

Loftslagsmál

Aukin borun eftir eldsneyti samrýmist loftslagsmarkmiðum
Bresk stjórnvöld hafa samþykkt að veita um hundrað ný leyfi fyrir borun eftir olíu og gasi á Norðursjó. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd af umhverfisverndarsamtökum sem segja hana atlögu að þeim loftslagsskuldbindingum sem Bretar hafi gengist undir.

Hitinn í methæðum í mánuð
Hitinn í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum hefur farið yfir 43 gráður á selsíus þrjátíu og einn dag í röð. Ekkert lát virðist á sumarhitunum í Bandaríkjunum en júlímánuður verður sennilega heitasti mánuður sem mælingar hafa nokkru sinni sýnt.

Júlí gæti orðið heitasti mánuðurinn í 120 þúsund ár
Sérfræðingar frá Alþjóðaveðurfræðistofnuninni og Loftslagsstofnun Evrópusambandsins spá því að júlímánuður verði sá heitasti síðan mælingar hófust. Hitabylgjur hafa riðið yfir víða um heiminn og gróðuredar hafa logað á allnokkrum stöðum í júlímánuði.

Búið að aflétta öllum takmörkunum á sölu íslenskra upprunaábyrgða
Umhverfisstofnun Þýskalands (UBA) hefur aflétt banni við sölu upprunaábyrgða raforku frá Íslandi til Þýskalands. Bannið var sett á vegna gruns um að vinnsla grænnar orku væri tvítalin hér á landi en athugun stofnunarinnar hefur leitt í ljós að svo sé ekki.

Komi til þess að hægi á hringrásarkerfi Atlantshafsins verði það tímabundið
Umdeilt er hvort lóðrétt hringrásarkerfi Atlantshafsins stöðvist fyrir lok aldarinnar eins og spáð er fyrir í nýrri rannsókn. Haf- og veðurfræðingur segir að komi til þess að hægi á kerfinu bendi allt til að það verði aðeins tímabundið.

„Eitthvað sem við munum aldrei gleyma“
Rúður brotnuðu, bílar skemmdust og fjöldi fólks slasaðist þegar haglélsstormur dundi yfir Norður-Ítalíu í fyrradag. Íslendingur á svæðinu segist enn vera að átta sig á því sem gerðist, höglin hafi verið á stærð við golfkúlur.

Lykilhringrás í Atlantshafi gæti stöðvast samkvæmt nýrri rannsókn
Samkvæmt nýrri rannsókn sérfræðinga við Háskólann í Kaupmannahöfn gæti lykilhringsrás sjávar í Atlantshafinu stöðvast á næstu árum, jafnvel árið 2025. Slíkar vendingar myndu leiða af sér hamfarakennd áhrif á loftslagið, þar á meðal Íslandi. Rannsóknin er afar umdeild meðal vísindamanna.

Tuttugu og fimm fórust í skógareldum í Alsír
Skógareldar halda áfram að breiða úr sér víða um suður Evrópu og norður Afríku. Þriðja hitabylgjan skall á Grikklandi í dag þegar hitinn fór á ný yfir fjörutíu gráður. Tuttugu og fimm manns hafa farist í skógareldum í Alsír.

Áhrif mannsins á hitabylgjurnar í sumar kortlögð
Hitabylgjur sem gengið hafa yfir Evrópu og Bandaríkin í sumar hefðu verið „nær óhugsandi“, ef ekki hefðu komið til loftslagsbreytingar af manna völdum.

Skógareldar ógna grísku eyjunum
Skógareldar brenna nú á fjölmörgum grískum eyjum en einna verst er ástandið á ferðamannaeyjunni Ródos.

Óskemmtileg skemmtiferðaskip
Það er öfugsnúið að þegar hver stórborgin á fætur annarri úti heimi eru að banna komur skemmtiferðaskipa, þar á meðal Amsterdam og Feneyjar - þá séum við Íslendingar að bæta í, nú síðast Reykjanesbær.

Heimagert ekki endilega betra
Það er ekki launungarmál að aðgerðir stjórnvalda í loftslagsmálum hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Einföldun regluverks og aukið gagnsæi við ráðstöfun opinberra fjármuna í þágu loftslagsmarkmiða eru mikilvægar vörður á leið okkar að loftslagsmarkmiðum Íslands.

Ekkert samkomulag í höfn en ákveðin skref tekin fram á við
Ekkert samkomulag náðist í viðræðum erindreka Bandaríkjanna og Kína um loftslagsmál sem staðið hafa yfir í Pekíng. John Kerry, sérlegur sendifulltrúi Bandaríkjaforseta í loftslagsmálum, sagðist hins vegar fagna því að viðræður væru hafnar á ný.

Eigi að taka meðvitaðar ákvarðanir og sleppa samviskubitinu
Framkvæmdastjóri Landverndar segir að fólk eigi ekki endilega að vera með samviskubit vegna flugferða erlendis heldur taka meðvitaðar ákvarðanir um ferðir sínar, takmarka þær og taka þeim ekki sem sjálfsögðum hlut.

Hitinn að sliga heilbrigðiskerfið og fólk kælt niður í líkpokum
Heilbrigðisstarfsmenn í Bandaríkjunum hafa gripið til þess ráðs að setja sjúklinga með sólsting, eða hitaslag, í líkpoka fulla af klaka til að kæla þá hratt og örugglega niður.

Birgitta ætlar aldrei aftur af landi brott: „Fólk þarf að fara að vakna“
Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, er hætt að fljúga og segir það vera sitt framlag í baráttunni gegn loftlagsbreytingum. Hún segir fáa vilja horfast í augu við að massatúrismi sé vandamál og segist ekki eiga eftir að sakna þess að fara til útlanda, íslensk náttúra komi þar til bjargar.

46 gráður á Ítalíu og varað við versnandi hitabylgju á norðurhveli jarðar
Skæð hitabylgja herjar áfram á fólk víða um heim og virðist lítið lát vera á hitanum. Alþjóðaveðurfræðistofnunin varar við því að hitabylgjan færist í aukana á norðurhveli jarðar í þessari viku með hærri næturhita og meiri hættu á hjartaáföllum og dauðsföllum.

Varað við nýjum hitametum á Ítalíu, Grikklandi, Spáni og Marokkó
Íbúar á Ítalíu, Grikklandi, Spáni og Marokkó hafa verið varaðir við því að ný hitamet gætu fallið á morgun, þegar hiti gæti farið yfir 49 stig. Hitabylgjan Karon fylgir nú í kjölfar Kerberusar, sem olli gríðarlegum hita á svæðinu í síðustu viku.

Mengunin stórt viðfangsefni sem veldur áhyggjum
Forstjóri Umhverfisstofnunar segir losun skemmtiferða stórt viðfangsefni sem valdi áhyggjum. Það stefnir í metár í komu skemmtiferðaskipa til landsins.

Skemmtiferðaskip eru mesti mengunarvaldur Evrópu
Skemmtiferðaskip sem sigla á milli hafna í Evrópu eru helsti mengunarvaldur Evrópu. Skipin menguðu meira í fyrra en allir bílar álfunnar.

Rauðar viðvaranir og skógareldar í Suður-Evrópu
Ekkert lát virðist ætla að verða á hitabylgjum sem ganga nú yfir Suður-Evrópu. Á Ítalíu, Spáni og Grikklandi er hitanum lýst sem óbærilegum og íbúar hafa þurft að flýja heimili sín vegna skógarelda.

Dauðsföllum vegna mikils hita fjölgar hratt
Dauðsföll vegna hita voru 40 prósent fleiri í fyrrasumar en meðaltal síðustu sex ára. Sérfræðingar segja að ástandið eigi bara eftir að versna verði ekki brugðist við loftslagsbreytingum af krafti.

Hitametin orðin of mörg til að telja upp
Lamandi hitabylgja ríður nú yfir Evrópu. Veðurfræðingur segir loftlagsbreytingar valda fleiri bylgjum sem standi lengur en áður. Hitinn úti í heimi nú sé forsmekkurinn að því sem koma skal.

Nói Síríus hjálpar neytendum að flokka
Nýverið fóru að berast í verslanir vörur frá Nóa Síríus með nýjum, litakóðuðum flokkunarleiðbeiningum.

Sögulegt hitamet gæti fallið á Ítalíu
Hitabylgja gengur nú yfir Evrópu og er búist við að hitatölur fari yfir fjörutíu gráðurnar sumstaðar á Spáni, Grikklandi, í Frakklandi, Króatíu og Tyrklandi í dag.

Kuldi í kortunum en Íslendingar uppteknir af eigin nafla
Kuldakast er fram undan á landinu og víða spáð köldu veðri. Sérstaklega verður kalt á föstudag og í mikilli hæð er sums staðar útlit fyrir slyddu og snjókomu. Þrátt fyrir þetta segir veðurfræðingur að sumrinu sé hvergi nærri lokið og Íslendingar geti í raun verið þakklátir fyrir að glíma ekki við þann ofsahita sem mælist nú víða um heim.

Thunberg ákærð fyrir að óhlýðnast lögreglu
Sænskur saksóknari ákærði Gretu Thunberg, einn þekktasta loftslagsaðgerðasinna heims, fyrir að óhlýðnast lögreglu við mótmæli í Malmö í síðasta mánuði. Hún á að koma fyrir dómara í júlí en málum af þessu tagi er yfirleitt sagt ljúka með sekt.

Heitasti staki dagurinn frá upphafi mælinga
Bráðabirgðatölur benda til þess að mánudaginn 3. júlí hafi verið heitasti einstaki dagur á jörðinni frá því að mælingar hófust. Meðalhiti jarðar fór þá í fyrsta skipti yfir sautján gráður. Hlýindin eru að hluta til knúin af sterkum El niño-atburði í Kyrrahafinu.

Stefna norskum stjórnvöldum vegna nýrra olíuleyfa
Tvenn náttúruverndarsamtök segjast ætla að stefna norska ríkinu vegna ákvörðunar stjórnvalda um að gefa út nítján ný leyfi fyrir olíu- og gasvinnslu í gær. Þau saka ríkisstjórnina um að brjóta gegn stjórnarskrá og hunsa skuldbindingar sínar í mannréttindamálum með leyfunum.

Hitamál í Evrópu
Þýskaland og Ísland hafa sett sér metnaðarfull markmið þegar að kemur að loftslagsmálum. Alþingi hefur lögfest markmið um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040 og Þjóðverjar stefna að því að ná kolefnishlutleysi fimm árum síðar eða árið 2045. Þó verkefnið sé stórt hér heima, þá sérstaklega þegar að kemur að því að fasa út jarðefnaeldsneyti, er áskorunin mun stærri í Þýskalandi og raunar í Evrópu allri.