Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Atli Ísleifsson skrifar 23. janúar 2026 10:00 Davíð Þorláksson. Davíð Þorláksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. úr hópi 23 umsækjenda. Hann mun hefja störf á næstu dögum. Um er að ræða nýtt félag sem tekur yfir rekstur leiðakerfis Strætó.
Í tilkynningu segir að Davíð hafi gegnt starfi framkvæmdastjóra Betri samgangna ohf. frá janúar 2021. Hann er með MBA-gráðu frá London Business School og lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2006. Áður var hann forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins frá 2017-2021, yfirlögfræðingur Icelandair Group 2009-2017, yfirlögfræðingur fjárfestingabankans Askar Capital 2007-2009 og lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands 2005-2007. „Davíð hefur leitt uppbyggingu Borgarlínunnar undanfarin ár sem framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf. Hann býr yfir víðtækri þekkingu á umhverfi almenningssamgangna og því er það mikils virði að fá hann til að leiða hið nýja félag og starfsfólk þess í gegnum þær breytingar sem framundan eru, m.a. vegna tilkomu Borgarlínunnar,“ er haft eftir Erni Guðmundssyni, stjórnarformanni Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins í tilkynningunni. „Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins voru stofnaðar 1. september 2025 og mun félagið taka við umsýslu og rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Ríkið fer með 33% eignarhlut í félaginu á móti 67% hlut sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Með stofnun nýs félags er verið að aðskilja skipulag og þjónustustýringu frá daglegum rekstri vagna. Þetta fyrirkomulag hefur gefist vel á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu. Markmiðið er að bæta þjónustu, auka sveigjanleika og tryggja skýrari ábyrgð og eftirlit með gæðum,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Borgarlína Strætó Reykjavík Kópavogur Garðabær Seltjarnarnes Mosfellsbær Hafnarfjörður Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Sjá meira