

EM í fótbolta 2024
Evrópumótið í fótbolta karla fer fram í Þýskalandi dagana 14. júní til 14. júlí 2024.
Leikirnir

Southgate hrósar Spánverjum: „Fannst þeir vera besta lið mótsins“
Gareth Southgate, þjálfari enska karlalandsliðsins í knattspyrnu, var nokkuð stoltur af sínum mönnum þrátt fyrir að liðið hafi þurft að sætta sig við silfur eftir 2-1 tap gegn Spánverjum í úrslitaleik EM í kvöld.

„Vildum vinna þetta fyrir hann“
Harry Kane, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, var eðlilega niðurlútur eftir að liðinu mistókst að vinna sinn fyrsta Evrópumeistaratitil í sögunni er liðið tapaði 2-1 gegn Spánverjum í úrslitum EM í kvöld.

Rodri valinn bestur og Yamal besti ungi leikmaðurinn
Rodri, miðjumaður Manchester City og spænska landsliðsins í knattspyrnu, var valinn besti leikmaður Evrópumótsins sem lauk í kvöld.

Sjáðu mörkin sem tryggðu Spánverjum sinn fjórða Evrópumeistaratitil
Spánverjar tryggðu sér í kvöld sinn fjórða Evrópumeistaratitil er liðið vann dramatískan 2-1 sigur gegn Englendingum.

Spánverjar Evrópumeistarar í fjórða sinn
Spánverjar tryggðu sér sinn fjórða Evrópumeistaratitil er liðið vann dramatískan 2-1 sigur gegn Englendingum í úrslitaleik EM á Ólympíuleikvanginum í Berlín í kvöld. Það var varamaðurinn Mikel Oyarzabal sem reyndist hetja Spánverja.

„Trúi því varla að ég sitji hér“
Úrslitaleikur Evrópumóts karla í fótbolta fer fram í kvöld. Íslendingur á vellinum segir stemninguna þvílíka og vel viðri til leiksins.

Jesús Navas hættir í landsliðinu eftir úrslitaleikinn í kvöld
Spænski knattspyrnumaðurinn Jesús Navas staðfesti það á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik EM að leikurinn á móti Englandi í kvöld verður hans síðasti landsleikur á ferlinum.

„Sorglegt að koma á leik bara til að púa á einn leikmann“
Það fór ekkert fram hjá neinum sem horfði á undanúrslitaleik Spánar og Frakklands að einn leikmaður á vellinum mátti þola hreint og tært einelti nær allan leikinn.

Ungu framherjar Spánverja gætu báðir fengið EM-gull í afmælisgjöf
Spánverjar hafa verið frábærir á Evrópumótinu í Þýskalandi og þar hefur munað miklu um framlag frá tveimur ungum framherjum liðsins.

„Leikur sem getur breytt lífi okkar“
Enski landsliðsmaðurinn Cole Palmer átti frábæra innkomu í undanúrslitaleikinn á móti Hollandi og lagði upp sigurmarkið. Palmer hefur þurft að bíða þolinmóður á bekknum en hefur átti góða innkomu í nokkra leiki þrátt fyrir fáar mínútur.

Sir Jim Ratcliffe sendi enska landsliðinu kveðju frá Íslandi
Íslandsvinurinn og einn af eigendum Manchester United, Sir Jim Ratcliffe, var í hópi heimsþekktra aðila sem sendu enska karlalandsliðinu í fótbolta sérstaka kveðju fyrir úrslitaleikinn á móti Spáni í kvöld.

Enginn enskur karl kæmist í vörnina í úrvalsliði hetjunnar frá 2022
Chloe Kelly, hetja enska landsliðsins í úrslitaleik EM kvenna 2022, var fengin til að velja úrvalslið úr bæði karla- og kvennalandsliði Englendinga.

Milljarður punda í húfi fyrir leikmenn Englands
England getur unnið sinn fyrsta stóra titil í 58 ár þegar liðið mætir Spánverjum í úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu í kvöld. Það eru hins vegar einnig miklir peningar í húfi fyrir leikmenn enska liðsins.

„Hvorugt liðið sigurstranglegra fyrir úrslitaleikinn“
Þjálfari spænska landsliðsins í knattspyrnu Luis de la Fuente segir að hvorki Spánverjar né Englendingar séu sigurstranglegri fyrir úrslitaleik liðanna á Evrópumótinu annað kvöld.

„Myndi skipta á öllu fyrir sigur á EM“
Harry Kane mun leiða lið Englands til leiks í Berlín á morgun þegar enska liðið mætir Spánverjum í úrslitaleik Evrópumótsins. Kane hefur aldrei unnið stóran titil á ferli sínum.

UEFA breytir reglunni um gullskóinn á EM
Knattspyrnusamband Evrópu segir að sex leikmenn muni deila gullskó Evrópumótsins í fótbolta nái enginn að skora sitt fjórða mark í úrslitaleiknum á morgun.

Gary Lineker vill banna orðin
Gary Lineker, knattspyrnusérfræðingur og fyrrum landsliðsmaður Englendinga, vill alls ekki heyra ákveðin orð í aðdraganda úrslitaleik Englands og Spánar um Evrópumeistaratitilinn.

Földu myndirnar af Messi baða sex mánaða gamlan Lamine Yamal
Myndirnar af Lionel Messi að baða spænska undrabarnið, þegar Lamine Yamal var aðeins sex mánaða, fóru eins og eldur í sinu um alnetið í vikunni. Strákurinn var sjálfur spurður út í myndirnar í viðtali fyrir úrslitaleik Evrópumótsins í Þýskalandi.

Heldur sýningu um vítakeppnir: Angistin, alsælan og sagan hans Southgate
Guðmundur Einar er svo hugfanginn af vítaspyrnukeppnum að hann ákvað að halda myndlistarsýningu tileinkaða þeim. Örlög Gareths Southgate, landsliðsþjálfara Englands, eru listamanninum sérstaklega hugleikin.

Declan Rice mun drekka fyrsta bjórinn ef England vinnur EM
Declan Rice mun fá sér sinn fyrsta „almennilega bjór“ ef England verður Evrópumeistari næsta sunnudag.

Vilja halda Southgate sama hvernig úrslitaleikurinn fer
Enska knattspyrnusambandið vill halda Gareth Southgate í starfi þjálfara karlalandsliðsins sama hvernig úrslitaleikur EM fer.

Dauðvona Sven-Göran: „Kæri Gareth, gerðu þetta fyrir mig, Sir Bobby og England“
Sven-Göran Eriksson, sem á ekki langt eftir ólifað, vonast til að sjá Englendinga vinna EM. Í bréfi sem birtist í the Telegraph hvetur hann Gareth Southgate og enska landsliðið til dáða í úrslitaleik Evrópumótsins.

Bellingham líklega á leið í aðgerð
Enski landsliðsmaðurinn Jude Bellingham gengur ekki alveg heill til skógar og hefur ekki gert það síðan í nóvember á síðasta ári.

Faðir Yamal með aðra sýn á það þegar Messi baðaði soninn hans
Mikið hefur verið rætt og skrifað um myndirnar af Lionel Messi að baða kornungan Lamine Yamal. Myndirnar komu óvænt fram á sama tíma og þessi sextán ára strákur var að slá í gegn á Evrópumótinu í Þýskalandi.

Frakki dæmir úrslitaleikinn
Búið er að ákveða hver dæmir úrslitaleik Evrópumótsins í Þýskalandi. Það verður Frakkinn Francois Letexier.

„Appelsínugula hjartað mitt brotnaði“
Karina Wiegman, hollenskur þjálfari enska kvennalandsliðsins í fótbolta, var á báðum áttum eftir sigur Englands á Hollandi í undanúrslitum Evrópumóts karla í fótbolta í gær.

Enskir stuðningsmenn sungu til tvífara Southgate
Eins og margir sáu eru Englendingar komnir í úrslit á Evrópumótinu í Þýskalandi. Liðið vann Holland 2-1 í undanúrslitum á Westfalen vellinum í Dortmund í gærkvöldi, 2-1.

Reiknuðu út að xG var bara 0,05 í sigurmarki Ollie Watkins
Ollie Watkins tryggði enska landsliðinu 2-1 sigur á Hollandi í gær og um leið sæti í úrslitaleik Evrópumótsins í Þýskalandi.

Koeman sakar VAR um að skemma fótboltann
Hollendingum fannst á sér brotið þegar þeir töpuðu 2-1 á móti Englandi í undanúrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta í gærkvöldi.

„Kannski áttum við skilið framlengingu, en svona er þetta“
„Já, í fyrri hálfleik, ekki í seinni hálfleik,“ sagði Ronald Koeman, þjálfari Hollands, aðspurður hvort England hafi átt sigurinn skilið í undanúrslitum Evrópumótsins.