
Íslandsvinir

Danski Tobias á leiðinni til landsins: Bókaði um leið og Mette Frederiksen sagði „gó“
Hinn danski Tobias Kabat er einn þeirra sem kemur til landsins frá Kaupmannahöfn á morgun. Hann segist hlakka til að kynnast landi og þjóð.

Föst á Íslandi í þrjá mánuði og fékk að kynnast landinu ferðamannalausu
„Ég var föst á Íslandi frá 1. mars til 31. maí sem ferðamaður. Ég var það heppin að sjá árstíðirnar breytast og upplifa landið nánast ferðamannalaust,“ segir kona að nafni Meryl á Reddit.

Pantaði flug til Íslands hálftíma eftir að kallið kom frá Icelandair
John Lloyd beið ekki boðanna þegar honum barst tölvupóstur frá Icelandair í gær.

Mynt Wei Li reyndist ósvikin
Rannsókn á vegum Seðlabankans leiddi í ljós að mynt kínverska ferðamannsins Wei Li sem hann kom með til landsins hafi verið ósvikin.

Íslandsvinurinn sem dáðist að tvöfalda regnboganum er látinn
Paul L. Vasquez, maðurinn sem vakti heimsathygli eftir að hann birti myndband á samfélagsmiðlum þar sem hann dáðist að tvöföldum regnboga, er látinn. Hann varð 57 ára gamall.

Áströlsk Youtube-stjarna keypti draumahúsið á Íslandi
Ástralska YouTube-stjarnan Sorelle Amore ákvað fyrir ekki svo löngu að fjárfesta í draumahúsi sínu og það hér á Íslandi.

Japani sem kann yfir tvö hundruð þjóðsöngva og rúllaði upp þeim íslenska
Thelma Rún Heimisdóttir hefur verið búsett í Japan í nokkur ár en þangað kom hún fyrst árið 2014 sem skiptinemi.

Kínverskir íslenskunemar senda þjóðinni baráttukveðjur
Nemendur í íslenskunámi við Beijing Foreign Studies University hafa gert myndband þar sem þeir senda íslensku þjóðinni baráttukveðjur á íslensku.

Handhafi stoðsendingametsins á Íslandi lést úr COVID-19
David Edwards, fyrrum leikmaður KR í úrvalsdeild karla í körfubolta, er látinn eftir að hafa fengið COVID-19 sjúkdóminn sem kórónuveiran veldur.

Bað kærustunnar í Iceland-verslun eftir að draumaferðinni til Íslands var aflýst
Hinn 58 ára gamli Robert Ormsby bar upp bónorð við kærustu sína Patsy Murdoch í miðri Iceland-verslun í Tonbridge í Bretlandi.

Popparinn fékk mynd af sér með sjálfum Páli Magnússyni
„Maður fær - sem betur fer - allskonar skemmtilegt fólk í heimsókn til sín í þingið. Heimsfrægar rokkstjörnur eru þó frekar sjaldséðir gestir, en Damon Albarn kom til mín í hádeginu og reyndist áhugasamari og fróðari um Ísland en margir aðrir sem ég þekki.“

Olsen bróðirinn Jørgen Olsen með tónleika á Grímsborgum
Jørgen Olsen, annar af Olsen bræðrum er á leiðinni til Íslands en hann ætlar að halda tvenna tónleika á Hótel Grímsborgum í apríl hjá Ólafi Laufdal og Kristínu Ketilsdóttir, eigendum hótelsins.

Hyggst kanna hvort að mynt Li Wei sé fölsuð
Arion banki mun láta kanna hvort að mynt sem kínverskur ferðamaður kom með til landsins og reyndi að skipta í bankaútibúum kunni að vera fölsuð.

Leist ekkert á blikuna þegar Wei Li leiddi hana að bílnum
Wei Li sem vakti mikla athygli þegar hann kom hingað til lands með mikið magn íslenskrar smámyntar virðist hafa farið tómhentur heim. Framkvæmdarstjóri Samhjálpar segir að hann hafi mætt færandi hendi á skrifstofu félagsins fyrr í mánuðinum starfsmanni þess til mikillar mæðu.

Thomas Lundin segir aldrei hafa verið eins auðvelt að giska á sigurvegara
Síðustu ár hefur Vísir leitað til Thomas til að hann geti lagt mat á þau lög sem keppa til úrslita í Söngvakeppninni og hefur hann reynst afar sannspár.

„Í minningunni var þetta algjörlega stórkostlegt“
Skin, söngkona Skunk Anansie, rifjar upp síðustu Íslandsheimsókn og segist spennt fyrir því að spila aftur í Laugardalshöll á þessu ári.

Dramatísk frásögn Chris Pratt úr Íslandsreisu virðist úr lausu lofti gripin
Lögregla á Suðurlandi kannast ekki við fullyrðingar bandaríska Hollywoodleikarans Chris Pratt um að lík karls og konu hafi fundist í jökulsprungu á Íslandi rétt áður en hann kom hingað til lands í fyrra.

Gengur erfiðlega að skipta út peningagjöf frá Kína
Hópur kínverskra nemenda gaf Melrakkasetri Íslands í Súðavík um 300 þúsund krónur í gjöf í fyrra.

Russell Crowe fylgist með Daða Frey
Stórleikarinn Russell Crowe er greinilega mjög hrifinn af Daða Frey og Gagnamagninu en hann tísti í dag umfjöllun um lagið á Twitter-síðu sinni.

Skunk Anansie á leið til Íslands
Breska rokksveitin Skunk Anansie heldur tónleika á Íslandi í haust. Tónleikarnir fara fram í Laugardalshöll, laugardagskvöldið 24. október.

Ætlar að fara í öll útibú á höfuðborgarsvæðinu til að fá myntinni skipt
Kínverski myntsölumaðurinn Wei Li ætlar ekki að láta deigan síga þó Seðlabankinn hafi neitað honum um að skipta einni komma sex milljónum króna í seðla. Hann ætlar að fara í öll bankaútibú á höfuðborgarsvæðinu og freista þess að fá henni skipt í seðla.

Ferðaðist til Íslands frá Kína með 170 kíló af hundraðköllum
Kínverski ferðamaðurinn Wei Li er í ákveðinni pattstöðu á Íslandi eftir að hafa ferðast hingað til lands með 170 kíló af hundrað krónu mynt.

Ferðaðist til Íslands og málaði draumafrí látinnar eiginkonu sinnar
Ástralinn Jeremy Ley ferðaðist nýverið til Íslands. Markmiðið var að fara í draumafríið sem hann og eiginkona hans höfðu alltað ætlað sér í. Hún lést nýverið úr krabbameini og því ákvað Ley að láta verða af Íslandsferðinni og mála ferðina, allt fyrir ástina í lífi hans.

Danny McBride breytti lífi sínu eftir Íslandsferð
Leikarinn Danny McBride sem hefur vakið athygli fyrir hlutverk sín í Eastbound & Down, Vice Principals og The Righteous Gemstons segir í viðtali við Shortlist að Íslandsför hafi breytti lífi hans.

Heimildarþættir um Justin Bieber á YouTube slá í gegn: Spyrnti sér frá botninum
Í lok janúar komu út heimildarþættir um kanadísku poppstjörnuna Justin Bieber sem fjalla um þá erfileika sem þessi ungi maður hefur þurft að ganga í gegnum undanfarin ár.

Tengdasonur Mosfellsbæjar leiddi endurkomuna og lið Höfðingjanna til sigurs í Super Bowl
Kansas City Chiefs fagnaði sínum fyrsta NFL-titli í hálfa öld í nótt þegar liðið vann 31-20 sigur á San Francisco 49ers í Super Bowl í Miami. Leikurinn var frábær skemmtun þar sem sigurvegararnir litu ekki alltof vel út þegar langt var liðið á lokaleikhlutann.

Blaðamaður Jyllands-Posten lærir íslensku með því að hlusta á FM95BLÖ
"Ég hef verið að heimsækja fjölmiðla hér á landi og Háskóla Íslands til þess að verða betri blaðamaður,“ segir Berit Ertmann, blaðamaður Jyllands-Posten.

Damon Albarn heldur tónleika í Hörpu í sumar
Söngvarinn, lagahöfundurinn og tónskáldið Damon Albarn flytur nýja verkið sitt The Nearer the Fountain, More Pure the Stream Flows í heild sinni í Eldborg, Hörpu 12. júní 2020.

Norsku Eurovisionstjörnurnar Keiino til Íslands
Sönghópurinn Keiino sem tók þátt fyrir hönd Noregs í Eurovision í fyrra kemur fram á úrslitakeppni Söngvakeppninnar 29. febrúar í Laugardalshöll. Þetta kemur fram í tilkynningu frá RÚV.

Spider-Man verður að hluta tekin upp á Íslandi
Marvel og Sony Pictures munu ráðast í tökur á næstu Spider-Man mynd næstkomandi júlí og er búið við því að tökur standi yfir fram í nóvember. Kvikmyndin ætti síðan að koma í kvikmyndahús í júlí 2021.