

Samherjaskjölin
30 þúsund skjöl um viðskiptahætti Samherja í Namibíu voru birt á vef WikiLeaks. Á sama tíma birtist umfjöllun um málið í þættinum Kveik og hjá Stundinni.

Blaðamennirnir fjórir hafi nú allir gefið skýrslu
Íslensku blaðamennirnir fjórir sem voru boðaðir til yfirheyrslu vegna umfjöllunar um „skæruliðadeild“ Samherja eru nú sögð hafa gefið lögreglunni á Norðurlandi eystra skýrslu vegna málsins.

Skoða leiðir til að endurheimta Namibíufé
Graham Hopwood framkvæmdastjóri IPPR í Namibíu greindi í dag frá því að samtökin og Íslandsdeild Transparency International hafi tekið höndum saman og séu nú að kanna leiðir til sækja þá fjármuni sem „hafi verið teknir út úr Namibíu“ vegna umsvifa Samherja þar í landi.

„Ég er í engum vafa um að ég braut engin lög“
Ritstjóri Kjarnans segir yfirheyrslu yfir sér, sem fram fór í gær, fyrst og fremst hafa snúist um störf fjölmiðla og heimildamenn í tengslum við Samherjamálið. Ekki hafi verið spurt um meinta dreifingu á kynferðislegu efni, sem rannsóknin var áður sögð snúast um.

Blaðamennirnir boðaðir í yfirheyrslu á ný
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur boðað blaðamennina fjóra sem eru með réttarstöðu sakbornings eftir umfjöllun um „skæruliðadeild Samherja“, aftur í skýrslutöku.

Íslendingarnir hafi forðast sendinefnd Namibíu
Þeir Íslendingar sem sendinefnd namibískra stjórnvalda vildi ræða við hér á landi fyrr í sumar eru sagðir hafa forðast það með öllum ráðum að ræða við nefndina. Nefndin var send hingað til lands til þess að ræða framsal þriggja Íslendinga sem áttu hlut að meintum mútugreiðslum til áhrifamanna í sjávarútvegi í Namibíu.

Brynjar segir umdeildan fund með Namibíumönnum hinn furðulegasta
Brynjar Níelsson, varaþingmaður og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra segir ómögulegt fyrir sig að átta sig á því hvers eðlis umdeildur fundur með Namibíumönnum var.

Staðfesta ekki skýringar Brynjars
Talskona namibíska utanríkissamskipta- og samvinnuráðuneytinu staðfestir ekki skýringar Brynjars Níelssonar, aðstoðarmanns dómsmálaráðherra, vegna fundar sem hann átti með namibískum embættismönnum.

Sömdu söngleik um Samherja og slógu Íslandsmet í plötuútgáfu
Þrír ungir tónlistarmenn hafa í sumar gefið út átta plötur yfir átta vikna tímabil sem þeir segja vera Íslandsmet í plötuútgáfu yfir jafnlangt tímabil. Meðal platnanna átta er Samherji: The Musical sem inniheldur meðal annars lögin Kvótakóng og Arðrán.

Töf Samherjamálsins valdi réttarspjöllum ofan á orðsporsáhættu
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, telur að töf á rannsókn Samherjamálsins geti valdið réttarspjöllum ofan á þá „orðsporsáhættu sem augljós er“. Hún segir embætti héraðssaksóknara og skattrannsóknarstjóra vanfjármögnuð og sakar fjármálaráðherra um að kæra sig kollóttan um fjárhagsskort embættanna.

Undrun og vonbrigði innan OECD með framgang Samherjamálsins á Íslandi
Drago Kos, yfirmaður vinnuhóps OECD gegn mútum, segir að það sé nánast vandræðalegt fyrir Ísland að yfirvöld í Namibíu dragi vagninn í rannsókn á Samherjamálinu. Hann tekur þó fram að hann vanmetur ekkert land. Hópurinn hefur fylgst með framvindu málsins og krefst nú svara frá yfirvöldum á Íslandi vegna afskipta lögreglu af blaðamönnum.

Fundarhöld með namibískum rannsakendum og saksóknara
Héraðssaksóknari hefur átt tvo fundi með þeim sem fara fyrir rannsókn og saksókn í Samherjamálinu í Namibíu. Varaforsætisráðherra Namibíu er stödd hér á landi ásamt sendinefnd til að ræða við íslensk stjórnvöld og rannsakendur. Héraðssaksóknari segir að það sé góður gangur á rannsókninni.

Ekki vanhæfur þrátt fyrir „óviðeigandi“ ummæli
Þrátt fyrir að tvenn ummæli staðgengils lögreglustjórans á Norðurlandi eystra í garð fjölmiðlafólks séu talin óheppileg og óviðeigandi er hann ekki vanhæfur til að fara með rannsókn á meintu broti gegn friðhelgi Páls Steingrímssonar skipstjóra.

Þórður Snær segist ekki lengur geta setið undir óhróðri Páls
Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans og Arnar Þór Ingólfsson ætla að stefna Páli Vilhjálmssyni bloggara og framhaldsskólakennara fyrir meiðyrði.

Kröfu Þóru um vanhæfi lögreglunnar á Norðurlandi eystra hafnað
Kröfu Þóru Arnórsdóttur fréttamanns Ríkisútvarpsins um að embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra yrði úrskurðað vanhæft til að rannsaka meint brot blaðamanna á friðhelgi einkalífs skipstjórans Páls Steingrímssonar hefur verið hafnað.

Aðalsteinn þarf að gefa skýrslu eftir frávísun í Hæstarétti
Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, þarf að gefa skýrslu hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Þetta er ljóst eftir að Hæstiréttur vísaði kæru Aðalsteins frá dómi í dag. Hæstiréttur taldi að Aðalsteinn hefði ekki heimild til að kæra frávísunarúrskurð Landsréttar til Hæstaréttar.

Óeðlilegt að lögreglan hafi algjörlega frjálsar hendur í lýðræðisríki
Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, furðar sig á því að Landsréttur hafi ekki tekið efnislega afstöðu í máli sínu gegn embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.

Landsréttur vísaði máli Aðalsteins frá og blaðamennirnir verða kallaðir til skýrslutöku
Landsréttur vísaði í dag kæru Aðalsteins Kjartanssonar, blaðamanns á Stundinni, gegn embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra frá héraðsdómi. Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun lögreglu um taka skýrslu af Aðalsteini sem sakborningi hafi verið ólögmæt.

Munu kæra ef lögreglan heldur yfirheyrslum til streitu
Ritstjóri Kjarnans á ekki von á að lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra muni halda til streitu yfirheyrslum á fjórum blaðamönnum eftir að héraðsdómur kvað upp úr um ólögmæti þess að einn þeirra yrði yfirheyrður með stöðu sakbornings. Hann segist munu kæra ef lögreglan geri slíkt.

Saksóknari segir viðkvæma blaðamenn eiga heima í blómaskreytingum
Lögregluembættið á Norðurlandi eystra var gripið í landhelgi þegar það gaf Aðalsteini Kjartanssyni blaðamanni réttarstöðu sakbornings og vildi yfirheyra hann sem slíkan. Héraðsdómur segir það ólögmætt. Lögregluembættið fyrir norðan ætlar að kæra úrskurðinn til Landsréttar.

Páleyju óheimilt að gera Aðalstein að sakborningi
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað í máli Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns á Stundinni en hann kærði þá ákvörðun lögreglunnar á Norðurlandi eystra að gera hann í sakborningi í máli sem snýr að eitrun og stuldi á síma Páls Steingrímssonar skipstjóra hjá Samherja. Niðurstaða dómarans er að Páleyju Borgþórsdóttur lögreglustjóra hafi verið það óheimilt.

Blaðamenn segja greinargerðina einkennast af dylgjum og getgátum
Ýmissa grasa kennir í greinargerð Eyþórs Þorbergssonar aðstoðarsaksóknara, þar sem afstaða Páleyjar Borgþórsdóttur lögreglustjóra og lögregluembættisins birtist til rannsóknar á hlut blaðamanna í sakamáli sem snýr að eitrun, símastuldi og svo dreifingu kynferðislegs efnis.

Lögmaður Aðalsteins: Fjarstæðukennt að blaðamenn hafi gerst sekir um kynferðisbrot með því að skoða efni
Tekist var á um meint brot blaðamanna í tengslum við umfjöllun um hina svokölluðu Skæruliðadeild Samherja í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Tíðindamaður Vísis var á vettvangi og færði til bókar það helsta. Saksóknari telur ljóst að blaðamennirnir hafi gerst sekir um stafrænt kynferðisbrot en lögmaður blaðamanns segir hann ekki hafa séð umrætt efni og kenningu lögreglu líkjast samsæriskenningu.

Blaðamennirnir grunaðir um dreifingu á kynferðislegu efni
Greinagerð Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra vegna rannsóknar á blaðamönnum vegna umfjöllunar um hina svokölluðu Skæruliðadeild Samherja var lögð fram fyrir dómi í dag en þar kemur fram að lögregla rannsaki kynferðisbrot gegn Páli Steingrímssyni, skipstjóra Samherja. Blaðamennirnir fjórir eru grunaðir um dreifingu á kynferðislegu efni og brot á friðhelgi.

Meint brot blaðamanna tengjast ekki gögnum sem birtust í umfjöllun um Samherja
Fyrirhuguð skýrslutaka lögreglustjórans á Norðurlandi eystra yfir fjórum blaðamönnum tengist ekki þeim gögnum sem voru birt í umfjöllun þeirra um hina svo kölluðu „skæruliðadeild“ Samherja. Blaðamennirnir eru grunaðir um brot gegn friðhelgi einkalífs vegna annarra gagna en þeirra sem notuð voru í viðkomandi umfjöllun.

Forsætisráðherra brugðið yfir að blaðamennirnir hafi verið kallaðir til yfirheyrslu
Forsætisráðherra segist hafa verið brugðið yfir fréttum af því að fjórir blaðamenn hefðu verið kallaðir til yfirheyrslu hjá lögreglu með réttarstöðu sakborninga í tengslum við umfjallanir þeirra um Samherja. Hún treysti því að lögregla fari ekki af stað með slíka rannsókn nema ríkt tilefni sé til.

Er lögreglan yfir gagnrýni hafin?
Ég var einn af þeim fjölmörgu sem saman unnu að því að efla til mótmæla nú um helgina, bæði á Akureyri og í Reykjavík. Mótmælin, bæði sunnan og norðan heiða, fóru fram á friðsælan hátt. Þess vegna þykir mér afskaplega skrýtið að vera einn af þeim sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra sakar um að vega að störfum lögreglu.

Viðbrögð fjölmiðla þegar blaðamenn eru til rannsóknar
Fjórir blaðamenn hafa nú stöðu sakborninga, grunaðir um brot gegn friðhelgi einkalífs. Þetta er mjög sérstakt. Venjulega höfða þeir einkamál sem telja blaðamenn hafa brotið gegn sér og almennt er erfitt að fá lögreglu til að rannsaka brot gegn friðhelgi einkalífs nema húsbrot, þjófnaður eða ofbeldi komi við sögu.

Mikilvægt að fjölmiðlar geti tekið við upplýsingum í trúnaði
Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, og Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri Ríkisútvarpsins, segja mikilvægt að fjölmiðlar geti tekið við upplýsingum í trúnaði og án þess að þurfa að gera grein fyrir uppruna þeirra.

Brynjar þráspurði Jón Trausta um hvort Stundin væri með gögnin úr síma Páls
Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, þráspurði Jón Trausta Reynisson, framkvæmdastjóra Stundarinnar um hvort að fjölmiðlinn hefði gögn úr síma Páls Steingrímssonar undir höndum. Brynjar telur að blaðamennirnir fjórir sem hafa réttarstöðu grunaðra væru ekki með slíka réttarstöðu ef málið snerist eingöngu um nýtingu blaðamanna á gögnum.

Yfirheyrslum allra blaðamannanna frestað
Yfirheyrslum yfir blaðamönnum Kjarnans, Stundarinnar og RÚV vegna meintra brota á lögum um friðhelgi einkalífs hefur verið frestað. Lögreglan á Norðurlandi eystra boðaði fjóra blaðmenn til yfirheyrslu vegna fréttaflutnings um svokallaða „skæruliðadeild“ Samherja.