlent 20.8.2025 18:49
Enginn handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ Enginn hefur enn verið handtekinn vegna þjófnaðar á hraðbanka í Mosfellsbæ í gær. Milljónir voru í hraðbankanum. Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við fréttastofu að ekkert nýtt sé að frétta af rannsókn lögreglunnar. Innlent 20.8.2025 11:01
Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Útitónleikar bæjarhátíðar Mosfellsbæjar hafa verið færðir yfir á sunnudag, einhverjum bæjarbúum til ama. Verkefnastjóri segir núllstillingu mikilvæga eftir erfiða atburði í kringum hátíð síðasta árs. Innlent 19.8.2025 21:01
Ekkert bendi til tengsla milli bankastuldsins og Gufunesmálsins Ekkert bendir til tengsla milli hraðbankaþjófnaðar í Mosfellsbæ í nótt og Gufunesmálsins svokallaða að sögn Hjördísar Sigurbjartsdóttur, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 19.8.2025 19:25
Bubbi segir Hróa Hattar-brag á stuldinum Bubbi Morthens, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, hefur tjáð sig um hraðbankaþjófnað sem varð í Mosfellsbæ í nótt. Bubbi segir stuldinn hafa minnt sig á goðsagnapersónuna Hróa Hött. Lífið 19.8.2025 15:21
Húsleit á heimili þekkts brotamanns Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið í tvær húsleitir með aðstoð sérsveitar í dag vegna rannsóknar sinnar á þjófnaði úr hraðbanka í Mosfellsbæ í nótt. Samkvæmt heimildum fréttastofu býr Stefán Blackburn, þekktur brotamaður, á öðru heimilinu sem lögreglan heimsótti í dag. Innlent 19.8.2025 14:28
Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Þjófar stálu hraðbanka Íslandsbanka og milljónum sem í honum voru þegar þeir brutust inn í hraðbankaútibú Íslandsbanka í nótt. Hraðbankinn var staðsettur við bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar í Þverholti í Mosfellsbæ. Fleiri en einn er grunaður um þjófnaðinn samkvæmt lögreglu og er grunur um að grafan sem var notuð við þjófnaðinn hafi verið tekin á byggingarsvæði á Blikastaðalandi. Innlent 19.8.2025 08:31
Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda Heilunarguðþjónustur hafa notið mikilla vinsælda í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ en 35 slíkar messur hafa verið haldnar og verður sú þrítugasta og sjötta haldin nú í september. Þá verður líka stór viðburður í bæjarfélaginu, sem kallast Heimsljós. Lífið 17.8.2025 14:04
Valdar strætóleiðir ganga oftar og lengur Strætó ræðst í umfangsmikla þjónustuaukningu sunnudaginn næsta. Hlutfall íbúa sem búa innan við 400 metrum frá stoppistöð með tíu mínútna tíðni á annatíma fer úr um 18 prósent í rúmlega 50 prósent. Innlent 13.8.2025 13:18
Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Jóhann Alfreð Kristinsson, uppistandari og lögfræðingur, og eiginkona hans Valdís Magnúsdóttir, hagfræðingur og endurskoðandi, hafa fest kaup á fallegu raðhúsi við Sölkugötu í Mosfellsbæ. Kaupverðið nam 146 milljónum króna. Lífið 12.8.2025 20:00
Einn handtekinn vegna líkamsárasar Einn var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur fyrir líkamsárás og vörslu fíkniefna en lögregla vistaði viðkomandi í fangageymslu vegna rannsókn málsins. Innlent 4.8.2025 07:25
Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að sinna í nótt. Fjöldi ökumanna var stöðvaður vegna hrað- eða ölvunaraksturs og einn var vistaður í fangaklefa vegna líkamsárásar. Gleðin var líka víða við völd og fór lögregla í nokkur hávaðaútköll. Innlent 26.7.2025 07:49
„Íbúar eru einfaldlega komnir með nóg“ Rúmur helmingur landsmanna er með neikvætt viðhorf gagnvart þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu. Oddviti Framsóknarflokksins telur niðurstöður könnunarinnar ekki breyta neinu fyrir meirihlutann í borginni. Innlent 23.7.2025 13:23
„Ég vakna á hverjum degi og þrái ekkert meira en að fá hann aftur“ Þann 3. nóvember síðastliðinn lést Sigurður Kristófer McQuillan Óskarsson, formaður Björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ, á sameiginlegri straumvatnsæfingu á vegum Landsbjargar. Eftirlifandi unnusta hans, Hrefna Ingibjörg Jónsdóttir, segir að með Sigurði hafi hún ekki aðeins kynnst ástinni, heldur einnig starfi björgunarsveitanna. Í dag, nokkrum mánuðum síðar, stendur hún sjálf á barmi þess að verða fullgildur meðlimur í sömu sveit — og undirbýr sig nú fyrir hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu, þar sem hún safnar áheitum fyrir Landsbjörg. Lífið 21.7.2025 08:02
Spændi upp mosann á krossara Leiðsögumanni blöskraði þegar hann sá ökumenn krossara bruna um móa við Nesjavallaleið og tæta upp mosann á svæðinu. Utanvegaakstur er ólöglegur á Íslandi. Innlent 14.7.2025 21:48
Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Erlendir menn voru í dag handteknir í Breiðholti vegna sölu á fíkniefnum, vörslu fíkniefna og ólöglegrar dvalar í landinu, að sögn lögreglu. Innlent 14.7.2025 17:24
Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Fullorðinn einstaklingur slasaðist í sundlaug í Mosfelssbæ á dögunum og hafa bæjaryfirvöld óskað eftir því að lögregla rannsaki atvikið. Ytri aðila hefur verið falið að gera öryggisúttekt í votrýmum sundlaugarinnar. Innlent 10.7.2025 23:41
Ójafnvægi í jöfnunarkerfinu Fyrir alþingi liggur nú frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð. Hlutverk sjóðsins er að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum úr sjóðnum. Tekjur Jöfnunarsjóðs koma úr ríkissjóði, annars vegar sem hlutfall af skatttekjum og hins vegar fjárhæð sem er hlutfall af álagningarstofni útsvars. Skoðun 2.7.2025 21:32
Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? „Þetta deyr aldrei, neitar að deyja!“ segir Mollý Jökulsdóttir um lagið Tik Tok skinka, sem varð gríðarlega vinsælt á netinu fyrir fimmtán árum síðan þegar tónlistarmyndband við lagið var sett á Youtube, en þá var Mollý í tíunda bekk í Varmárskóla í Mosfellsbæ. Lífið 2.7.2025 20:01
Stefna á að þrefalda fjölda hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ Samkomulag sem undirritað var í dag felur í sér þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ. Reist verður nýtt hjúkrunarheimili í bænum með 66 hjúkrunarrýmum en þar eru í dag 33 rými. Innlent 1.7.2025 16:51
Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Nýr leikskóli hefur verið opnaður í Helgafellslandi í Mosfellsbæ sem hefur fengið nafnið Sumarhús. Leikskólinn er fyrir börn á aldrinum eins til fimm ára og rúmar 150 börn. Bæjarstjóri segir opnunina mikilvæg tímamót fyrir Mosfellsbæ. Innlent 27.6.2025 18:08
Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Miklar umferðartafir eru í Mosfellsbæ þessa stundina vegna vegaframkvæmda og misskilnings þeim tengdum sem gætti hjá Vegagerðinni. Innlent 22.6.2025 18:55
Stórauka þjónustu Strætó í lok sumars Strætó mun stórauka þjónustu sína en frá og með 17. ágúst 2025 verður umfangsmikil þjónustuaukning í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Þessi aukning er hluti af Samgöngusáttmálanum og rekstraráætlun Strætó og skref í átt að nýju leiðaneti, sem á að taka gildi árið 2031. Innlent 11.6.2025 12:36