Sjálfstæðismenn áfram í meirihluta í Snæfellsbæ D-listi Sjálfstæðisflokks hélt meirihluta sínum í sveitarstjórn Snæfellsbæjar í sveitarstjórnarkosningunum í gær. Innlent 15. maí 2022 08:47
Konum fækkar í borgarstjórn en eru enn í meirihluta Körlum í nýkjörinni borgarstjórn Reykjavíkur fjölgar um þrjá frá lokum síðasta kjörtímabils. Konur verða engu að síður áfram í meirihluta þar en þær eru þrettán af tuttugu og þremur borgarfulltrúum. Innlent 15. maí 2022 08:41
Sjálfstæðismenn misstu meirihluta sinn í Bolungarvík K-listi Máttar meyja og manna vann sigur í sveitarstjórnarkosningunum í Bolungarvík í gær og tryggði sér fjóra bæjarfulltrúa. Sjálfstæðismenn náðu inn þremur mönnum og er því ljóst að flokkurinn hefur misst meirihluta sinn í sveitarstjórn. Innlent 15. maí 2022 08:29
Stórsigur Framsóknar setur Einar í bílstjórasætið Borgarstjórnarmeirihlutinn er fallinn og Framsóknarflokkurinn er í lykilstöðu fyrir myndun nýs meirihluta. Flokkurinn náði fjórum fulltrúum inn í borgarstjórn en Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn töpuðu tveimur fulltrúum hvor. Innlent 15. maí 2022 06:39
Lokatölur úr Árborg: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn bættir við sig tveimur fulltrúum í sveitarfélaginu Árborg og er nú með hreinan sex fulltrúa meirihluta. Framsókn bættir sömuleiðis við einum fulltrúa og hefur nú tvo. Miðflokkurinn missir sinn eina bæjarfulltrúa en Samfylking og Áfram Árborg halda sínum mönnum. Innlent 15. maí 2022 05:34
Lokatölur í Vestmannaeyjum: Meirihlutinn hélt velli Allt er óbreytt í Vestmannaeyjum eftir sveitarstjórnarkosningarnar í ár. Meirihluti Eyjalistans og Fyrir Heimaey hélt velli í kosningunum, hefur nú fimm fulltrúa af níu en hafði áður fjóra af sjö. Innlent 15. maí 2022 05:04
Lokatölur í Reykjavík: Meirihlutinn fallinn og stórsigur Framsóknar Framsóknarflokkurinn er þriðji stærsti flokkurinn í Reykjavík eftir ótrúlegan árangur í kosningunum í nótt. Flokkurinn sem hafði engan borgarfulltrúa undanarin fjögur ár náði fjórum mönnum inn. Meirihlutinn í borginni er fallinn. Innlent 15. maí 2022 04:50
Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylkingin vann mikinn sigur Samfylkingin bætti við sig tveimur bæjarfulltrúum í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum. Flokkurinn er á pari við Sjálfstæðisflokkinn en hvor flokkur er með fjóra bæjarfulltrúa. Innlent 15. maí 2022 04:31
Lokatölur frá Akureyri: Bæjarlistinn í lykilstöðu Bæjarlistinn er í lykilstöðu þegar kemur að myndun meirihluta eftir kosningarnar. Flokkurinn bætir við sig fulltrúa og er stærstur í bæjarstjórn með þrjá fulltrúa. Innlent 15. maí 2022 04:20
Lokatölur úr Ísafjarðarbæ: Ísafjarðarlistinn með hreinan meirihluta Ísafjarðarlistinn kom, sá og sigraði í sveitarstjórnarkosningunum í Ísafirði þetta árið. Flokkurinn náði fimm fulltrúum af níu og náði þar með meirihlutanum með því að stela fulltrúa af Sjálfstæðisflokknum. Innlent 15. maí 2022 04:17
Lokatölur í Múlaþingi: Tveir flokkar fengu þrjá fulltrúa Tveir flokkar fengu þrjá fulltrúa kjörna í fyrstu sveitarstjórnarkosningunum í Múlaþingi. Innlent 15. maí 2022 04:13
Lokatölur í Kópavogi: Meirihlutinn hélt og Vinir Kópavogs náðu inn tveimur Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn halda sex fulltrúa meirihluta í Kópavogi að loknum sveitarstjórnarkosningunum í nótt. Vinir Kópavogs, nýtt framboð, náði inn tveimur bæjarfulltrúum. Innlent 15. maí 2022 04:07
Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur Meirihluti Fjarðalistans og Framsóknar og óháðra heldur. Framsókn bætir við sig einum en Fjarðalistinn missir tvo. Innlent 15. maí 2022 03:50
Lokatölur úr Garðabæ: Áfram hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokks Sjálfstæðisflokkurinn heldur hreinum meirihluta í Garðabæ þrátt fyrir að tapa einum fulltrúa. Flokkurinn hefur sjö fulltrúa af ellefu að loknum kosningum. Innlent 15. maí 2022 03:39
Lokatölur úr Mosfellsbæ: Ótrúlegt gengi Framsóknar Framsóknarflokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn í Mosfellsbæ. Flokkurinn átti ekki fulltrúa í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili en fékk fjóra fulltrúa í kosningunum í nótt. Innlent 15. maí 2022 03:34
Lokatölur úr Reykjanesbæ: Meirihlutinn styrkti stöðu sína Meirihlutinn í Reykjanesbæ styrkti stöðu sína að loknum sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin fær þrjá fulltrúa, Framsókn sömuleiðis og Bein leið einn. Alls sjö fulltrúa af ellefu. Innlent 15. maí 2022 03:20
Opin fyrir samstarfi með Framsóknarflokknum Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, segist vera opin fyrir því að starfa með Framsókn í borgarstjórn ef núverandi samstarfsflokkar missa meirihluta sinn. Samkvæmt fyrstu tölum er meirihluti Samfylkingarinnar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna fallinn en Píratar bæta þó við sig manni. Innlent 15. maí 2022 03:16
„Þetta er klárlega ekki það sem við stefndum að“ Skúli Helgason og Heiða Björg Hilmisdóttir, frambjóðendur Samfylkingarinnar í Reykjavík, útiloka ekki meirihlutasamstarf með Sósíalistaflokknum eða Framsóknarflokknum. Fyrstu tölur séu ekki það sem stefnt var að en tækifærin eru mörg. Innlent 15. maí 2022 03:05
Segir félagslegt húsnæði skilyrði og útilokar Viðreisn Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokks Íslands, segist ekki geta hugsað sér að vinna í meirihlutasamstarfi með Viðreisn og hún setur aukið félagslegt húsnæði sem skilyrði. Innlent 15. maí 2022 02:45
Ekki úrslitaatriði að halda í borgarstjórastólinn Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar, lagði áherslu á það að nóttin væri enn ung þegar hann talaði við stuðningsmenn sína eftir fyrstu tölur í Reykjavík. Innlent 15. maí 2022 02:40
Lokatölur úr Fjallabyggð: Nýr meirihluti í pípunum Sjálfstæðisflokkurinn missir einn fulltrúa frá síðustu kosningum og nær tveimur inn en Jafnaðarfólk og óháðir nældu í þrjá fulltrúa. Innlent 15. maí 2022 02:35
Lokatölur frá Sveitarfélaginu Hornafirði: Meirihluti Framsóknar fallinn Framsókn missir tvo fulltrúa og Sjálfstæðisflokkur bætir við sig einum í Sveitarfélaginu Hornafirði. Innlent 15. maí 2022 02:30
Lokatölur úr Norðurþingi: Meirihlutinn heldur Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Samfylkingar heldur í Norðurþingi. Innlent 15. maí 2022 02:20
Lokatölur frá Grindavík: Miðflokkurinn nær flestum inn Miðflokkurinn nær þremur fulltrúum inn í Grindavík. Innlent 15. maí 2022 02:10
Hildur hæstánægð með fyrstu tölur í Reykjavík „Meirihlutinn í Reykjavík er fallinn. Og það sem meira er, Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í Reykjavík,“ sagði Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, við mikil fagnaðarlæti eftir að fyrstu tölur voru kynntar í Reykjavík. Innlent 15. maí 2022 02:09
Í-listinn með hreinan meirihluta samkvæmt fyrstu tölum Í- listi Ísafjarðarbæjar hlýtur skínandi góða kosningu samkvæmt fyrstu tölum og eru með hreinan meirihluta. Nóttin er auðvitað ung og endanleg niðurstaða liggur ekki fyrir. Innlent 15. maí 2022 02:09
Lokatölur frá Ölfusi: Meirihlutinn heldur Á kjörskrá í Ölfusi 1.811. Sjö bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn. Innlent 15. maí 2022 02:00
Meirihlutinn fallinn og Einar í skýjunum Miðað við fyrstu tölur í Reykjavík er meirihlutinn fallinn. Samkvæmt sömu tölum er Framsóknarflokkurinn ótvíræður sigurvegari kosninganna. Innlent 15. maí 2022 01:58
Lokatölur úr Skagafirði: Meirihlutinn heldur Fimm fulltrúa meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar heldur í Skagafirði. Innlent 15. maí 2022 01:50
Gríðarleg stemning og eftirvænting hjá Pírötum Oddviti Pírata í Reykjavík segir stemninguna á kosningavöku flokksins vera gríðarlega. Biðin eftir fyrstu tölum í Reykjavík sé þó erfið. Innlent 15. maí 2022 01:40