Kanada

Kanada

Höfuðborg: Ottawa. Mannfjöldi: 41,2 milljónir (2025). Flatarmál: 9.984.670 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Vopna­fram­leið­endur reyna að koma til móts við Evrópu

Forsvarsmenn bandarískra hergagnaframleiðenda mættu áhyggjum þegar þeir mættu á flugsýningu í Farnborough í Bretlandi í vikunni. Þar lýstu evrópskir viðskiptavinir ítrekað yfir áhyggjum af því að reiða of mikið á Bandaríkjamenn þegar kemur að hergögnum og framleiðslu þeirra.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki enn­þá“

Rapparinn Daniil hefur nú gefið út nýtt lag ásamt bandaríska tónlistarmanninum Kodak Black en hann segir útgáfuna hafa komið honum í opna skjöldu. Sá síðarnefndi hefur verið gríðarlega vinsæll síðasta áratuginn og um þrjátíu milljónir manns hlusta á lögin hans í hverjum mánuði. Hann hefur unnið að lögum ásamt Bruno Mars, Travis Scott, Gucci Mane og Future svo dæmi séu tekin.

Tónlist
Fréttamynd

Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leður­blöku á and­litinu

Ellefu ára kanadískur drengur lést úr hundaæði eftir að hafa vaknað við að leðurblaka var sest á andlit hans en atvikið átti sér stað árið 2024. Foreldrar drengsins leituðu með hann til læknis um tveimur vikum seinna þegar hann fór að finna fyrir doða og bólgu í andliti. Illa gekk að greina einkenni hans og á tímabili var gert ráð fyrir að hann væri með svokallaða Bell-lömun og seinna herpes-munn- og gómsýkingu. Þegar hann var loks greindur með hundaæði átti hann rétt rúmar tvær vikur ólifaðar.

Erlent
Fréttamynd

Aðflæðisvandinn

Ímyndum okkur stöðuvatn sem er að mengast. Fiskurinn drepst, vatnið gruggugt og fólkið í þorpinu hefur áhyggjur. Tvær leiðir blasa við.

Skoðun
Fréttamynd

HM í fót­bolta: Sameiningaraflið sem sundrar

„Hér verða allir velkomnir árið 2026,“ sagði Gianni Infantino, forseti FIFA, við fjölmiðlamenn á síðasta ári um komandi heimsmeistaramót. Nú er ljóst að sú setning er eins röng og hún hljómaði vitleysisleg þegar hún var látin falla.

Fótbolti
Fréttamynd

Þre­föld út­gáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“

Drake hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður heims síðustu fimmtán ár. Lítið hefur þó farið fyrir honum síðan harðvítugar rappdeilur hans við Kendrick Lamar náðu hápunkti fyrir tveimur árum síðan. Þangað til um miðjan síðasta mánuð þegar Drake gaf út þrjár plötur sama daginn. Plöturnar ruku upp á topp vinsældarlista en viðbrögð gagnrýnenda hafa verið misjöfn. Vísir heyrði hljóðið í þremur dyggum rapphlustendum til að ræða plöturnar og stöðu Drake.

Tónlist
Fréttamynd

Hundruð þúsunda krefjast at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði Alberta

Aðskilnaðarsinnar í Alberta-fylki í Kanada, segjast hafa safnað nægilega mörgum undirskriftum til að kveða á um atkvæðagreiðslu um sjálfstæði. Samkvæmt lögum í fylkinu þarf 178 þúsund undirskriftir til að þvinga yfirvöld til að halda atkvæðagreiðslu um tiltekin málefni en aðskilnaðarsinnarnir sögðust í gær hafa safnað nærri því 302 þúsund.

Erlent
Fréttamynd

Safna í sér­stakt sjóherlið á Norður­slóðum

Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að.

Erlent
Fréttamynd

Skaut ferða­mann til bana við mexíkóskan pýramída

Vopnaður maður skaut kanadískan ferðamann til bana og særði að minnsta kosti þrettán til viðbótar við Teotihuacán-pýramídann í Mexíkó í gær. Hann svipti sig lífi áður en lögreglu tókst að hafa hendur í hári hans.

Erlent
Fréttamynd

„Við erum ekki hrædd“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra þakkaði Mark Carney forsætisráðherra Kanada fyrir forystuna sem hann hefur sýnt á alþjóðavettvangi og talaði um tómarúm sem fylla hefði þurft.

Innlent
Fréttamynd

Taka Amaroq af markaði í Kanada

Amaroq hefur óskað eftir afskráningu hlutabréfa sinna úr TSX Venture-kauphöllinni í Kanada. Gert er ráð fyrir að afskráningin taki gildi við lok viðskipta þann 19. mars 2026. Þá stefnir félagið á skráningu á aðalmarkað kauphallarinnar í London í stað vaxtarmarkaðar þar í borg.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Banda­ríkjunum

Ríkisstjórn Kanada stefnir að því að draga verulega úr því hve mikið ríkið reiðir á bandaríska vopnaframleiðendur. Til stendur að verja fúlgum fjár, sem hafa í gegnum árin endað í höndum bandarískra vopnaframleiðenda, í að byggja upp hergagnaiðnað í Kanada.

Erlent
Fréttamynd

Vinkonuferð til Ís­lands tók ó­vænta stefnu

Avery Francis fór í stelpuferð til Íslands, eftir ár sem hún lýsir sem því versta í sínu lífi. Skipbrot í starfi, kulnun og áföll í einkalífi höfðu tekið sinn toll og hún hafði verið einhleyp í sex ár. Hún var ekki að leita að sambandi. Síðasta kvöldið í ferðinni kynntist hún íslenskum manni í miðbæ Reykjavíkur og þar kviknaði eitthvað óvænt. Þau hittust aftur ári síðar, og það fyrir einskæra tilviljun. Nú eru þau hjón og Avery býr hér og skipuleggur kvennaferðir til Íslands, sem hún kallar besta stað í heimi.

Lífið
Fréttamynd

„Þjóðin syrgir með ykkur“

Mark Carney forsætisráðherra Kanda segir alla þjóðina syrgja með íbúum Tumbler Ridge í Kanada. Tíu eru látin í kjölfar skotárásar í framhaldsskóla í gær. Ástæða skotárásar og tengsl geranda og fórnarlamba hafa ekki verið gefin upp. Fram hefur komið að árásarmaður sé kona en það hefur ekki verið staðfest. 

Erlent