Grænland

Grænland

Höfuðborg: Nuuk. Mannfjöldi: 56 þúsund. Flatarmál: 2.166.000 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Telja ótíma­bært að af­skrifa NATO þrátt fyrir á­föllin í for­setatíð Trumps

 Víðfemt net bandalaga vestrænna ríkja undir forystu Bandaríkjanna hefur orðið fyrir meira tjóni á fyrstu átján mánuðum síðara kjörtímabils Donalds Trump en á öllu því fyrra. Tveir fyrrverandi háttsettir embættismenn Bandaríkjastjórnar telja engu að síður að NATO geti staðið af sér áfallið og jafnvel orðið öflugra, að því gefnu að það takist að endurmóta sambandið við Evrópu og endurvekja traust á því að Washington standi við varnarskuldbindingar sínar.

Innherji

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Græn­lendingar fá fría læknis­þjónustu í Dan­mörku

Heilbrigðisráðherrar Danmerkur og Grænlands hafa komist að samkomulagi um að Grænlendingar geti nálgast fría læknisþjónustu í Danmörku. Hingað til hafa Grænlendingar þurft að sækja um sérstök leyfi til að nálgast læknisþjónustu í Danmörku en Grænlendingar hafa stýrt eigin heilbrigðismálum síðan árið 1992.

Erlent
Fréttamynd

Sneri sér við, greip í spaðann á Krist­rúnu og gekk út

Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins fór fram í Ankara í Tyrklandi í gær og í morgun en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur farið mikinn þar. Athygli vakti að eftir myndatöku með leiðtogum bandalagsins sneri Trump sér við og tók í spaðann á Kristrúnu Frostadóttur en engum öðrum.

Innlent
Fréttamynd

Danir ætla að verja Græn­land

Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með fréttum að Trump, forseti Bandaríkjanna hefur gert sjálfan sig að helsta fréttaefni leiðtogafundarins í Ankara með yfirlýsingum um óánægju með Atlantshafsbandalagið, hótunum um að draga bandarískt herlið frá Evrópu og ítrekun á ásetningi um að ná fullum yfirráðum yfir Grænlandi.

Skoðun
Fréttamynd

Um­mæli Trump um Græn­land þurfi ekki að koma á ó­vart

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland þurfi ekki að koma á óvart. Hún segist þó vongóð um að farsæl lausn náist þar sem formlegur vinnuhópur bandarískra, danskra og grænlenskra stjórnvalda sé starfandi.

Innlent
Fréttamynd

Trump sló harðan tón við upp­haf leið­toga­fundar NATO

Bandaríkjaforseti hefur ítrekað á ný að Grænland eigi að tilheyra Bandaríkjunum. Hann lét í ljós vonbrigði og óánægju með viðbrögð NATO-ríkja við stríðinu í Íran. Hann hafi lagt próf fyrir evrópsk bandalagsríki þegar hann hafi óskað eftir stuðningi þeirra.

Erlent
Fréttamynd

Enn besta lausnin að kaupa Græn­land

Að kaupa Grænland er að mati Bandaríkjamanna enn besta langtímalausnin til að mæta öryggisþörfum Bandaríkjanna á norðurslóðum. Þetta kom fram í máli ónafngreinds bandarísks embættismanns á blaðamannafundi í Tyrklandi í dag. Samningaviðræður hafa staðið yfir milli Bandaríkjanna og Danmerkur síðustu mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Kominn á sjúkra­hús eftir krefjandi ferð

Veikur einstaklingur sem sóttur var af Landhelgisgæslunni um borð í skemmtiferðaskip sem var statt á milli Grænlands og Vestfjarða í kvöld er kominn á Landspítalann. Þyrla og flugvél gæslunnar lentu í Reykjavík um klukkan 22 og var hann í kjölfarið fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús.

Innlent
Fréttamynd

Námu­félagið Green­land Mines tryggir sér for­kaups­rétt í Helgu­vík

Námufyrirtækið Greenland Mines hefur náð samkomulagi við Reykjanes Investment sem veitir bandaríska félaginu forkaupsrétt á um 60 þúsund fermetra lóð sem áður hýsti kísilverið í Helguvík ásamt fyrirliggjandi iðnaðarhúsnæði og innviðum. Samkvæmt áformum Greenland Mines gæti svæðið orðið að miðstöð fyrir vinnslu og flutninga á sjaldgæfum málmum tengt verkefnum félagsins á Grænlandi.

Innherjamolar
Fréttamynd

Icelandair hefur flug til Qaqortoq

Icelandair flaug í gær sitt fyrsta flug til Qaqortoq á Suður-Grænlandi. Flogið verður til Qaqortoq fjórum sinnum í viku frá júní til ágúst, segir í fréttatilkynningu frá Icelandair.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

SAS fellir niður allt flug til Græn­lands

Skandinavíska flugfélagið SAS hefur óvænt fellt niður alla flugáætlun sína í sumar milli Danmerkur og Grænlands. Félagið segir ástæðurnar vera hærra eldsneytisverð og minni eftirspurn.

Erlent
Fréttamynd

Funduðu enn og aftur um Græn­land

Fulltrúar Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur hittust í gær í Washington DC á leynilegum samningafundi um Grænland og samskipti ríkjanna en samkvæmt danska ríkisútvarpinu er um að ræða enn einn fundinn á þessu ári þar sem fulltrúarnir hittast til að ræða málefni landsins.

Erlent