„Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. september 2026 11:19 Þorgerður Katrín var spurð út í sín viðbrögð á blaðamannafundi. Vísir/Anton Brink Forsætisráðherra og utanríkisráðherra segja kort Bandaríkjaforseta þar sem Ísland var hluti af Bandaríkjunum ekki fyndið. Það sé ekkert grín að ógna fullveldi ríkja á þennan máta sem sé sömuleiðis móðgandi.
Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í gær mynd á samfélagsmiðlum þar sem Bandaríkin, Kanada, Grænland og Ísland voru öll lituð með bandaríska fánanum og á stóð Bandaríkin. Í kjölfarið kallaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, á sinn fund. Hún er sögð hafa brýnt fyrir Long að færslan væri óviðeigandi. „Þetta var náttúrulega alveg skýrt af okkar hálfu og það var ástæða til þess að kalla sendiherrann á fund og setja fram alveg skýr skilaboð af okkar hálfu um að þetta væri algjörlega óviðeigandi,“ sagði Þorgerður aðspurð um viðbrögð á blaðamannafundi í morgun. Hún hafi heyrt innan úr bandarískri stjórnsýslu að taka núverandi Bandaríkjaforseta bókstaflega en samt sem áður eigi að taka honum alvarlega. Þrátt fyrir allt þetta haldi Ísland áfram samstarfi sínu við Bandaríkin en í því felist ýmis tækifæri. „Ég undirstrika að Ísland er fullvalda, sjálfstætt ríki sem ber ábyrgð á sínum örlögum sjálft,“ segir Þorgerður. „Þetta er ekki grín að mínu mati. Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín.“ Móðgun við Íslendinga Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók einnig til máls um atvikið og tók undir orð Þorgerðar. „Að mínu mati er þessi undirtónn sem þarna heyrist fáránlegur. Þetta er móðgun við Íslendinga, Kanadamenn, Grænlendinga, að tjá sig með þessum hætti og við eigum að vera skýr með það,“ segir Kristrún. „Það er ekkert fyndið eða eðlilegt að gera grín að fullveldi ríkja, sérstaklega í dag þegar það er ekki sjálfgefið.“ Hún hyggst ítreka þessi orð í samskiptum sínum við ráðamenn vestanhafs en tekur fram að hún hafi ekki fundið fyrir því að þetta vandamál væri til staðar í almennum samskiptum við ráðamennina. „Það er augljóslega ekki eðlilegar aðstæður sem við erum að finna okkur í þessum hluta heimsins.“
Donald Trump Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bandaríkin Grænland Kanada Utanríkismál Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar Innlent Fleiri fréttir Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu