Rússland
67 68 69 70 71 72 73 74 75 … 100 ›
Vilja rússneska hermenn frá landamærum Úkraínu Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti ráðamenn í Rússlandi til að flytja hermenn sína á brott frá landamærum Úkraínu. Hann sagði að innrás í Úkraínu myndi hafa afleiðingar og meðal annars yrðu hinum ströngustu refsiaðgerðum beitt gegn Rússlandi. Erlent 1.12.2021 21:46
Sagði rússneska menn hafa ætlað að fremja valdarán í Úkraínu Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að komist hafi upp um tilraun til valdaráns þar í landi. Til hafi staðið að fella ríkisstjórn hans í næstu viku og að aðilar frá Rússlandi hafi náðst á upptöku reyna að fá ríkasta auðjöfur Úkraínu til að taka þátt í valdráninu. Erlent 26.11.2021 17:00
Öryggisfulltrúar handteknir eftir námuslysið í Síberíu Lögreglumenn í Síberíu handtóku tvo öryggisfulltrúa sem eru grunaðir um glæpsamlega vanrækslu eftir að fleiri en fimmtíu manns fórust í kolanámu í Kemerovo-héraði í gær. Slysið er eitt það versta sinnar tegundar frá því á tímum Sovétríkjanna. Erlent 26.11.2021 09:19
Rúmlega fimmtíu námuverkamenn í Síberíu taldir af Að minnsta kosti fjórtán eru látnir og tugir eru taldir af eftir eldsvoða í námu í Síberíu. Yfirvöld í Rússlandi hafa hætt leit vegna hættu á sprengingu í námunni. Erlent 25.11.2021 20:30
Ætla að banna helstu mannréttindasamtök Rússlands Rússneskir saksóknarar kröfðust þess í dag að hæstiréttur leysti upp ein helstu mannréttindasamtök landsins. Þau afhjúpuðu meðal annars voðaverk hersins í Téténíustríðunum og rannsaka kúgun andófsfólks í Sovétríkjunum. Erlent 25.11.2021 14:55
Úkraínumenn og Rússar halda heræfingar á landamærum Spennan í Austur-Evrópu magnast enn en bæði Rússar og Úkraínumenn hafa verið að halda heræfingar á landamærum sínum. Staðan á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlans fer þá versnandi. Erlent 24.11.2021 11:59
Rússneskur aðmíráll segir kafbát NATO hafa verið siglt á Kursk Vyachselav Popov, fyrrverandi aðmíráll í Rússlandi, heldur því fram að kafbátur frá ríki í Atlantshafsbandalaginu hafi valdið því að rússneski kafbáturinn Kursk hafi sokkið árið 2000. Eigin rannsókn Rússa leiddi í ljós að kafbáturinn sökk eftir sprengingu vegna gallaðs tundurskeytis. Erlent 22.11.2021 15:19
„Auðvitað er þetta svikamylla“ Sérfræðingur í málefnum Austur-Evrópu segir Hvít-Rússa beita „nýju vopni“ í átökum á landamærunum. Dr. Hilmar Þór Hilmarsson var í viðtali á Sprengisandi í morgun og segir ástandið slæmt. Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, hefur verið sakaður um að nota flótta- og farandfólk sem „peð“ í deilum við Evrópusambandið. Erlent 21.11.2021 15:00
Leggja gaddavír á landamærin til að æfa viðbrögð við flóttamannastraumi Eistnesk stjórnvöld kölluðu hátt á annað þúsund varaliðshermenn út á fyrirvaralausa æfingu þar sem þeir eru látnir leggja gaddavír yfir tugi kílómetra af landamærum landsins að Rússlandi. Æfingin tengist flóttamannavanda sem Hvítrússar eru sakaðir um að valda. Erlent 17.11.2021 14:36
Rússar staðfesta að þeir hafi skotið gamlan gervihnött Varnarmálaráðuneyti Rússlands staðfesti í dag að það hefði skotið á gamlan gervihnött í vopnatilraun. Það hafnar því að geimruslið sem myndaðist hafi teflt lífi geimfara í Alþjóðlegu geimstöðinni eða öðru gervihnöttum í hættu. Erlent 16.11.2021 13:16
Vopnatilraun Rússa kennt um geimruslahaug sem ógni Alþjóðageimstöðinni Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur fordæmt nýlega vopnatilraun Rússa í geimnum sem varð þess valdandi að geimruslahaugur varð til, ef svo má að orði komast. Rússar eru sakaðir um að hafa sprengt gervitungl í tætlur með flugskeyti. Geimruslið er sagt ógna Alþjóðlegu geimstöðinni. Erlent 15.11.2021 23:30
Pútín svarar hótunum Lúkasjenka Yfirvöld í Hvíta-Rússlandi hótuðu að skrúfa fyrir gasleiðslur sem liggja til ríkja Evrópusambandsins í vikunni. Vladimir Pútín, forseti Rússlands, tekur hótununum Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, ekki af léttúð. Erlent 13.11.2021 14:15
Eftirlýstur eftir að hafa birt myndbönd af pyntingum í rússneskum fangelsum Stofnandi rússneskra mannréttindasamtaka sem vakta og opinbera ofbeldi í rússneskum fangelsum, er eftirlýstur í Rússlandi. Vladimir Osechkin og samtök hans Gulagu.net birtu nýverið myndbönd sem sýndu pyntingar á föngum í rússneskum fangelsum. Erlent 12.11.2021 23:54
Lúkasjenka óskar eftir hernaðaraðstoð frá Rússlandi Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, hefur óskað eftir því að fá lánaðar sprengjuflugvélar, sem geti borið kjarnorkuvopn, frá Rússum. Samkvæmt talsmanni Kreml er Vladímír Pútín, forseti Rússlands, í stöðugu sambandi við Lúkasjenka vegna ástandsins á landamærunum. Erlent 11.11.2021 10:33
Sakar „höfuðpaur í Moskvu“ um að standa að baki flóttamannakrísunni Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands, hefur sakað Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að vera á bak við flóttamannakrísuna sem hefur myndast á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands. Erlent 9.11.2021 23:15
ESB segir Lúkasjenka haga sér eins og glæpamaður Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, um að laða flótta- og farandfólk til landsins og nota það í pólitískum tilgangi. Hegðun hans sé ómannúðleg og glæpsamleg. Erlent 9.11.2021 15:45
Rómantískir Rússar minnast byltingarinnar á Rauða torginu Rússneskir kommúnistar fylktu liði á Rauða torginu í Moskvu í dag til að minnast þess að 104 ár eru liðin frá októberbyltignunni svo kölluðu árið 1917. Erlent 7.11.2021 21:23
„Njósnari“ fannst dáinn við sendiráð Rússlands í Berlín Rússneskur erindreki fannst látinn fyrir utan sendiráð Rússlands í síðasta mánuði. Maðurinn er sagður hafa fallið út um glugga í sendiráðinu áður en hann fannst að morgni 19. október. Erlent 5.11.2021 18:01
Biden gagnrýndi fjarveru leiðtoga Kína og Rússlands Joe Biden Bandaríkjaforseti gagnrýndi leiðtoga Kína og Rússlands fyrir að láta ekki sjá sig á COP26-loftslagsráðstefnunni í Skotlandi í dag. Sakaði hann Kína um að snúa baki við vandamálinu og Rússland sömuleiðis. Erlent 2.11.2021 23:09
Bandaríkjamenn segja Rússa brjóta alþjóðalög Bandaríkjamenn mótmæla þeim skilyrðum sem Rússar setja fyrir siglingum skipa norður fyrir Rússland og segja þau brot á alþjóðalögum. Þá hafi þeir áhyggjur af áhuga Kínverja á Norðurslóðum vegna almennrar framgöngu þeirra á alþjóðasviðinu. Innlent 30.10.2021 19:40
Lögmönnum fjölskyldna þeirra sem fórust með MH17 ógnað Lögfræðingar fjölskyldna fólks sem dó þegar flugvélin MH17 var skotin niður yfir Úkraínu hafa orðið fyrir ógnunum. Yfirvöld Hollands telja rússneska útsendarar á bakvið þær en réttarhöld standa nú yfir í Hollandi gegn mönnum frá Rússlandi og Úkraínu sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á ódæðinu. Erlent 29.10.2021 11:05
Strangar sóttvarnaaðgerðir í Moskvu vegna stöðu faraldursins Skólum, verslunum og veitingastöðum í Moskvu hefur verið lokað vegna kórónuveirufaraldursins. Aðeins matvöruverslanir og lyfjaverslanir fá að hafa opið og veitingastaðir mega bjóða viðskiptavinum sínum upp á að sækja mat. Erlent 29.10.2021 06:52
Kjarnorkusamningaviðræður hefjist aftur fyrir nóvemberlok Samningaviðræður um endurlífgun kjarnorkusamnings frá árinu 2015 milli Íran og sex annarra stórvelda munu hefjast aftur fyrir nóvemberlok. Þetta sagði helsti samningarmaður Íran í gær. Erlent 28.10.2021 10:29
Rússar gera umfangsmikla töluvárás í Bandaríkjunum Sérfræðingar Microsoft og aðrir netöryggissérfræðingar vestanhafs segja Leyniþjónustu Rússlands standa fyrir umfangsmikilli netárás á Bandaríkin. Rússneskir tölvuþrjótar séu að reyna að brjóta sér leið inn í tölvukerfið þúsunda stofnan, fyrirtækja og hugveita í Bandaríkjunum. Erlent 25.10.2021 13:15
Sextán látin eftir sprengingu í púðurverksmiðju Sextán eru látin eftir sprengingu í verksmiðju í Ryazan héraði, sunnan við Moskvu, höfuðborg Rússlands, í morgun. Erlent 22.10.2021 10:23
Vinnustöðum í Rússlandi verði lokað í viku vegna veirunnar Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur samþykkt tillögu rússnesku ríkisstjórnarinnar um að loka öllum vinnustöðum landsins fyrstu vikuna í nóvember til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirusmita í landinu. Erlent 20.10.2021 23:05
Navalní hlýtur Sakharov-verðlaunin Rússneski andófsmaðurinn Aleksei Navalní hlaut í dag hin árlegu Sakharov-verðlaun Evrópuþingsins fyrir framlag sitt til umbóta í rússneskum stjórnmálum. Erlent 20.10.2021 15:21
Rússar íhuga að loka öllu í viku vegna Covid-bylgju Aldrei hafa fleiri Rússar látist af völdum Covid-19 á einum degi heldur en í gær, en samkvæmt opinberum tölum létust 1.028 manns. Alls hafa 226.353 látist af völdum Covid-19 í Rússlandi frá upphafi faraldursins, sem er það langmesta meðal Evrópuríkja og í fimmta sæti á heimsvísu, á eftir Bandaríkjunum, Brasilíu, Indlandi og Mexíkó. Erlent 20.10.2021 13:19
Leita í húsum sem tengjast rússneskum ólígarka Starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) leituðu í dag í húsum í Washington DC og New York sem sögð eru tengjast rússneska auðjöfrinum Oleg Deripaska. Atlagan tengist rannsókn FBI en yfirvöld Bandaríkjanna hafa beitt Deripaska refsiaðgerðum vegna afskipta Rússa af forsetakosningunum 2016. Erlent 19.10.2021 19:12
Rússar hefna fyrir refsiaðgerðir NATO-ríkja Skrifstofum Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Moskvu verður lokað og sendinefnd Rússlands gagnvart bandalaginu verður kölluð heim með aðgerðum sem stjórnvöld í Kreml tilkynntu um í dag. Aðgerðirnar eru svar við brottvísun rússneskra sendifulltrúa hjá NATO. Erlent 18.10.2021 15:46