Stuðningur úr óvæntri átt „Ég trúði þessu ekki og hélt fram á síðasta dag að þetta væri della. Ég gaf þessu ekki neinn séns og þetta pirraði mig í raun og veru. Mér finnst þetta bara skrítið í alla staði. Upplifunin mín er að þetta sé eiginlega ekki sanngjarnt.“ Þetta hafði Vísir.is eftir Jóni Gnarr forsetaframbjóðanda fyrr í vikunni um framboð Katrínar Jakobsdóttur en fréttin var unnin upp úr viðtali í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar. Skoðun 17. apríl 2024 09:00
Lægsti stuðullinn á Katrínu Á veðmálasíðu Betsson er veðjað um allt milli himins og jarðar og auðvitað eru komandi forsetakosningar undir. Innlent 16. apríl 2024 15:32
Þorði loks á 22, gekk að Felix og sagði hæ Stjórnmálafræðiprófessorinn Baldur Þórhallsson vill verða næsti forseti Íslands en hann og Felix Bergsson hafa eftir mikla umhugsun með fjölskyldunni tekið þessa ákvörðun. Lífið 16. apríl 2024 14:07
Rödd þjóðarinnar Rauður þráður sem greina má í samtölum við fólk á hringferð okkar er þessi: Störfin eru að hverfa frá minni plássum til stærri bæja. Smærri útgerðarfyrirtæki eru að lognast út af. Atvinnulífið er að verða fábreyttara. Opinber embætti hverfa úr bæjunum. Sækja þarf þjónustu um lengri veg. Skoðun 16. apríl 2024 12:00
Halla Hrund tvö- til þrefaldar fylgi sitt Halla Hrund Logadóttir tvö til þrefaldar fylgi sitt milli kannana á fylgi forsetaframbjóðenda og virðist helst höggva í fylgi Katrínar Jakobsdóttur. Enn er þó ómarktækur munur á fylgi Katrínar og Baldurs Þórhallssonar samkvæmt könnun Prósents fyrir Morgunblaðið sem birt var í dag. Innlent 15. apríl 2024 19:20
Boðskapur frá forsetaframbjóðanda Það hafa kannski margir klórað sér í hausnum yfir þátttöku minni í forsetakosningunum þar sem ég stíg nú eins og landkönnuður á nýjum slóðum og tek með mér ný og fersk sjónarhorn, smá húmor og djúpstæða trú á mátt hins ómögulega. Skoðun 15. apríl 2024 15:01
Baldur og Katrín halda forystunni Þrír frambjóðendur til embættis forseta Íslands eiga fremur öðrum möguleika á að ná kjöri samkvæmt þremur könnunum sem gerðar hafa verið að undanförnu. Katrín Jakobsdóttir hefur mælst með mest fylgi í tveimur þeirra en Baldur Þórhallsson í þeirri þriðju og nýjustu. Innlent 15. apríl 2024 12:32
Lykilfólkið á bak við tjöldin hjá forsetaefnunum Kanónur sem hafa áralanga reynslu af kosningabaráttum í bland við vini og fjölskyldu er uppistaða lykilfólks að baki forsetaframbjóðendum þetta árið. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svörum forsetaframboða til Vísis. Lífið 15. apríl 2024 11:00
Fordæmi Katrínar Tveir forsetar lýðveldisins voru þingmenn þegar þeir buðu sig fram til að gegna embættinu og höfðu auk þess báðir verið ráðherrar áður, þeir Ólafur Ragnar Grímsson og Ásgeir Ásgeirsson. Hvorugur þeirra sagði af sér þingmennsku fyrr en fyrir lá að þeir hefðu náð kjöri. Skoðun 15. apríl 2024 08:31
Hélt fram á síðasta dag að framboð Katrínar væri della Jón Gnarr segir nýjar dyr hafa opnast í lífi sínu þegar hann uppgötvaði leiklist. Jón, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, segir að fram að því hafi hann verið orðinn úrkula vonar um að eitthvað yrði úr honum og að hann gæti yfir höfuð gert eitthvað af viti í lífinu. Hann lét framboð Katrínar Jakobsdóttur til forseta pirra sig. Lífið 15. apríl 2024 07:01
Baldur með forskot á Katrínu í nýjustu skoðanakönnuninni Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, nýtur mests stuðnings frambjóðenda til forseta Íslands samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Prósent framkvæmdi fyrir Morgunblaðið. Innlent 15. apríl 2024 06:40
Bein útsending: Fer yfir hennar sýn á hlutverk forseta Halla Hrund Logadóttir, forsetaframbjóðandi, ætlar í dag að fara yfir hvers vegna hún býður sig fram og hver hennar sýn er á hlutverk forseta Íslands í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi. Innlent 14. apríl 2024 15:31
Mælum með fjölbreytni Áttu eftir að mæla með til forseta? Íhugaðu hvaða vald þú hefur í hendi þér. Skoðun 14. apríl 2024 09:01
Harðari orðræða um útlendinga stilli VG upp við vegg Harðari orðræða formanns Sjálfstæðisflokksins í garð útlendinga, sér í lagi hælisleitenda, stillir Vinstri grænum upp við vegg. Þetta segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor að loknum opnum fundi Sjálfstæðisflokksins í kjölfar hrókeringa innan ríkisstjórnar. Innlent 13. apríl 2024 20:05
Eldri kjósendur hallast að Katrínu Litlu munar á fylgi forsetaframbjóðendanna Katrínar Jakobsdóttur og Baldurs Þórhallssonar samkvæmt nýrri könnun. Prófessor í stjórnmálafræði segir geta skipt sköpum að kjósendahópur Katrínar sé líklegri til að mæta á kjörstað þar sem um eldra fólk sé að ræða. Innlent 13. apríl 2024 11:32
Mjótt á munum á milli Katrínar og Baldurs Lítill munur er á fylgi Katrínar Jakobsdóttur og Baldurs Þórhallssonar í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup um fylgi forsetaframbjóðenda. Innlent 13. apríl 2024 07:52
Hvers vegna styð ég Baldur? Ég starfaði með Baldri Þórhallssyni í stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands í nær tvo áratugi. Þar kynntist ég Baldri og mannkostum hans vel, en hann er heilsteyptur, góðviljaður og hefur ríka réttlætiskennd eins og sést á ýmsum þeim málefnum sem hann vill leggja áherslu á, verði hann kjörinn forseti. Skoðun 12. apríl 2024 14:00
Sara Lind settur orkumálastjóri í kosningabaráttunni Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur nú sett Söru Lind Guðbergsdóttur tímabundið í embætti orkumálastjóra fram til 2. júní. 2024. Þetta er gert vegna óskar Höllu Hrundar Logadóttur um að taka sér tímabundið leyfi frá embætti vegna framboðs síns til embættis forseta Íslands. Innlent 12. apríl 2024 13:15
Herskátt myndband Ástþórs vekur athygli Nú er tekið að hitna í baráttunni um Bessastaði og ljóst að Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi ætlar ekki að hverfa úr þeirri baráttu hægt og hljótt. Óhætt er að segja að nýtt myndband Ástþórs hafi vakið athygli þar sem tónlist Hatara hljómar undir í ósátt hljómsveitarinnar. Innlent 12. apríl 2024 09:00
Katrín afsalar sér biðlaunum á meðan forsetaslag stendur Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi forsetaframbjóðandi, hefur ákveðið að afsala sér biðlaunum sínum sem forsætisráðherra á meðan hún er í kosningabaráttu. Bergþóra Benediktsdóttir, kosningastjóri hennar, gerir það líka en hún starfaði sem aðstoðarmaður Katrínar á meðan hún var forsætisráðherra. Innlent 12. apríl 2024 08:55
Landskjörstjórn tekur við framboðum í Hörpu þann 26. apríl Landskjörstjórn mun koma saman til fundar og taka á móti framboðum til forseta Íslands frá klukkan 10 til 12 föstudaginn 26. apríl næstkomandi, í fundarherberginu Stemmu í Hörpu. Innlent 12. apríl 2024 08:49
Guðbergur býður sig fram og hyggst nýta embættið betur Guðbergur Guðbergsson, fasteignasali og fyrrum áhættuleikari, býður sig fram til embættis forseta Íslands. Hann segir embættið vannýtt og hyggst beita því til að koma í veg fyrir einkavæðingu raforkuinnviða. Innlent 11. apríl 2024 20:38
Framboð Katrínar tekur á sig mynd Aðstoðarkona Katrínar Jakobsdóttir þegar hún var forsætisráðherra verður kosningastjóri forsetaframboðs hennar sem er nú byrjað að taka á sig mynd. Kosningastjóri Vinstri grænna í Reykjavík í síðustu þingkosningum verður samskiptastjóri framboðsins. Innlent 11. apríl 2024 17:57
Kveðjugjöf Katrínar Það er hefð fyrir þvi á vinnustöðum landsins að gefa kveðjugjöf þegar aðili sem staðið hefur vaktina í lengri tíma kveður, hvort sem við taka eftirlaun eða nýjar áskoranir á nýjum vinnustað. Í síðustu viku tilkynnti Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra til rúmlega sex ára og formaður Vinstri Grænna, um framboð sitt til embættis forseta Íslands. Skoðun 11. apríl 2024 17:01
Allskonar fyrir aumingja Það er mér ávallt minnisstætt þegar Besti flokkurinn kom fram á sjónarsviðið og lofaði að “gera allskonar fyrir aumingja”. Þessi orð hittu svo sannanlega naglann á höfuðið sem skilaboð frambjóðenda fyrir kosningar. Skoðun 11. apríl 2024 16:30
Þjóðinni ógnað. Guð blessi Ísland Fyrir 28 árum kom ég fram með hugmyndafræðina að virkja embætti forseta Íslands til friðar- og lýðræðismála og gaf út bókina Virkjum Bessastaði sem dreift var á öll heimili landsins. Skoðun 11. apríl 2024 15:30
Glatað lýðræði? Til hvers erum við að kjósa forseta? Til hvers kjósum við þingmenn? Er það ekki til að vera ráðsmenn, umsjónarmenn eigna okkar, vörslumenn hagsmuna okkar? Þessir fulltrúar eiga að vera hollir og dyggir þjónar sem starfa fyrir fólkið í landinu - ekki fyrir sig sjálfa og ekki fyrir flokkinn sinn heldur fyrir þjóðina. Skoðun 11. apríl 2024 08:32
Ávarpaði þjóðina vegna „breyttrar stöðu“ Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi og bílainnflytjandi, birti ávarp á samfélagsmiðlum í kvöld þar sem hann sagði styrjöld hafna milli Íslands og Rússlands. Hann segist hafa í aðdraganda forsetakosninganna 2016 varað við að slíkt væri yfirvofandi. Innlent 10. apríl 2024 16:47
Katrín miklu fljótari en Baldur og Jón Katrín Jakobsdóttir, forsetaframbjóðandi, opnaði fyrir meðmælasöfnun á Íslandi.is klukkan 13. Klukkan 13:54 hafði hún náð tilskildum fjölda meðmæla. Hún var því tæpum klukkutíma fljótari að ná lágmarkinu en þeir Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr. Innlent 10. apríl 2024 14:51
Katrín opnar fyrir undirskriftir Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, er númer 74 á lista yfir þá sem nú safna meðmælendum vegna fyrirhugaðra forsetakosninga. Innlent 10. apríl 2024 13:10
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent