Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Kjartan Kjartansson skrifar 26. ágúst 2026 11:22 Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, og Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, heilsast á G7-fundi í Frakklandi í júní. Carney verður gestur á stefnuræðu von der Leyen í næsta mánuði. Vísir/EPA Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hefur þekkst boð um að vera viðstaddur stefnuræðu Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í næsta mánuði. Sambandið og Kanada hafa færst nær hvert öðru í skugga ágreinings við Bandaríkjastjórn.
Framkvæmdastjórn ESB bauð Carney að vera viðstaddur stefnuræðuna sem von der Leyen flytur í Strasbourg 16. september. Í henni fer hún yfir áherslur sínar fyrir sambandið. Evrópskur embættismaður staðfestir boðið við blaðið Politico. Sambandið hafi boðið Carney til marks um náið samband þess og Kanada og vilja beggja til þess að þétta raðirnar. „Á þessum tímum áskorana er nauðsynlegt að efla sambönd okkar um allan heim,“ hefur blaðið eftir heimildarmanni sínum. Carney hefur staðið í ströngu í viðskiptastríði við Bandaríkjastjórn. Donald Trump Bandaríkjaforseti sleit viðræðum við kanadísk stjórnvöld og lagði tolla á innfluttar vörur frá Kanada í vikunni. Stjórn Carney svaraði með eigum tollum á bandarískar vörur í gær. Vaxandi togstreita hefur verið á milli Bandaríkjastjórnar og bandalagsríkja hennar beggja vegna Atlantsála frá því að Trump tók aftur við völdum í fyrra. Ræða sem Carney hélt á efnahagsráðstefnunni í Davos í vetur vakti mikla athygli en í henni kallaði hann eftir bandalagi lýðræðisríkjaí ljósi endaloka heimsskipanar undanfarinna áttatíu ára. „Miðlungsveldi verða að vinna saman því ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum,“ sagði Carney í Davos.
Evrópusambandið Kanada Bandaríkin Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira