Menning

Menningarsprautur í hvísluleik

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Fjöldi fólks úr bókmenntasenunni mætti á Skólavörðuholtið í útgáfuhóf Hverfu.
Fjöldi fólks úr bókmenntasenunni mætti á Skólavörðuholtið í útgáfuhóf Hverfu. Ragnheiður Harpa

Óvenjulegt útgáfuhóf fór fram í Listasafni Einars Jónssonar á fimmtudag þegar ljóðabókin Hverfa eftir Melkorku Ólafsdóttur kom út. Hófið hófst á gjörningi myndlistarmannsins Haraldar Jónssonar sem hvíslaði óræðum orðum að gestum meðan ljóðskáldið lék á flautu úr fjarlægum sölum og las svo upp úr bókinni.

Fjölmenni var í útgáfuhófinu þrátt fyrir fyrstu almennilegu haustlægðina, sem skall á höfuðborgarbúum þennan dag, en meðal gesta voru nokkrir helstu rithöfundar og skáld landsmanna, ásamt vinum og velunnurum.

Útgáfuhófið hófst með gjörningi Haraldar sem raðaði gestum um rýmið og hvíslaði að þeim óræðum orðum meðan ljóðskáldið lék á flautu úr fjarlægum sölum í safninu. Í kjölfarið var Melkorka með kraftmikinn lestur úr ljóðabókinni Hverfu. 

Melkorka Ólafsdóttir hefur gefið út verk í eigin nafni og með skáldahópnum Svikaskáldum sem var tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2021 fyrir skáldsöguna Olíu. Hverfa er ljóðabók sem fjallar um fegurðina í hinu óræða; undrin og töfrana sem við ekki komum alltaf auga á en búa í þögninni milli vélrænna hendinga samtímans.

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir fangaði stemminguna á mynd:

Haraldur hvíslar orð að gestum.Ragnheiður Harpa

Haraldur hvíslar.Ragnheiður Harpa

Guðrún Eva Mínervudóttir, Elísa B. Guðmundsdótitir, Andri Snær Magnason, Þórunn Sigurðardóttir, Kría Sigríður og Ólafur S. Andrésson.Ragnheiður Harpa

Elísabet Indra Ragnarsdóttir í innilegu faðmlagi.Ragnheiður Harpa

Snædís Björnsdóttir, Fanney Benjamínsdóttir, Kristín Ómarsdóttir og Hólmfríður Matthíasdóttir.Ragnheiður Harpa

Stefanía Ólafsdóttir og Guja Sandholt.Ragnheiður Harpa

Sigþrúður Silja Gunnarsdóttir, Sigrún Steingrímsdóttir, Sigríður Ásta Arnardóttir, ritstjóri Hverfu, og Elísabet Indra.Ragnheiður Harpa

Lagt við hlustir.Ragnheiður Harpa

Björgvin Ívarsson Schram, Ragnheiður Vignisdóttir og María Elísabet Bragadóttir.Ragnheiður Harpa

Höfundurinn les upp úr bókinni.Ragnheiður Harpa

Hanna Björk Valsdóttir og Svikaskáldin Sunna Dís Másdóttir og Þóra Hjörleifsdóttir.Ragnheiður Harpa

Kristín Karólína Helgadóttir.Ragnheiður Harpa

Snædís Björnsdóttir blaðamaður og krítíker.Ragnheiður Harpa

Listaparið Melkorka Ólafsdóttir og Haraldur Jónsson.Ragnheiður Harpa

Höfundurinn, Melkorka Ólafsdóttir, með verk sitt, ljóðabókina Hverfu.Ragnheiður Harpa





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.