Kanada

Kanada

Höfuðborg: Ottawa. Mannfjöldi: 41,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.984.670 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Saka Kanada­menn um af­skipti af kosningunum

Ríkisstjórn Donalds Trump hefur sakað embættis- og stjórnmálamenn í Kanada um að hafa óviðeigandi afskipti af bandarískum stjórnmálum í aðdraganda þingkosninganna í næsta mánuði. Sendiráð Bandaríkjanna í Kanada hefur birt sérstakt skjal þar sem kvartað er yfir því að ráðamenn í Kanada taki ásakanirnar ekki alvarlega.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn

Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri seríu gamanþáttanna White Lotus, hefur bæst í leikhóp kvikmyndarinnar Hafið er svart. Hann mun þar leika á móti Baltasar Kormáki og Ólafi Darra í spennumynd um martraðarkennda sjóferð.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra

Kanadíski leikstjórinn Kari Skogland mun leikstýra spennuþáttaseríunni Stóra bróðir (Vigilant á ensku) sem byggir á samnefndri glæpasögu eftir Skúla Sigurðsson og fjallar um blaðamann sem tekst á við dularfulla tálbeituglæpi. Serían hefur verið í þróun í nokkur ár, Ólafur Darri Ólafsson leiðir handritaskrifin og hefjast tökur hérlendis í lok mánaðar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Anne Carson hlýtur bók­mennta­verð­laun Nóbels

Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár en hún býr að hluta til á Íslandi og hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022. Carson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í klassískum fræðum og er þekkt fyrir að blanda saman ljóðum, prósa og goðafræði í verkum sínum.

Menning
Fréttamynd

Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec

Quebecbúaflokkurinn (Parti Québécois) vann fylkiskosningarnar í Quebec-fylki í Kanada í gær. Flokkurinn vill að fylkið lýsi yfir sjálfstæði frá Kanada og hefur leiðtogi flokksins, sem verður jafnframt að öllum líkindum næsti fylkisstjóri Quebec, lofað atkvæðagreiðslu um málið á næstunni.

Erlent
Fréttamynd

„Rosa­legt brot á mínu einka­lífi“

Líf húðflúrslistakonunnar Katelyn Larson breyttist gríðarlega þegar kærasti hennar til margra ára öðlaðist alheimsfrægð á örskotsstundu. Sá er leikarinn Hudson Williams sem sló algjörlega í gegn í hlutverki sínu sem Shane Hollander í hokkíástarþáttunum Heated Rivalry. Velgengnin hefur ekki bara verið dans á rósum og hafa aðdáendur ítrekað farið yfir mörk bæði Hudsons og Katelynar.

Lífið
Fréttamynd

Noregur og Kanada auka sam­starf í varnar­málum

Forsætisráðherra Noregs segist vinna að því að efla samstarf við Kanada í varnar- og norðurslóðamálum. Hann sér fyrir sér að Norðmenn, Kanadamenn og Íslendingar vinni nánar með Evrópusambandinu að málefnum norðurslóða.

Erlent
Fréttamynd

Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts

Íslendingar voru ekki einir um það að lítast ekki á blikuna þegar þeir sáu landsvæði sitt sveipað bandarískum fánalitum á korti sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti á samfélagsmiðlum í byrjun mánaðar. Frakklandsforseti og Kanadamenn senda Bandaríkjaforseta væna pillu vegna kortsins.

Erlent
Fréttamynd

Danskar F-35 lentu á Græn­landi í fyrsta sinn

Dönskum herþotum af gerðinni F-35 var á miðvikudaginn lent á Grænlandi í fyrsta sinn. Þar tóku flugmenn þeirra þátt í æfingum með flugmönnum frá Bandaríkjunum á F-16 og Kanada á F-18. Flugvélarnar eru gerðar út frá Keflavík um þessar mundir.

Erlent
Fréttamynd

„Þetta snýst um full­veldi“

Dýpra samstarf Kanada og Evrópu er nauðsynlegt til að sporna gegn því að stærri og öflugri ríki grafi undan fullveldi smærri þjóða. Þetta sagði Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í ræðu sem hann hélt á Evrópuþinginu í morgun. Þar tók hann vel í tillögu um að Kanada yrði fyrsta ríkið til að hljóta aukaaðild að Evrópusambandinu.

Erlent
Fréttamynd

Hótar háum tollum og að hætta við­skiptum við ESB

Donald Trump segir að það að hleypa Kanada inn í Evrópusambandið með einhverjum hætti gæti verið „fjandsamlegt“ gagnvart Bandaríkjunum. Forsetinn hótar því að beita ESB enn frekari tollum og jafnvel hætta viðskiptum við Evrópu á einhverjum sviðum.

Erlent
Fréttamynd

Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“

Óttar Guðmundsson, gagnasérfræðingur hjá Gangverk, segir mikilvægt að starfsmenn verði ekki að eins konar „kjötstykkjum“ við notkun gervigreindarinnar. Gervigreindin sé aðeins eitt tól af mörgum sem fólk hafi sér til aðstoðar í vinnu en eigi ekki að stýra vinnunni. Hann segir segir stjórnendur reglulega leita til þeirra sem vilji beita gervigreindinni en viti ekki hvernig sé best að gera það. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bannar inn­flutning á kana­dískum vörum

Bandaríkjamenn hafa bannað innflutning á fjölda kanadískra vara, til að mynda áfengi, mjólkurvörum og mótorhjólum. Þetta er nýjasti liðurinn í viðskiptastríði nágrannaríkjanna en samband ríkjanna hefur sjaldan verið jafn slæmt og það er í dag.

Erlent
Fréttamynd

Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins

Þrátt fyrir háværan áróður og beitingu tolla milli Bandaríkjanna og Kanada segjast greinendur vestanhafs sannfærðir um að ríkisstjórnir landanna muni komast að samkomulagi. Hvorki Bandaríkjamenn né Kanadamenn vilji í raun vera í viðskiptastríði. Donald Trump og félagar virðast þó telja sig með pálmann í höndunum.

Erlent
Fréttamynd

Car­n­ey verður við­staddur stefnu­ræðu ESB-for­seta

Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hefur þekkst boð um að vera viðstaddur stefnuræðu Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í næsta mánuði. Sambandið og Kanada hafa færst nær hvert öðru í skugga ágreinings við Bandaríkjastjórn.

Erlent
Fréttamynd

Kanada svarar tollum Banda­ríkja­stjórnar

Fjármálaráðherra Kanada kynnti í dag hefndartolla Kanada á ýmsar bandarískar vörur sem svar við nýjum tollum Bandaríkjastjórnar. Lagður verður tollur á bilinu 15 til 50 prósent á ýmsar bandarískar vörur og taka þeir gildi á miðnætti 8. september.

Viðskipti erlent