
Sameinuðu þjóðirnar

Öryggisráðið kemur saman vegna ástandsins í Úkraínu
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hittist síðar í dag til að ræða ástandið í Úkraínu en óttast er að Rússar hyggist ráðast inn í landið.

Tugir dæmdir til dauða fyrir morðið á sérfræðingum SÞ í Kongó
Um fimmtíu manns voru dæmdir til dauða í Austur-Kongó í gær í tengslum við morðið á tveimur sérfræðingum Sameinuðu þjóðanna árið 2017.

Stjóri Sameinuðu þjóðanna segir heiminn fara versnandi
Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir heiminn að mörgu leyti verri síðan hann hóf fyrsta kjörtímabil sitt fyrir fimm árum. Það sé vegna faraldurs kórónuveirunnar, veðurfarsbreytinga og aukinnar spennu ríkja á milli.

Aðeins þriðjungur unglinga á flótta í framhaldsskóla
Í skýrslu UNHCR er lögð áhersla á sögur ungs flóttafólks um allan heim.

Skutu enn einni eldflauginni á loft
Eldflaug var skotið frá Norður-Kóreu í nótt og var það í fyrsta sinn í minnst tvo mánuði. Ekki liggur fyrir hvers konar eldflaug um er að ræða en henni var skotið frá sambærilegum stað og annarri eldflaug í fyrra sem ríkisstjórn einræðisríkisins sagði vera hljóðfráa eldflaug.

Kvarta eftir að hafa þurft að færa geimstöðina vegna gervihnatta Musk
Yfirvöld í Kína hafa kvartað til Sameinuðu þjóðanna eftir að gervihnettir á vegum SpaceX, geimfyrirtækis auðkýfingsins Elon Musk, voru nærri því að að klessa á kínversku geimstöðina á árinu.

Vara við því að milljón afgönsk börn deyi úr hungri í vetur
Neyðarástand ríkir í Afganistan vegna þurrka og matarskorts. Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við því að grípi alþjóðasamfélagið ekki inn í muni allt að milljón afgönsk börn deyja úr hungri áður en veturinn líður undir lok, fleiri landsmenn en létust í tuttugu ára löngu stríði.

Ingibjörgu Sólrúnu blandað í ævintýralegt samsæri
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er lykilmaður í samsæri Sameinuðu þjóðanna um að stela kosningunum í Írak, ef marka má urmul samsæriskenninga á netinu. Hún hendir gaman að og segist dást að sköpunargleði höfundanna.

Senda hundruð Talibana gegn Íslamska ríkinu
Talibanar ætla að auka á þrýsting þeirra gegn Íslamska ríkinu í Afganistan. Hundruð Talibana hafa verið sendir til austurhluta landsins þar sem þeir eiga að herja á vígamenn ISIS.

SÞ ítrekað hundsað beiðnir um afhendingu gagna vegna sprengingarinnar í Beirút
Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað hundsað beiðnir fjölskyldna þeirra, sem fórust í sprengingunni í Beirút í fyrra, um afhendingu upplýsinga sem myndu hjálpa til við rannsókn málsins. 219 fórust í sprengingunni í ágúst í fyrra og hundruð til viðbótar slösuðust.

Ísland kjörið í framkvæmdastjórn UNESCO
Ísland hlaut flest atkvæði í kosningunni, eða 168 en 178 ríki greiddu atkvæði.

„Við römbum enn á barmi loftslagshamfara“
António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, telur að pólitískan vilja hafi skort til að ryðja úr vegi djúpstæðum ágreiningi um viðbrögð þjóða við loftslagsvánni.

Segir markmið Parísarsamkomulagsins í „öndunarvél“
Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að markmið Parísarsamkomulagsins um að takmarka hlýnun jarðar við 1,5°C sé ennþá innan seilingar en að það sé í „öndunarvél“. Fulltrúar ríkja heims reyna nú að ná samkomulagi á lokametrum COP26-loftslagsráðstefnunnar í Glasgow.

UAK og jafnrétti: Óhefðbundið kvennamót í fótbolta hefst á mánudag
Úrslit Global Goals World Cup (GGWCUP) verða haldin í fyrsta sinn á Íslandi dagana 8.-10. nóvember. Munu gestir víðsvegar að úr heiminum ferðast til Íslands til að taka þátt í mótinu. Félag ungra athafnakvenna, UAK, eru gestgjafar mótsins.

Eymd í Eþíópíu: Sameinuðu þjóðirnar saka allar stríðandi fylkingar um morð og nauðganir
Michelle Bachelet, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að átökin í Eþíópíu, sem hafi staðið yfir í ár, hafi einkennst af gífurlegri grimmd. Rannsókn hafi sýnt fram að allar fylkingar átakanna hafi framið ýmis ódæði sem gætu talist stríðsglæpir og glæpir gegn mannkyninu.

Opnað fyrir umsóknir í ungmennaráð heimsmarkmiðanna
Átta meðlimir ungmennaráðsins verða kosnir á barnaþingi umboðsmanns barna sem haldið verður í Hörpu dagana 18.-19. nóvember.

Telur verulega hættu á nýjum stríðsátökum í Bosníu og Hersegóvínu
Hætta er á því að Bosnía og Hersegóvína brotni upp í smærri einingar og verulegar líkur eru taldar á því að stríðsátök brjótist þar út á ný.

Hvað er COP26?
Ríki heims þurfa að bretta upp ermarnar og auka metnað í aðgerðum sínum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda til að hægt verði að komast hjá verstu afleiðingum loftslagsbreytinga. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna sem hefst um helgina getur varpað ljósi á hversu alvara þeim er með fögrum fyrirheitum um kolefnishlutleysi.

Nýjar losunarskuldbindingar duga ekki til að ná markmiðum
Nýjar og endurskoðaðar skuldbindingar nægja ekki til þess að uppfylla ákvæði Paríssamningsins um loftslagsbreytingar. Þetta kemur fram kemur í nýrri skýrslu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, skýrslu sem Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir sláandi vakningu.

Bandaríkin fordæma valdaránið og krefjast þess að ráðherrum sé sleppt
Bandaríkjamenn hafa fordæmt valdaránið í Súdan en í gær tóku yfirmenn hersins völdin í landinu af bráðabirgðastjórn sem komið var á eftir fall einræðisherrans Omars al-Bashir árið 2019.

Íslenskt forystufé fari á skrá yfir dýr í útrýmingarhættu
Ráðamenn forystufjársetursins í Þistilfirði vinna að því að íslenskir forystusauðir verði skilgreindir sem dýrategund í útrýmingarhættu og fari jafnvel á heimsminjaskrá sem menningarminjar. Þeir segja íslenska forystuféð einstakt í heiminum.

Sendifulltrúar Sameinuðu þjóðanna sakaðir um lygar af herforingjastjórninni
Herforingjastjórnin í Mjanmar hefur sakað sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna hafi notað óáreiðanlegar heimildir og brotið á fullveldi ríkisins í skýrslu sem þeir unnu fyrir alþjóðastofnunina.

Milljónir Afgana standa frammi fyrir hungursneyð
Milljónir Afgana standa frammi fyrir hungursneyð í vetur ef ekki verður gripið í taumana.

Fyrirhuguð framleiðsluaukning jarðefnaeldsneytis ósamrýmanleg loftslagsmarkmiðum
Áætlanir ríkisstjórna heimsins gera ráð fyrir aukningu á framleiðslu jarðefnaeldsneytis næsta áratuginn. Þessi staðreynd er algerlega ósamræmanleg því samkomulagi flestra ríkja að reynt verði að sporna við hlýnun jarðarkringlunnnar.

Veruleg, skaðleg áhrif loftslagsbreytinga
Manneskjur hafa áhrif á jörðina og jörðin svo áhrif á manneskjurnar. Áhrifin á manneskjur birtast þó ekki með jöfnum hætti en áframhaldandi útblástur gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum og ófullnægjandi viðbrögð við loftslagsvánni bitna verr á því fólki sem þegar er í viðkvæmri stöðu.

Biður forseta loftslagsráðstefnunnar um að úthýsa olíuforkólfum
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, hefur sent forseta loftslagsráðstefnunnar COP-26 sem fer fram í Glasgow í næsta mánuði um að sparka fulltrúum mengandi iðnaðar út af gestalista ráðstefnunnar.

Sameinuðu þjóðirnar skila auðu um kvörtun Thunberg
Nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins segist ekki geta tekið afstöðu til kvörtunar Gretu Thunberg og annarra ungra loftslagsaðgerðasinna sem halda því fram að aðgerðaleysi ríkja heims brjóti á réttindum þeirra. Ungmennin hefðu átt að snúa sér að dómstólum í hverju landi fyrir sig fyrst.

Kóreumenn hóta öryggisráðinu
Ráðamenn í Norður-Kóreu hafa brugðist reiði við ályktunartillögu Frakka til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og hótuðu ráðinu í dag fyrir að gagnrýna eldflaugavopnaáætlun ríkisins.

Ræða utanríkisráðherra á allsherjarþingi SÞ: Loftslagsmál, bóluefni og mannréttindi í forgrunni
Aðgerðir í loftslagsmálum, jafnari dreifing bóluefna á heimsvísu og mikilvægi mannréttinda og alþjóðalaga voru efst á baugi í ræðu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra í ræðu hans á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag.

UNGA76: Sjálfbær auðlindanýting, loftslagsmál og mannréttindi leiðarstefin
Í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York fara fram fjölmargir fundir og hliðarviðburðir sem fulltrúar Íslands munu sækja rafrænt.