Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra og Kim Kielsen þingforseti Grænlands hafa sagt sig úr flokki sínum Siumut í mótmælaskyni eftir að formaður flokksins ákvað að ganga úr ríkisstjórnarsamstarfinu. Erlent 17.3.2026 18:33
Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Íslensk flugfélög hófu snemma flug til Grænlands. Fyrir 1950 voru bæði Flugfélag Íslands og Loftleiðir farin að sinna þar ýmsum verkefnum. Flugfélag Íslands, síðar Flugleiðir og nú Icelandair, hefur lengst af verið umvifamest íslenskra félaga í Grænlandsflugi. Innlent 15.3.2026 07:57
Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Grænlandsvinafélagið Kalak og aðrir Grænlandsvinir standa fyrir samstöðufundi í Norræna húsinu í dag. Þar verða ræðuhöld, grænlenskt listafólk sýnir muni sína, tónlistarfólk stígur á stokk og gestir munu meðal annars geta spókað sig í grænlenskum þjóðbúningi. Innlent 14.3.2026 11:57
Um helmingur landsmanna hefur miklar áhyggjur af ásælni Bandaríkjanna í Grænland Innlent 28.2.2026 15:19
Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Nokkrar grænlenskar heimasíður urðu fyrir svokallaðri dreifðri álagsárás í gær, þeirra á meðal er heimasíða fjölmennasta sveitarfélags landsins. Erlent 21. febrúar 2026 08:45
Fleiri telja Bandaríkin andstæðing en bandamann Rúmlega fjörutíu prósent svarenda í skoðanakönnun segjast telja Bandaríkin andstæðing Íslands en tæpur þriðjungur að þau séu bandamaður. Fjórðungur svarenda segist ekki vita svarið. Innlent 19. febrúar 2026 10:27
Ekki viss um að hægt sé að lappa upp á samband Evrópu og Bandaríkjanna Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, segist ekki sjá hvernig hægt sé að lagfæra samband Evrópu og Bandaríkjanna nú þegar þau deila ekki lengur sömu heimssýninni. Hann telur öll kurl ekki enn komin til grafar í deilum Bandaríkjanna við Evrópumenn um Grænland. Innlent 18. febrúar 2026 10:31
Amaroq ætlar að færa sig yfir á Aðalmarkaðinn í London síðar á árinu Amaroq hefur ráðið alþjóðlega fjárfestingabankann Citigroup til að undirbúa skráningu á Aðalmarkað Kauphallarinnar í London síðar á árinu í því skyni að auðvelda félaginu að fá fjármögnun frá stórum erlendum stofnanafjárfestum og vísitölusjóðum. Aðalmarkaðurinn í London hýsir í dag flest af helstu námufyrirtækjum heimsins. Innherjamolar 18. febrúar 2026 10:30
Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Opinber heimsókn Friðriks 10. Danakonungs til Grænlands hefst í dag, þegar konungurinn lendir í Nuuk klukkan 11.30. Hann mun meðal annars snæða hádegisverð og kvöldverð í húsi Hans Egede, sem er elsta hús landsins, og ræða við íbúa í menningarhúsinu Katuaq. Erlent 18. febrúar 2026 06:48
Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Lindsay Graham er sagður hafa hellt sér yfir Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Frederik Nielsen, formann landsstjórnar Grænlands, á öryggisráðstefnu í Þýskalandi á laugardag. Erlent 17. febrúar 2026 22:16
Telur Trump enn girnast Grænland Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, telur að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, girnist enn Grænland, þó hann hafi dregið úr hótunum sínum um að taka eyjuna með valdi. Þessu var hún spurð að á öryggisráðstefnunni í München í gær og sagðist hún því miður telja að lítið hefði breyst hjá Trump. Erlent 15. febrúar 2026 07:46
Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Forsætisráðherra Danmerkur segir Evrópa verði að hervæðast í ljósi þess að Bandaríkjamenn vilji segja skilið við álfuna. Hann ætlar að funda með utanríkisráðherra Bandaríkjanna um Grænland á stórri öryggisráðstefnu í München. Erlent 13. febrúar 2026 09:10
Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Utanríkisráðherra sótti í dag fund varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna sem haldinn var í Brussel. Ráðherra Bandaríkjanna mætti ekki á fundinn en Þorgerður Katrín segir að engu að síður hafi jákvæð skref verið tekin í vinnuhópi Danmerkur, Grænlands og Bandaríjkanna um málefni Grænlands. Innlent 12. febrúar 2026 18:47
Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Íbúi á Eyrarbakka, sem hefur heimsótt Grænland nokkrum sinnum hvetur Íslendinga til að heimsækja landið því fólkið þar sé svo blítt, gestrisið og stolt af landi sínu. Mótorhjól eru hins vegar alveg bönnuð í Grænlandi. Lífið 7. febrúar 2026 13:03
Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Þingmaður eina stjórnarandstöðuflokks Grænlands hefur þungar áhyggjur af umsvifum Guðmundar Kristjánssonar, iðulega kennds við Brim, í grænlenskum sjávarútvegi. Í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi Grænlendinga í dag spurði hann hvort grænlenska þjóðin yrði af fé vegna innherjaviðskipta til Íslands og hvort Arctic Prime-samsteypan sem Guðmundur er stór eigandi í sé í raun leppur sem gætir hagsmuna Íslendinga. Viðskipti innlent 4. febrúar 2026 18:27
Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Gullverð hefur lækkað nokkuð skarp á heimsvísu síðan á fimmtudag, þegar það náði sögulegum hæðum. Samhliða lækkun gullverðs hefur gengi íslenska námafélagsins Amaroq lækkað um rúmlega ellefu prósent. Viðskipti innlent 2. febrúar 2026 10:57
Að læra af fortíðinni Þegar ég tók mín fyrstu skref á Evrópuráðsþinginu fljótlega eftir síðustu kosningar fann ég fljótt að rödd mín á þessum vettvangi var ómótuð og oft á tíðum óörugg. Það tekur tíma að kynna sér reglur, hefðir og ferla sem hafa mótast allt frá stofnun þingsins fyrir rúmum sjötíu árum. Á vettvangi sem þessum er auðvelt að finna fyrir smæð sinni , bæði persónulega og pólitískt. Skoðun 31. janúar 2026 08:30
Segir Trump ekki reiðan Íslandi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sé ekki reiður Íslandi. Trump talaði nokkrum sinnum í síðustu viku, á tveimur mismunandi dögum, um Ísland. Í einu tilfelli talaði hann um að vegna Íslands væri öðrum leiðtogum í Atlantshafsbandalaginu illa við sig og að Ísland hefði leitt til lækkana á mörkuðum vestanhafs. Erlent 28. janúar 2026 17:40
Markaðsvirði Amaroq rauk upp og rauf hundrað milljarða múrinn Markaðsvirði Amaroq rauf hundrað milljarða króna múrinn í gær þegar gengi bréfa Amaroq hækkaði skarpt, einkum eftir að markaðurinn opnaði í Kanada. Innherjamolar 24. janúar 2026 13:29
„Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Útlit er fyrir að ákveðinn vendipunktur hafi orðið á sambandi Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Þjóðarleiðtogar og embættismenn í Evrópu eru sagðir líta á tilraunir Trumps til að kúga Evrópu með tollum og hótunum til að eignast Grænland marka tímamót. Erlent 24. janúar 2026 11:58
Gervigreindin er risi á brauðfótum: Hve tæpt stöndum við í raun? Við tölum oft um gervigreind eins og hún sé andi sem svífur yfir vötnum, óháð efnislegum takmörkunum. Við köllum hana „skýið“ eða „algrímið“ en það er grundvallarmisskilningur því gervigreind er, þegar allt kemur til alls, þungaiðnaður. Skoðun 24. janúar 2026 08:00
„Við getum gert það sem við viljum“ Línur eru farnar að skýrast um innihald samkomulagsins sem náðist á fundi Marks Rutte, framkvæmdastjóra NATO, og Donalds Trump Bandaríkjaforseta í gær, þó enn sé margt á huldu. Forsetinn segir að Bandaríkin megi gera það sem þeim sýnist á Grænlandi „að eilífu.“ Enn er margt ófrágengið, að sögn heimildarmanna New York Times. Erlent 22. janúar 2026 22:41
Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Of snemmt er að segja til um hvort viðræður Bandaríkjaforseta og framkvæmdastjóra NATO séu jákvætt skref í samskiptum Bandaríkjanna við Danmörku og Grænland á meðan lítið er vitað um innihald rammasamkomulagsins, að sögn utanríkisráðherra. Innlent 22. janúar 2026 18:09
Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Formaður landsstjórnar Grænlands segist lítið vita um innihald rammasamkomulags Bandaríkjaforseta og framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins (NATO). Viðræður þeirra hafa leitt til stiglækkunar í samskiptum Bandaríkjanna við Grænland, Danmörku og önnur bandalagsríki í Evrópu. Erlent 22. janúar 2026 17:11
Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Mikil óvissa ríkir varðandi meint samkomulag sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, gerðu í gær. Óljóst er um hvað þeir sömdu eða hvort þeir sömdu um eitthvað yfir höfuð. Erlent 22. janúar 2026 12:18