Rannsókn á andlátinu gæti staðið yfir í marga mánuði Rannsókn stendur enn yfir eftir að öldruð kona féll fram af svölum á Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi sunnudaginn 28. júní með þeim afleiðingum að hún lést. Andlátið hefur verið rannsakað sem slys og verður það áfram nema eitthvað óvænt komi í ljós í niðurstöðum krufningar. Innlent 6.7.2026 14:39
Strætó og sláttutraktor lentu saman Árekstur varð milli strætisvagns og sláttutraktors skammt frá Árbæjarsafni í Reykjavík um eittleytið í dag. Innlent 6.7.2026 14:02
Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Gönguljós á Miklubraut, tafir við Bústaðaveg og Reykjanesbraut og framtíð gatnamótanna við Kaplakrika eru meðal þeirra umferðarhnúta sem kalla reglulega fram gagnrýni ökumanna. Innlent 6.7.2026 13:08
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent 5.7.2026 15:58
Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Píratar eru án heimahafnar þessa stundina, þar sem höfuðstöðvum þeirra við Hverfisgötu hefur verið lokað. Þeir leita nú að nýju húsnæði eftir að leigusali þeirra tilkynnti þeim að til stæði að selja eignina, sem hefur samt nú verið auglýst aftur til leigu. Formaður flokksins bindur vonir við að nýtt húsnæði finnist í lok sumars. Innlent 4. júlí 2026 21:14
Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Formaður borgarráðs lýsir áhuga á að endurskoða áform um sparkvöll á Landakotstúni í Vesturbæ Reykjavíkur, sé það vilji íbúa í hverfinu. Áform um uppbyggingu vallarins voru samþykkt árið 2023. Hann var sjálfur formaður borgarráðs þegar tillagan var samþykkt. Innlent 4. júlí 2026 20:37
Melabúðin fagnar sjötíu árum „Ég svara bara: Til hamingju með afmælið sömuleiðis,“ segir Dýrleif Birna Sveinsdóttir, verslunarstjóri Melabúðarinnar, sem staðið hefur í ströngu í dag meðan haldið var upp á sjötíu ára afmæli búðarinnar. Boðið var upp á vöfflukaffi fyrir gesti og gangandi í tilefni dagsins. Lífið 4. júlí 2026 17:21
Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Hugbúnaðarfræðingur sem hefur síðustu sex ár unnið að og þróað Kattaskránna leggur nú lokahönd á nýtt app sem hann er hægt að hlaða niður í gegnum glænýjan kattarvef. Þar er hægt að haka við að kisa sé týnd og fá þá „kattavinir“ í nágrenninu skilaboð í símann sinn um týndu kisuna. Ríflega tvö þúsund kisur eru þegar skráðar í gagnagrunn Kattaskránnar og hafa bæði dýralæknar og lögreglan leitað í grunninn við mál sem snúa að köttum. Innlent 4. júlí 2026 15:03
Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Svæði við stúku Laugardalslaugar hefur verið lokað vegna slæms ástands hennar. Skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg segist skilja trega borgarbúa en nauðsynlegt er að rífa stúkuna. Innlent 4. júlí 2026 14:02
Tveir handteknir eftir hópslagsmál Tveir voru vistaðir í fangageymslu eftir að hópslagsmál brutust út í miðbæ Reykjavíkur á fimmta tímanum í nótt. Innlent 4. júlí 2026 12:01
„Það er gaman að gera erfiða hluti“ „Ég hleyp aldrei, mér finnst bara gaman að taka áskoranir, á sjálfan mig,“ segir Egill Trausti Ómarsson sem mætti greinilega með rétta hugarfarið á Esjuna í dag. Egill ætlar, ásamt Hrólfi Vilhjálmssyni, að hlaupa fimmtán sinnum upp og niður fjallið í dag. Ævintýrið hófst klukkan fjögur í morgun og voru þeir félagar að klára sína fimmtu ferð þegar fréttastofa náði tali af Agli á tíunda tímanum í morgun. Lífið 4. júlí 2026 10:43
Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Borgarráð samþykkti tillögu borgarstjóra um að afturkalla styttingu á opnunartíma frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva sem taka átti gildi í lok ágúst. Þrátt fyrir yfirlýsingu um að velta kostnaðinum ekki yfir á foreldra eru einnig lagðar til breytingar á gjaldskrá. Innlent 4. júlí 2026 10:18
Líkamsárás og ölvunarakstur Einn er í haldi lögreglu grunaður um líkamsárás í umdæmi lögreglustöðvar þrjú, sem sér um mál í Kópavogi og Breiðholti. Töluvert var um ölvunarakstur í gærkvöldi. Innlent 4. júlí 2026 07:26
Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Æsileg atburðarás fór af stað í kjölfar innbrots í apótek í vikunni. Innbrotsþjófurinn flúði á bíl með lögregluna á hælunum og keyrði meðal annars yfir göngubrú. Lögreglufulltrúi segir eftirfarir erfið verkefni sem geti skapað mikla hættu. Innlent 3. júlí 2026 19:05
Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut um fjögurleytið í dag. Engin slys urðu á fólki en fjarlægja þurfti tvo bílanna af vettvangi með kranabíl. Innlent 3. júlí 2026 16:53
Reykjavíkurþríþrautin í fyrsta sinn í miðborg Reykjavíkur Ægir3 og Reykjavíkurborg standa fyrir einstökum þríþrautarviðburði þegar Reykjavíkurþríþrautin fer fram í fyrsta sinn í miðborg Reykjavíkur á sunnudaginn. Sport 3. júlí 2026 15:33
Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný Vesturbæjarlaug var opnuð á ný klukkan þrjú í dag eftir að hafa verið lokuð vegna viðhalds í tíu daga, frá 23. júní síðastliðnum. Við opnun var hiti sundlaugarinnar um tólf gráður en byrjað var að láta renna í hana síðdegis í gær. Það má því velta fyrir sér hvort laugin muni fyrst og fremst draga að sjósundsfólk í dag en búist er við að laugin muni hafa náð fullum hita á morgun. Innlent 3. júlí 2026 15:09
Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Loka á kaffihúsi Te og kaffi á Suðurlandsbraut um miðjan júlímánuð. Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te og kaffi, segir reksturinn aldrei hafa náð þeim hæðum sem þau hafi viljað og því fari þau nú þegar leigusamningur rennur út. Viðskipti innlent 3. júlí 2026 15:03
Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur, fyrrverandi upplýsingafulltrúa Reykjavíkurborgar á velferðarsviði, var sagt upp eftir að ekið var á hana á leið til vinnu. Hólmfríður er mikið slösuð en er á batavegi. Innlent 3. júlí 2026 11:07
Engum verkefnum útvistað og ekki greitt fyrir ráðgjöf Fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar um tilhögun upplýsingamála hjá borginni í kjölfar uppsagna var svarað munnlega á borgarráðsfundi í gær. Þá hafa þeim nú borist skrifleg svör frá Hildi Björnsdóttur borgarstjóra. Innlent 3. júlí 2026 10:41
Maður sem passaði við lýsinguna var handtekinn Stunguárás sem varð á níunda tímanum í gærkvöldi, þann 2. júlí, er ekki talin tengjast skipulagðri glæpastarfsemi en mennirnir tveir sem um ræðir þekktust. Þá var greint frá því í gær að sérsveitin hafi verið kölluð til aðstoðar lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en svo sagt að snúa við. Innlent 3. júlí 2026 10:40
Búinn að hlaupa allar götur í Reykjavík Ofurhlauparinn Þorleifur Þorleifsson náði stórmerkilegum áfanga í gær, á öðrum degi júlímánuðar, og sagði frá því á samfélagsmiðlum sínum. Sport 3. júlí 2026 10:24
Hafna tillögum um þéttingu í Grafarvogi Borgarráð hefur hafnað áformum um frekari uppbyggingu í Grafarvogi. Íbúar hafi lagst gegn áformunum og séu margir orðnir brenndir af vinnubrögðum síðasta meirihluta borgarinnar. Innlent 3. júlí 2026 08:36
UT-mál Reykjavíkurborgar Nú þegar málefni þjónustu- og nýsköpunarsviðs (ÞON) Reykjavíkurborgar (upplýsingatækni, þjónustuumbætur, nýsköpun og lýðræðismál) eru komin í gjörgæslu hjá borgarráði – með því að stafrænt ráð sem stýrði og fór með eftirlit með sviðinu hefur verið lagt niður og málefni þess sett beint undir sjálft borgarráð, amk. í bili – er kannski ástæða til að nefna nokkur atriði sem varða tölvumál opinberra aðila og þá Borgina sérstaklega. Skoðun 3. júlí 2026 08:19
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar gagnrýndu fyrirhugaðar breytingar á ráðum Reykjavíkurborgar í bókun á fundi borgarráðs í gær og saka nýjan meirihluta um blekkingarleik gagnvart borgarbúum. Innlent 3. júlí 2026 07:17