Innlent

Þor­gerður Katrín í ítar­legu við­tali

Lovísa Arnardóttir skrifar
Þorgerður Katrín ræðir við Pál Magnússon í Sprengisandi í dag.
Þorgerður Katrín ræðir við Pál Magnússon í Sprengisandi í dag. Bylgjan

Páll Magnússon tekur á móti góðum gestum í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Þátturinn hefst að vanda klukkan 10 og stendur til 12. Þar verður að finna ítarlegt viðtal við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formann Viðreisnar. Hægt er að horfa á þáttinn á Sýn því Bakgarðshlaupið er í gangi á sjónvarpsstöð Vísis. 

En fyrst verður fjallað um vantraust og stífni í samskiptum ríkis og sveitarfélaga með Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra í Garðabæ og nýkjörnum formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Eyjólfi Ármannssyni, ráðherra sveitarstjórnarmála.

Formaður Heimilis og skóla, Sigvaldi Egill Lárusson, hélt því fram nýlega að kjarabarátta kennara hefði komið niður á menntun barnanna okkar. Hann ræðir málið við Magnús Þór Jónsson, formann Kennarasambandsins.

Svo kemur Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir lögmaður í lokin sem skrifaði pistil þar sem hún benti meðal annars á að enski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe eigi orðið hátt í helming af byggilegu landi í Norðausturkjördæmi og sé orðinn fjórði stærsti landeigandinn á Íslandi, á eftir ríkissjóði, sveitarfélögum og þjóðkirkjunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×