

Flóttamenn
Fréttir af málefnum flóttamanna.

Eftirlýstur hælisleitandi handtekinn með tvær milljónir í reiðufé
Karlmaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af fyrr í mánuðinum reyndist eftirlýstur hælisleitandi. Við leit á manninum fundust tvær milljónir króna í reiðufé. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Meirihluti landsmanna telur of marga flóttamenn fá hæli
Algjör viðsnúningur hefur orðið á viðhorfi landsmanna til flóttamanna þar sem ríflega tvöfalt fleiri en áður telja þá of marga hér á landi eða um sextíu prósent. Fjármálaráðherra segir viðvörunarbjöllur hafa hringt lengi í þessum málaflokki.

Samtal enn í gangi um þjónustusvipt flóttafólk
Félags-og vinnumarkaðsráðherra segir samtal á milli ríkis og sveitarfélaga um stöðu flóttafólks sem svipt hefur verið þjónustu enn í gangi. Ekki er ljóst hvenær þeirri vinnu lýkur.

Skrifar forsætisráðherra bréf og hvetur til formannafundar
Formaður Viðreisnar hefur sent Katrínu Jakobsdóttur bréf þess efnis að hún beiti sér fyrir formlegum viðræðum formanna allra flokka á Alþingi til að kanna möguleika á breiðri samstöðu um lögggjöf um útlendinga. Lífskjör á Íslandi verði mjög háð erlendu vinnuafli á komandi árum.

Ályktanir VG: Fullur stuðningur við Svandísi og engar flóttamannabúðir
„Lokaðar flóttamannabúðir þar sem fólk er geymt þar til hægt er að senda það úr landi er ekki lausnin á þessari stöðu,“ segir í ályktun sem samþykkt var á flokksráðsfundi Vinstri grænna nú um helgina, um framkvæmd nýrra útlendingalaga.

Í fullum rétti til að setja stórt spurningamerki við hugmynd Guðrúnar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags-og vinnumarkaðsráðherra, sagðist heyra skilaboðin sem honum bárust vegna mála flóttafólks sem svipt hefur verið þjónustu. Ráðherrann ávarpaði fund sem haldinn var af 28 félagasamtökum í gær vegna málsins og sagðist meðal annars setja stórt spurningamerki við hugmyndir dómsmálaráðherra um lokað búsetuúrræði fyrir fólk í ólögmætri dvöl hérlendis.

„Hér er mannúðarkrísa“
Tuttugu og átta félagasamtök funduðu í dag um málefni flóttafólks sem hefur verið svipt þjónustu. Félagsmálaráðherra var eini ráðherra ríkisstjórnarinnar sem mætti en hann sagði það ekki stefnu stjórnvalda að fólk sé á götunni og að verið sé að vinna að lausn með sveitarfélögum.

Þjónustusvipt flóttafólk til Hjálpræðishers í mat og virkniúrræði
Svæðisstjóri Hjálpræðishersins segir þjónustusvipt flóttafólk leita til þeirra í mat og virkniúrræði. Ræða á málefni þessa hóps á samráðsfundi seinnipartinn í dag. Fjöldi félagasamtaka hafa skorað á yfirvöld að tryggja öryggi fólksins og grunnaðstoð.

„Hvers vegna ætti annað að gilda um útlendinga?“
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur svarað gagnrýni á vinnubrögð stjórnvalda í útlendingamálum í aðsendri grein á Vísi. Nánar tiltekið tekur hún pistil Láru Pálsdóttur í Heimildinni fyrir og kallar innlegg hennar í umræðuna „lofsöng um lygina“ því hún styðjist ekki við staðreyndir.

Fjörutíu og tveir frá Venesúela fengið hæli en 435 verið synjað
Á tímabilinu frá og með janúar og til og með júlí barst Útlendingastofnun 2.751 umsókn um vernd. Stærsti hlutinn var vegna einstaklinga frá Venesúela, 1.208 umsóknir, en 980 vegna einstaklinga frá Úkraínu.

Fjöldi manna sem vilji níðast á viðkvæmum konum leynist á Íslandi
Talskona Stígamóta segir þolendur mansals sem sendir eru á götur Íslands vera verulega útsetta fyrir ofbeldi. Hér á Íslandi leynist fjöldi fólks sem vilji níðast á konunum.

Enn engin niðurstaða í máli þjónustusvipts flóttafólks
Enn er engin niðurstaða komin í máli flóttafólk sem hefur fengið endanlega synjun og misst rétt á þjónustu, framfærslu og búsetu. Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir ríkið nú vinna að því að skilgreina þá þjónustu sem fólkið eigi að fá og hvar hún eigi að vera.

Vinnumálastofnun leigir Hótel Glym undir allt að áttatíu flóttamenn
Vinnumálastofnun mun leigja Hótel Glym frá 1. október næstkomandi til hýsingar allt að áttatíu umsækjenda um alþjóðlega vernd.

„Það er neyð á götunum og það er alvarlegt mál“
Reykjavík mun ekki þjónusta flóttafólk sem svipt hefur verið þjónustu án samtals eða verklags um verkefnið. Formaður borgarráðs segir verkefnið risavaxið og að það muni aðeins vaxa.

Óttast að yfir sextíu hafi farist
Óttast er að yfir sextíu manns hafi farist á leið sinni yfir Atlantshafið eftir að bátur fannst nærri Grænhöfðaeyjum undan vesturströnd Afríku. 38 hefur verið bjargað yfir á eyjuna Sal, þar á meðal börnum á aldrinum tólf til sextán ára.

Ríkið hafi tekið á sig ábyrgð á velferð flóttafólks
Miðstjórn ASÍ lýsir yfir áhyggjum sínum vegna þeirrar stefnu stjórnvalda að flóttafólk í sérstaklega berskjaldaðri stöðu sé sent út á götuna, svipt þjónustu og ekki gefinn kostur á að sjá sér farborða í íslensku samfélagi.

Vill lagalegt álit til að útkljá ágreining um flóttafólk
Forsætisráðherra hefur óskað eftir lagalegu áliti Lagastofnunar vegna ágreinings um flóttafólk sem búið er að svipta rétti til þjónustu. Dómsmálaráðherra vill koma fólkinu fyrir í nýju búsetuúrræði með takmörkunum.

Vilja fella úr gildi ákvæði sem heimilar þjónustusviptingu
Píratar vilja fella úr lögum ákvæði sem heimilar niðurfellingu þjónustu hjá flóttafólki sem hefur fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd og hafa hafið undirbúning þess. Þing kemur saman eftir tæpan mánuð.

Vill opna „búsetúrræði með takmörkunum“ fyrir flóttafólk
Dómsmálaráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, skoðar nú þann möguleika að koma upp nýju búsetuúrræði með takmörkunum fyrir fólk sem hefur fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd og misst rétt á húsnæði eða þjónustu. Hún segir sveitarfélögum ekki bera skylda til að taka við fólki sem sýnir ekki samstarfsvilja og hefur ekki rétt á þjónustu lengur.

Ekki hægt að velta vanda á sveitarfélögin: „Látum fólk auðvitað ekki svelta“
Formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu segir þau ekki geta tekið við réttinda- og heimilislausu flóttafólki án samtals. Hún segir áríðandi að ríkið skýri málið betur og ætlar að óska eftir fundi með ráðherra.

Hvað er planið Guðmundur?
Opið bréf til Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félagsmálaráðherra

Þingmaður spyr „hvar er þetta fólk?“
Þingmaður Samfylkingarinnar segir þjónustusvipta hælisleitendur strandaglópa hér á landi þar sem þeir komist ekkert án ferðaskilríkja. Fimmtíu manns séu á götunni og hún spyr hvar fólkið sé? Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir erfitt að horfa upp á einstaklinga þjást. Fara verði eftir lögum.

Minnst sex flóttamenn létust í Ermarsundi
Sex manns létust þegar bátur með nærri sjötíu flóttamenn innanborðs sökk nærri borginni Calais í Frakklandi við Ermarsund í dag.

Búið að tilkynna öllu flóttafólki um þjónustusviptingu í bili
Búið að er að tilkynna öllum þeim sem hafa fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd um yfirvofandi þjónustusviptingu í bili að sögn sérfræðings hjá ríkislögreglustjóra. Nýtt ákvæði í útlendingalögum sé krefjandi verkefni sem ekki hafi enn reynt á.

Heimilisleysi flóttafólks mun aukast mikið á næstunni
Heimilisleysi flóttafólks mun aukast töluvert á næstunni vegna nýrra útlendingalaga sem gera það að verkum að fólk missir alla þjónustu þrjátíu dögum eftir endanlega synjun um alþjóðlega vernd. Þetta segir formaður hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi.

„Lögin eru að virka sem skyldi“
Dómsmálaráðherra segir ný útlendingalög virka sem skyldi. Fólk sem missi þjónustu 30 dögum eftir endanlega synjun um alþjóðlega vernd verði að sýna samstarfsvilja um að fara úr landi.

Þolendur mansals sviptar öllum réttindum og vísað á götuna
Tvær konur á flótta óttast að lenda á götunni á morgun. Báðar eru þolendur mansals og hafa verið á Íslandi um árabil. Þær hafa verið sviptar öllum réttindum eftir að þær fengu endanlega synjun um alþjóðlega vernd.

Fjörutíu og einn flóttamaður fórst undan stöndum Ítalíu
Fjörutíu og einn flóttamaður lét lífið þegar þegar bátur fórst undan ströndum ítölsku eyjunnar Lampedusa. Báturinn lagði af stað frá hafnarborginni Sfax í Túnis og sökk nokkrum tímum eftir brottför.

Lík móður og barns fundust og þrjátíu enn saknað eftir að tveir bátar sukku
Lík móður og barns hafa fundist eftir að tveir bátar sukku vegna mikils hvassviðris út af ströndum Ítölsku eyjunnar Lampedusa í nótt. Talið er að þrjátíu manns sé enn saknað.

Vörðu tveimur vikum á stýri flutningaskips
Lögregluþjónar í Brasilíu björguðu nýverið fjórum mönnum frá Nígeríu sem vörðu tveimur vikum á stýri flutningaskips. Þeir kláruðu matarbirgðir sínar og vatn á tíunda degi en héldu lífi með því að drekka sjó.