Grænland

Grænland

Höfuðborg: Nuuk. Mannfjöldi: 56 þúsund. Flatarmál: 2.166.000 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Gott að Trump hafi opnað á um­ræðuna

Yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem er sömuleiðis yfirherforingi NATO, segir það jákvætt að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland hafi ýtt undir umræðu um mikilvægi varnarmála á Norðurslóðum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur heils hugar undir.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Yfir­heyra banda­menn sína í NATO

Ráðamenn í Bandaríkjunum eru sagðir hafa sent spurningalista á ríkisstjórnir annarra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins, þar á meðal Íslands. Þar eru þessir ráðamenn meðal annars spurðir út í stuðning ríkjanna við utanríkisstefnu Donalds Trump en spurningarnar munu vera liður í áætlunum Bandaríkjamanna í að draga úr viðbúnaði í Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Sneri sér við, greip í spaðann á Krist­rúnu og gekk út

Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins fór fram í Ankara í Tyrklandi í gær og í morgun en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur farið mikinn þar. Athygli vakti að eftir myndatöku með leiðtogum bandalagsins sneri Trump sér við og tók í spaðann á Kristrúnu Frostadóttur en engum öðrum.

Innlent
Fréttamynd

Danir ætla að verja Græn­land

Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með fréttum að Trump, forseti Bandaríkjanna hefur gert sjálfan sig að helsta fréttaefni leiðtogafundarins í Ankara með yfirlýsingum um óánægju með Atlantshafsbandalagið, hótunum um að draga bandarískt herlið frá Evrópu og ítrekun á ásetningi um að ná fullum yfirráðum yfir Grænlandi.

Skoðun
Fréttamynd

Um­mæli Trump um Græn­land þurfi ekki að koma á ó­vart

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland þurfi ekki að koma á óvart. Hún segist þó vongóð um að farsæl lausn náist þar sem formlegur vinnuhópur bandarískra, danskra og grænlenskra stjórnvalda sé starfandi.

Innlent
Fréttamynd

Trump sló harðan tón við upp­haf leið­toga­fundar NATO

Bandaríkjaforseti hefur ítrekað á ný að Grænland eigi að tilheyra Bandaríkjunum. Hann lét í ljós vonbrigði og óánægju með viðbrögð NATO-ríkja við stríðinu í Íran. Hann hafi lagt próf fyrir evrópsk bandalagsríki þegar hann hafi óskað eftir stuðningi þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Enn besta lausnin að kaupa Græn­land

Að kaupa Grænland er að mati Bandaríkjamanna enn besta langtímalausnin til að mæta öryggisþörfum Bandaríkjanna á norðurslóðum. Þetta kom fram í máli ónafngreinds bandarísks embættismanns á blaðamannafundi í Tyrklandi í dag. Samningaviðræður hafa staðið yfir milli Bandaríkjanna og Danmerkur síðustu mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Kominn á sjúkra­hús eftir krefjandi ferð

Veikur einstaklingur sem sóttur var af Landhelgisgæslunni um borð í skemmtiferðaskip sem var statt á milli Grænlands og Vestfjarða í kvöld er kominn á Landspítalann. Þyrla og flugvél gæslunnar lentu í Reykjavík um klukkan 22 og var hann í kjölfarið fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús.

Innlent
Fréttamynd

Námu­félagið Green­land Mines tryggir sér for­kaups­rétt í Helgu­vík

Námufyrirtækið Greenland Mines hefur náð samkomulagi við Reykjanes Investment sem veitir bandaríska félaginu forkaupsrétt á um 60 þúsund fermetra lóð sem áður hýsti kísilverið í Helguvík ásamt fyrirliggjandi iðnaðarhúsnæði og innviðum. Samkvæmt áformum Greenland Mines gæti svæðið orðið að miðstöð fyrir vinnslu og flutninga á sjaldgæfum málmum tengt verkefnum félagsins á Grænlandi.

Innherjamolar
Fréttamynd

Icelandair hefur flug til Qaqortoq

Icelandair flaug í gær sitt fyrsta flug til Qaqortoq á Suður-Grænlandi. Flogið verður til Qaqortoq fjórum sinnum í viku frá júní til ágúst, segir í fréttatilkynningu frá Icelandair.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

SAS fellir niður allt flug til Græn­lands

Skandinavíska flugfélagið SAS hefur óvænt fellt niður alla flugáætlun sína í sumar milli Danmerkur og Grænlands. Félagið segir ástæðurnar vera hærra eldsneytisverð og minni eftirspurn.

Erlent
Fréttamynd

Funduðu enn og aftur um Græn­land

Fulltrúar Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur hittust í gær í Washington DC á leynilegum samningafundi um Grænland og samskipti ríkjanna en samkvæmt danska ríkisútvarpinu er um að ræða enn einn fundinn á þessu ári þar sem fulltrúarnir hittast til að ræða málefni landsins.

Erlent
Fréttamynd

Græn­lendingar veiða þorsk frá Ís­landi

Allir sem láta sig fiskveiðar varða á Íslandi ættu að kynna sér gang mála í ráðgjöf og veiðum Grænlendinga á þorski, hérna rétt hinu megin við miðlínu Íslands og Grænlands, svæði er nefnist Dohrn bankinn og er nær alfarið Grænlands megin miðlínunnar. Þar eru Grænlendingar að stunda veiðar á þorski og er það varla frásögufærandi nema fyrir tvennt. Samkvæmt opinberri skýrslu „FORVALTNINGSPLAN For torsk i Grønland“ frá grænlenskum stjórnvöldum varðandi nýtingu/veiðistjórnun þorsks á Grænlandsmiðum, er þorskurinn sem veiðist við Austur-Grænland og mestmegnis á Dohrn bankanum, alveg upp við miðlínu Íslands og Grænlands, fullvaxta þorskur er kemur í göngum frá Íslandi, líklega í fæðuleit. Grænlendingar veiða þorsk langt umfram ráðgjöf fiskifræðinga, ólíkt Íslendingum.

Skoðun
Fréttamynd

Banda­rískur elli­líf­eyris­þegi býður veg­far­endum tugi milljóna

Bandarískur ellilífeyrisþegi á níræðisaldri hefur undanfarna daga gengið um Nuuk, höfuðborg Grænlands, og boðið vegfarendum 25 milljónum króna fyrir að greiða atkvæði með því að ganga inn í Bandaríkin, kæmi til slíkrar atkvæðagreiðslu. Hann rekur þetta erindi sitt sjálfur og bandaríska sendiráðið kannast ekkert við hann.

Erlent