Yfirvöld Úkraínu segjast hafa gómað rússneska útsendara Einn hinna handteknu reyndi að koma sprengju fyrir undir bíl starfsmanns leyniþjónustu úkraínska hersins. Erlent 17. apríl 2019 12:10
Lögregla skaut á ökumann fyrir utan sendiráð Úkraínu í London Lögregla skaut í dag á ökumann bíls fyrir utan úkraínska sendiráðið í vestur hluta Lundúna. Ökumaðurinn hafði vísvitandi endurtekið ekið á kyrrstæðan bíl sendiherrans, Nataliu Galibarenko. Erlent 13. apríl 2019 15:39
Fyrrum lögmaður Obama ákærður vegna vinnu í Úkraínu Greg Craig, sem starfaði sem æðsti lögmaður Hvíta hússins í forsetatíð Barack Obama, hefur verið ákærður fyrir að ljúga að útsendurum Alríkislögreglu Bandaríkjanna um störf hans fyrir yfirvöld Úkraínu árið 2012. Erlent 11. apríl 2019 23:38
Forsetaframbjóðendur í lyfjapróf fyrir kappræður Forseti Úkraínu, Petró Pórósjenkó varð við kröfu mótframbjóðanda síns, Vólódímírs Selenskíj, um að gangast undir áfengis- og lyfjapróf fyrir kappræður forsetaframbjóðendanna tveggja sem munu fara fram á Ólympíuleikvanginum í Kænugarði. Erlent 6. apríl 2019 16:56
Hyggja á kappræður á Ólympíuvellinum í Kænugarði Petró Pórósjenkó Úkraínuforseti hefur samþykkt að taka þátt í kappræðum við andstæðing sinn í síðari umferð forsetakosninganna, grínarann Volodymyr Zelensky. Erlent 4. apríl 2019 23:45
Gamanleikari og forseti berjast um æðsta embætti Úkraínu Gamanleikari með enga pólitíska reynslu leiðir í forsetakosningunum í Úkraínu en fyrri umferð þeirra fór fram um helgina. Erlent 1. apríl 2019 07:40
Grínistinn efstur í Úkraínu Útgönguspár bentu til þess að grínistinn Volodymyr Zelenskiy hefði fengið flest atkvæði í fyrri umferð úkraínsku forsetakosninganna sem fram fór í gær. Erlent 1. apríl 2019 07:00
Grínisti talinn sigurstranglegastur í úkraínsku forsetakosningunum Gamanleikari etur kappi við núverandi forseta og fyrrverandi forsætisráðherra í fyrri umferð forsetakosninganna í dag. Erlent 31. mars 2019 08:46
Líkindi nafna úkraínskra forsetaframbjóðenda skapa rugling Júlía Volodymyrivna Tymosjenkó og Jurí Volodymyrovyj Tymosjenkó hafa bæði lýst yfir framboð til forseta í Úkraínu. Erlent 19. mars 2019 13:33
Grínisti mælist langvinsælastur Þegar rúmar tvær vikur eru í forsetakosningar í Úkraínu mælist grínistinn og leikarinn Volodíjmíjr Selenskíj með mest fylgi. Selenskíj hefur áður leikið hlutverk forseta Úkraínu. Erlent 14. mars 2019 07:30
Úkraína hættir við þátttöku í Eurovision eftir að sigurvegaranum var sparkað Úkraínska ríkissjónvarpið, UA:PBC, tilkynnti um ákvörðunina í dag. Lífið 27. febrúar 2019 17:40
Forseti Úkraínu vill ólmur ganga í ESB og NATO Forsetinn er undir í skoðanakönnunum í aðdraganda kosninga. Erlent 9. febrúar 2019 14:44
Pórósjenkó: Úkraína sæki um aðild að ESB árið 2024 Petró Pórósjenkó, forseti Úkraínu, tilkynnti í morgun að hann sækist eftir endurkjöri en forsetakosningar fara fram í landinu þann 31. mars. Erlent 29. janúar 2019 13:47
Fyrrverandi forseti Úkraínu fundinn sekur um landráð Dómstóll í Úkraínu hefur dæmt fyrrverandi forseta landsins, Viktor Janúkóvitsj, í þrettán ára fangelsi fyrir landráð. Erlent 24. janúar 2019 23:00
Úkraínska rétttrúnaðarkirkjan slítur sig frá þeirri rússnesku Hinni nýstofnsettu úkraínsku rétttrúnaðarkirkju hefur verið veitt sjálfstæði frá rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni, úkraínskar kirkjur hafa öldum saman verið undir stjórn kirkjuyfirvalda í Moskvu. Erlent 5. janúar 2019 18:28
Herlög afnumin í Úkraínu Herlög hafa verið afnumin í Úkraínu en þau hafa verið í gildi síðustu 30 daga. Erlent 26. desember 2018 13:35
Segir herlögin þjóna hagsmunum Kremlverja Úkraínskur blaðamaður telur herlögin sem sett voru í Úkraínu í liðinni viku koma til með að grafa undan lýðræðislegum stofnunum þar í landi. Erlent 3. desember 2018 12:30
Pútín segist ekki tilbúinn að sleppa áhöfnum skipanna Ráðamenn í Úkraínu hafa kallað eftir því að Þýskaland og bandamenn þess auki hernaðarumsvif sín í og við Svartahaf. Sú krafa kemur í kjölfar þess að Rússar hertóku þrjú úkraínsk skip og tóku áhafnir þess fastar. Vladimir Pútín segir enga lausn í sjónmáli og sakar Úkraínu um að vilja ekki leysa málið. Erlent 2. desember 2018 21:15
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sendir Rússum tóninn Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Jim Mattis, hefur gagnrýnt rússnesk stjórnvöld harðlega fyrir "óskammfeilin“ brot á samkomulagi við Úkraínu og kyrrsetningu þriggja úkraínskra skipa. Þá gagnrýndi hann Rússa einnig fyrir að reyna að hafa áhrif á nýafstaðnar þingkosningar vestanhafs og fyrir að virða kjarnorkusamkomulag við Bandaríkin að vettugi. Erlent 1. desember 2018 22:39
Sjóliðarnir fluttir til Moskvu Þeir 24 úkraínsku sjóliðar sem Rússar handtóku eftir hertöku þriggja úkraínskra herskipa á Asovshafi um síðustu helgi voru í gær fluttir í fangelsi í Moskvu. Erlent 1. desember 2018 09:30
Hertaka og Khashoggi ofarlega á blaði hjá G20 Valdamestu leiðtogar heims mættu til fundar í argentínsku höfuðborginni í gær. Skrifað var undir nýjan NAFTA-samning. Rússar gagnrýna aflýsingu á fundi Trumps og Pútíns. Trump ræddi við forseta Kína um tollastríð ríkjanna. Erlent 1. desember 2018 08:00
Meina rússneskum körlum aðgang að Úkraínu Yfirvöld Úkraínu hafa tilkynnt að rússneskum karlmönnum á aldrinum 16-60 verður ekki hleypt inn í landið á meðan herlög eru þar í gildi. Erlent 30. nóvember 2018 09:13
Trump aflýsir fundi með Pútín Bandaríkjaforseti hefur aflýst fyrirhuguðum fundi hans og Vladimír Pútín vegna deilna rússneskra og úkraínskra stjórnvalda. Erlent 29. nóvember 2018 18:05
Vill að NATO sendi herskip til Asóvshafs Petro Poroshenko, forseti Úkraínu, hefur kallað eftir því að Atlantshafsbandalagið sendi herskip til Asóvshafs til aðstoðar Úkraínu og til að tryggja öryggi á svæðinu. Erlent 29. nóvember 2018 09:56
Ætla að bæta varnir á Krímskaga Yfirvöld Rússlands tilkynntu í morgun að flytja ætti loftvarnarkerfi til Krímskaga og koma þeim þar fyrir. Erlent 28. nóvember 2018 11:03
Ræða um nýjar þvinganir gegn Rússum Leiðtogar Evrópusambandsríkja velta fyrir sér nýjum þvingunum gegn Rússum vegna hertöku úkraínskra herskipa á Asovshafi. Yfirmaður úkraínska sjóhersins segir Rússa þrýsta á, jafnvel pynta, sjóliða í haldi. Erlent 28. nóvember 2018 07:30
Trump íhugar að aflýsa fundi með Pútín vegna hertöku skipanna Donald Trump Bandaríkjaforseti segist íhuga að aflýsa fundi sínum og Vladímírs Pútín Rússlandsforseta á G20 ráðstefnunni í Argentínu síðar í mánuðinum vegna hertöku Rússa á þremur skipum sjóhers Úkraínu. Erlent 27. nóvember 2018 23:22
Rússar vara við auknum átökum vegna herlaga Yfirvöld Rússlands segja að herlög í Úkraínu muni leiða til aukinna átaka í austurhluta landsins þar sem aðskilnaðarsinnar, sem Rússar styðja, hafa tekið stjórnina. Erlent 27. nóvember 2018 11:31
Ólga eftir árás á Asovshafi Úkraínska þingið samþykkti í gær tilskipun forseta landsins um setningu herlaga eftir að Rússar skutu á og hertóku þrjú úkraínsk herskip. Átök landanna tveggja eru ekki ný af nálinni en fara nú harðnandi. Erlent 27. nóvember 2018 07:00
Úkraínska þingið setur herlög Úkraínska þingið samþykkti í kvöld að setja herlög í landinu. Erlent 26. nóvember 2018 20:35