WOW Air

Ferðamönnum gæti fækkað um tíu til tólf prósent
Gangi áætlanir um fækkun flugvéla WOW air eftir gæti ferðamönnum á Íslandi fækkað um tíu til tólf prósent, ef ekkert annað kemur á móti. Indigo Partners mun fjárfesta í WOW air fyrir 9,4 milljarða króna ef skuldabréfaeigendur samþykkja að gefa eftir ýmis réttindi.

Indigo kemur með allt að 9,3 milljarða inn í WOW Air
Indigo Partners LLC og WOW Air hafa komist að samkomulagi um það að fyrrnefnda félagið muni fjárfesta í flugfélaginu.

Hópuppsagnir geti haft áhrif á stöðugleika á vinnumarkaði
Atvinnuleysi hefur verið í lágmarki og gætu hópuppsagnir í tengslum við WOW air haft áhrif á þær tölur ef allt fer á versta veg.

Ferðamönnum fækki og verðið hækki
Talið er að WOW air muni ferja um 30 prósent ferðamanna til landsins í ár. Hátt í helmingsminnkun flugflotans mun að öllum líkindum leiða til færri ferðamanna á næsta ári. Nema önnur flugfélög grípi boltann.

WOW hverfur aftur til fortíðar
Um 350 manns var sagt upp störfum hjá WOW air í dag. Forstjóri segir aðgerðina hafa verið nauðsynlega til að einfalda reksturinn og hverfa aftur til sama rekstrarmódels og var notað árið 2016. Það þýðir engar breiðþotur, færri flugvélar og færri áfangastaðir. Skúli Mogensen segist hafa gert mistök og ætlað sér of mikið.

„Mjög þungt hljóð í félagsmönnum“
Orri Þrastarson, varaformaður Flugfreyjufélags Íslands, segir mjög þungt hljóð í félagsmönnum eftir daginn í dag en fjörutíu fastráðnir flugliðar hjá WOW air misstu vinnuna í dag auk tuga annarra sem voru með tímabundna sem verða ekki endurnýjaðir.

Telur Skúla hafa skamman tíma til að bjarga WOW air
Sveinn Þórarinsson, hlutabréfasérfræðingur hjá hagfræðideild Landsbankans, segir að uppsagnir WOW air í morgun hafi ekki komið á óvart.

Vonast enn til að geta dregið stóran hluta uppsagna á flugvellinum til baka
Sigþór Kristinn Skúlason, framkvæmdastjóri Airport Associates, segir tíðindi af uppsögnum hjá WOW air afar leiðinleg. Staðan sé óbreytt hjá Airport Associates sem sagði í nóvember upp 237 starfsmönnum.

Á fjórða hundrað missa vinnuna hjá WOW air
Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri WOW air, segir að dagurinn í dag sé sorglegur en nauðsynlegur til þess að tryggja framtíð flugfélagsins.

Engum að kenna nema mér segir Skúli í bréfi til starfsmanna
Skúli Mogensen, eigandi WOW Air, segir að nauðsynlegt hafi verið að ráðast í hinar sársaukafullu uppsagnir, sem tilkynnt var um í dag, til þess að bjarga flugfélaginu.

Icelandair rýkur upp í Kauphöllinni
Mikið flökt hefur verið á hlutabréfaverði flugfélagsins undanfarið.

„Erfiðasti dagurinn í sögu WOW air“
111 fastráðnum starfsmönnum WOW Air var í dag sagt upp störfum og ná uppsagnir þvert á fyrirtækið.

Mikill fjöldi missir vinnuna hjá WOW air í dag
Mikill fjöldi starfsmanna WOW air missir vinnuna í dag. Þetta herma heimildir Vísis en þegar hefur fólk fengið uppsagnarbréf í hendurnar, skilað tölvum sínum og haldið til síns heima.

Veltir því fyrir sér hvort WOW verði „sýndarflugfélag“
Þrátt fyrir að Bill Franke, eigandi Indigo Partners, hafi lítið sem ekkert gefið upp um framtíðarsýn hans á íslenska flugfélaginu WOW air er líklegt að ferðir félagsins til Indlands verði lagðar af ásamt breiðþotum félagsins. Þess í stað verði einblínt á styttri ferðir.

Fyrsta flug WOW til Nýju Delí
Skúl segir stöðu Íslands styrkjast enn frekar sem tengistöð.

„Smávægilega“ vélarbilunin rannsökuð sem alvarlegt flugatvik
Vélarbilunin sem kom upp í vél WOW Air á leið til Baltimore þann 1. nóvember síðastliðinn og varð til þess að ákveðið var að snúa vélinni við og lenda aftur í Keflavík er rannsökuð sem alvarlegt flugatvik.

Viðræður WOW air og Indigo ganga vel en kaup ófrágengin
Viðræður milli Indigo Partners og WOW air um kaup fyrrnefnda félagsins á hlut í WOW air ganga vel en eru ekki frágengin. Bill Franke fundaði með Skúla Mogensen og starfsfólki WOW air í dag og í gær.

WOW millilendir á leiðinni til Los Angeles
Flugvélar WOW air millilenda þessa dagana í Edmonton í Kanada á flugleiðinni frá Keflavík til Los Angeles og til baka.

Bill Franke á landinu og fundaði með Skúla í höfuðstöðvum WOW air
Bill Franke, stofnandi og aðaleigandi Indigo Partners er nú staddur á Íslandi og fundaði í dag með Skúla Mogensen og öðrum starfsmönnum WOW air vegna kaupa á hlut í félaginu sem eru ófrágengin.

Gerður áskilnaður um evrópskt eignarhald meðan WOW air starfar hér á landi
Ekki liggur fyrir hvenær áreiðanleikakönnun vegna kaupa Indigo Partners á hlut í WOW air á að liggja fyrir. Á meðan WOW air starfar á grundvelli íslensks flugrekstrarleyfis verða evrópskir aðilar að eiga meira en helmingshlut í félaginu samkvæmt reglum sem gilda um leyfið.

Fjárfesting Indigo Partners í WOW air hefði jákvæð áhrif á félagið og íslenskt efnahagslíf
Það er jákvætt fyrir íslenskt efnahagslíf að WOW air hafi gert bráðabirgðasamkomulag við Indigo Partners um að fjárfesta í félaginu að sögn forstöðumanns hagfræðideildar Landsbankans. Ef annað stóru flugfélaganna færi í þrot gæti það haft sömu áhrif og ef einn stóru bankanna félli.

Ríkisstjórnin ætlar ekki að hlaupa undir bagga með WOW Air
Formaður viðreisnar vonar að ríkistjórnin sé tilbúin með viðbragðsáætlun fyrir Suðurnes vegna hópuppsagna á Keflavíkurflugvelli, ef þörf verði á.

Gengisveiking áfram inni í myndinni
Aðstæður í hagkerfinu munu áfram þrýsta á um frekari gengisveikingu krónunnar þótt óvissu um framtíð WOW air verði eytt. Hagfræðingur segir kjaraviðræður stóran þátt í gjaldeyrismarkaðinum.

Rúmlega fjögurra milljarða króna tap á rekstri Wow air
EBITDA flugfélagsins versnaði til muna á milli ára og tapið sömuleiðis.

Skúli átti í viðræðum við Indigo á sama tíma og hann samdi við Icelandair
Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air átti í viðræðum við bandaríska fjárfestingarfélagið Indigo Partners á sama tíma og hann var í viðræðum við Icelandair Group um kaup á WOW air og eftir að skrifað var undir kaupsamning. Hann segist hafa vonast til að Icelandair myndi falla frá samrunanum þegar áhugi Indigo Partners var ljós.

Bjartsýnn á að geta dregið uppsagnir til baka
Forstjóri Airport Associates er bjartsýnn á að geta dregið uppsagnir ríflega 200 starfsmanna til baka í ljósi frétta af aðkomu Indigo Partners að rekstri WOW air.

Vonar að allt fari vel hjá WOW
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að ríkissstjórnin fylgist auðvitað vel með gangi mála hjá flugfélaginu WOW air.

Skúli Mogensen sektaður fyrir utan samgönguráðuneytið
Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air fundaði með Sigurði Inga Jóhannssyni samgönguráðherra í samgönguráðuneytinu klukkan 14 í dag.

Skúli fundaði með samgönguráðherra
Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, fundaði með Sigurði Inga Jóhannssyni, samgönguráðherra, í samgönguráðuneytinu eftir hádegi í dag.

Ofstækisfullur faðir lággjaldalíkansins freistar þess að bjarga WOW Air
Franke er lýst sem klókum kaupsýslumanni, hörðum í horn að taka - og ofstækisfullum í viðhorfi sínu til verðlagningar.