Innlent

Sendi­herrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps

Agnar Már Másson skrifar
Þorgerður Katrín brýndi fyrur Long að færslan væri „með öllu óviðeigandi“.
Þorgerður Katrín brýndi fyrur Long að færslan væri „með öllu óviðeigandi“. Samsett Mynd

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna, á sinn fund í kjölfar færslu Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem sýndi kort þar sem Ísland, Grænland og gervöll Norður-Ameríka voru málið í bandarísku fánalitunum.

„Utanríkisráðherra kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund í kjölfar þess að forseti Bandaríkjanna birti í dag þá samfélagsmiðlafærslu sem vísað er til. Þar var komið skýrt á framfæri þeirri afstöðu að færslan væri með öllu óviðeigandi,“ segir í  svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Vísis.

Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í dag gervigreindarkort á Truth Social þar sem gervöll Norður-Ameríka auk Grænlands og Íslands er lögð undir bandarísku fánalitina.

Forsetinn skrifaði engan texta með færslunni en Trump-liðar hafa áður birt slíkt kort af Grænlandi enda hefur hann ítrekað lýst því yfir að hann vilji leggja undir sig Grænland. Hann lét þau ummæli falla nýlega að eyjan yrði orðin hluti af Bandaríkjunum í janúar 2029.

Þessa mynd af Billy Long sendiherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra birti bandariska sendiráðið í síðasta mánuði.Bandaríska sendiráðið

Trump hefur aftur á móti ekki lýst áhuga á Íslandi með beinum hætti, þó að hann hafi í ræðu í byrjun árs ítrekað vísað til Grænlands sem Íslands. Þá var greint frá því í janúar að Billy Long, nýr sendiherra Bandaríkjanna í Reykjavík, hefði grínast með það að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna – væntanlega á eftir Grænlandi – en hann baðst síðan afsökunar á því.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×